Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 70. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
3. uppprentun.

Þskj. 72  —  70. mál.
Leiðrétting.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kostnað ráðuneyta við aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     1.      Hvernig skiptist kostnaður ráðuneyta við aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni núverandi starfsmanna félagsvísindasviðs Háskóla Íslands á tímabilinu maí 2007 til nóvember 2010?
     2.      Hvernig skiptist framangreindur kostnaður eftir einstökum sérverkefnum, þjónustu og ráðgjöf milli núverandi starfsmanna félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og/eða félaga þeirra?


Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.


    Á 138. löggjafarþingi beindi Óli Björn Kárason fyrirspurn til forsætisráðherra um aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta, sbr. þskj. 1405 í máli 679. Í svari forsætisráðherra á þingskjali 1526 kom fram að ráðuneytin hefðu í fæstum tilvikum starfsmannalista háskólanna og því væri ekki hægt að nálgast upplýsingar um sundurliðun á því hvaða starfsmenn eða kennarar viðkomandi skóla hefðu komið að vinnslu viðkomandi verkefna. Af sömu ástæðu var ekki heldur hægt að svara því hvaða önnur verkefni, sem ráðuneytin létu vinna, hefðu verið unnin af núverandi eða fyrrverandi starfsmönnum eða kennurum íslenskra háskóla. Þar sem starfsmannalistar félagsvísindasviðs Háskóla Íslands eru opinberir og gerðir aðgengilegir á vef háskólans er nú kallað eftir upplýsingum um skiptingu kostnaðar milli starfsmanna deildarinnar.