Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 58. máls.

Þskj. 59  —  58. mál.



Frumvarp til laga

um breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991,
með síðari breytingum (frestur) .

(Lagt fyrir Alþingi á 139. löggjafarþingi 2010–2011.)




1. gr.

    2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:
    Ákvæði þetta fellur úr gildi 31. mars 2011.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. nóvember 2010.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 23/2009 var ákveðið að fresta skyldi að ósk gerðarþola nauðungarsölum fasteigna fram yfir 31. október 2009. Með lögum nr. 108/2009, sem tóku gildi 6. nóvember 2009, var fallið frá frekari almennri frestun á nauðungarsölu fasteigna. Þess í stað var kveðið á um í ákvæði til bráðabirgða að sýslumanni bæri að verða við ósk gerðarþola um að fresta fram yfir 28. febrúar 2010 töku ákvörðunar um framhald uppboðs eða ráðstöfun eignar á almennum markaði ef leitað væri nauðungarsölu skv. 6. gr. laga nr. 90/1991. Þetta var þó bundið við þá fasteign þar sem gerðarþoli héldi heimili og hefði skráð lögheimili. Þá þurfti og að vera um að ræða húsnæði sem ætlað væri til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda. Í þeim tilvikum þar sem ráðstöfun fasteignar, sem uppfyllti framangreind skilyrði, hafði þegar verið ákveðin við framhald uppboðs eða á almennum markaði en uppboði ekki verið lokið eða boð á almennum markaði samþykkt í eign var mælt fyrir um að sýslumaður skyldi verða við ósk gerðarþola um frestun þeirra aðgerða fram yfir framangreint tímamark. Þá var með lögum nr. 11/2010 ákveðið að gerðarþoli gæti óskað eftir því við sýslumann að töku ákvörðunar um framhald uppboðs eða ráðstöfun hennar á almennum markaði yrði frestað í allt að þrjá mánuði. Var við það miðað að slíka beiðni væri unnt að leggja fram allt til 31. október 2010. Var talið nauðsynlegt að gefa skuldurum kost á fresti svo að þeir ættu þess kost að leita eftir þeim úrræðum sem þá höfðu nýlega verið sett fram til lausnar á skuldavanda heimilanna. Í frumvarpi þessu er lagt til að tímabilið til að óska eftir þessum fresti renni ekki út 31. október 2010 heldur verði gildistími ákvæðisins framlengdur til 31. mars 2011. Skammt er síðan umboðsmaður skuldara tók til starfa og nokkurn tíma mun taka að leysa úr þeim málum sem þar bíða úrlausnar. Þykir því rétt að framlengja þennan frest til að gefa skuldurum kost á skjóli fyrir nauðungarsölu meðan leitað er lausna á málum þeirra. Skilyrði fyrir því að frestur verði veittur eru þau sömu og áður. Þannig er um að ræða frest á því að ákvörðun verði tekin um það hvenær framhald uppboðs fari fram, en hafi sú ákvörðun verið tekin er unnt að óska eftir fresti á að framhald uppboðs fari fram. Sama gildir ef ákveðið hefur verið að ráðstafa eign með nauðungarsölu á almennum markaði. Þá þurfa einnig sömu skilyrði að vera uppfyllt hvað varðar húsnæðið, þ.e. að um sé að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda og gerðarþoli þarf að halda þar heimili og eiga þar lögheimili.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum um nauðungarsölu,
nr. 90/1991, með síðari breytingum (frestur).

    Með frumvarpi þessu er lagt til að við lögin verði bætt ákvæði til bráðabirgða um að frestur sá sem gerðarþoli hefur getað óskað eftir á nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði verði framlengdur til 31. mars 2011 að uppfylltum öllum sömu skilyrðum og gilt hafa um slíka fresti til þessa. Um sé að ræða fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili, enda sé um að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.