Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 125. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 136  —  125. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um gúmmíkurl úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



     1.      Telur ráðherra að til greina komi af heilsufarsástæðum að banna eða takmarka notkun gúmmíkurls úr bíldekkjum, sem inniheldur krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni, á leikvöllum og gervigrasvöllum hérlendis?
     2.      Hvað mun taka langan tíma að skipta um efni á völlunum í ljósi fjölda þeirra valla þar sem slíkt efni er nú þegar?
     3.      Hvaða tilmæli, reglur eða bönn gilda um þetta efni í Þýskalandi og annars staðar á Norðurlöndum?


Skriflegt svar óskast.