Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 115. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 124  —  115. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um Sparisjóðinn í Keflavík, Spkef sparisjóð, Byr sparisjóð og Byr hf.

Frá Birgi Þórarinssyni.



     1.      Hvaða rök og hugmyndir eru að baki því að Byr sparisjóður var gerður að hlutafélagi en Sparisjóðurinn í Keflavík áfram látinn vera sparisjóður?
     2.      Hvað eiga bráðabirgðastjórnir Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs sparisjóðs að starfa lengi, hvert er hlutverk þeirra og hver ákveður og greiðir laun stjórnarmanna?
     3.      Hverjir eru kröfuhafar Sparisjóðsins í Keflavík og Byrs sparisjóðs?
     4.      Hvert er hlutverk Bankasýslu ríkisins er lýtur að Sparisjóðnum í Keflavík, Byr sparisjóði, Spkef sparisjóði og Byr hf.?
     5.      Hvernig samræmist 5 milljarða kr. lán ríkissjóðs til Byrs hf. ábendingum Bankasýslunnar um að bankakerfið sé allt of stórt?
     6.      Er unnið að stefnumótun varðandi framtíð sparisjóðakerfisins?
     7.      Hvenær verða stofnefnahagsreikningar fyrir Spkef sparisjóð og Byr hf. birtir og hvenær verða birtar upplýsingar um rekstur þessara fyrirtækja?
     8.      Er unnið að greiningu á svokölluðum stofnfjárbréfalánum, þ.e. athugaður fjöldi lána og lántaka, upphæð lána o.s.frv.?
     9.      Hefur verið unnið að tillögugerð um aðstoð við þá sem tóku slík lán og eru í flestum tilvikum í sjálfskuldarábyrgð fyrir þeim og ef svo er, hefur komið til tals að fella niður skuldir?


Skriflegt svar óskast.