Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 139  —  126. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um verðtryggð lán íslenskra heimila og fyrirtækja.

Frá Margréti Tryggvadóttur.



     1.      Hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra heimila hækkað síðan 1. febrúar 2009, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álagna af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs?
     2.      Hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra fyrirtækja hækkað síðan 1. febrúar 2009, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álagna af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs?


Skriflegt svar óskast.