Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 91. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 97  —  91. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um nýjar nefndir, ráð, verkefnisstjórnir og hópa á vegum ríkisstjórnarinnar frá 1. febrúar 2009.

Frá Birgi Ármannssyni.



     1.      Hve margar nýjar nefndir, ráð, verkefnisstjórnir, starfshópa og aðra hópa af sama tagi hafa einstök ráðuneyti og ríkisstjórnin í heild skipað frá 1. febrúar 2009?
     2.      Hverjar eru þessar nefndir, ráð, verkefnisstjórnir og hópar, hvert er hlutverk þeirra, er skipun þeirra samkvæmt heimild eða fyrirmælum í lögum, hver er skipunartíminn og hverjar þeirra hafa lokið störfum?
    Óskað er eftir upplýsingum um það hvaða einstaklingar hafa verið skipaðir, tilnefndir eða valdir með öðrum hætti til setu í þessum nefndum, ráðum, verkefnisstjórnum og hópum, hver hafi skipað eða eftir atvikum tilnefnt þá og hvort störfin séu launuð eða ólaunuð.


Skriflegt svar óskast.