Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 137. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 150  —  137. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um hlutabætur í atvinnuleysi.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Hver er að mati ráðherra reynslan af ákvæðum um hlutabætur í atvinnuleysi, þ.e. atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sem voru lögleidd með lögum nr. 131/2008?
     2.      Hversu margir einstaklingar þiggja hlutabætur nú, sundurliðað eftir kyni, aldri, búsetu og atvinnugreinum?
     3.      Hversu margir einstaklingar hafa notið hlutabóta, greint eftir kyni, aldri og búsetu?
     4.      Hversu lengi hafa menn notið hlutabóta í senn og í hversu stóru hlutfalli af dagvinnu?
     5.      Hvernig skiptast hlutabætur eftir atvinnugreinum og milli opinberra starfa annars vegar og almenna vinnumarkaðarins hins vegar?
     6.      Hefur ráðherra upplýsingar um afdrif þeirra sem hætta á hlutabótum, þ.e. hvort þeir fara í fulla vinnu eftir það eða á fullar atvinnuleysisbætur?
     7.      Hyggst ráðherra leggja til breytingar á þessu fyrirkomulagi og þá á hvern hátt?


Skriflegt svar óskast.