Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 69. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 71  —  69. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um gæðaeftirlit með rannsóknum.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



    Hvaða gæðaeftirlit er með þeim rannsóknum sem AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi úthlutar fjármagni til, hvaða alþjóðlegu kröfur þurfa rannsóknirnar að uppfylla og hvaða viðmið setur sjóðurinn?