Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 151. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 167 — 151. mál.
til félags- og tryggingamálaráðherra um opinber framfærsluviðmið.
1. Hver eru opinber framfærsluviðmið, hvernig er framfærslugrunnurinn samansettur og hvenær var hann síðast uppfærður?
2. Stendur til að endurskoða grunninn og taka inn í hann fleiri neysluþarfir, svo sem eðlileg útgjöld er snúa að félags- og tómstundaiðkun barna og ungmenna til 18 ára aldurs?
3. Hver er upphæð opinberra framfærsluviðmiða einstaklings og til samanburðar, hver eru
a. samningsbundin lágmarkslaun,
b. elli- og örorkubætur almannatrygginga,
c. fjárhagsaðstoð sveitarfélaga,
d. skattleysismörk,
e. atvinnuleysisbætur,
f. framfærslulán Lánasjóðs íslenskra námasmanna?
4. Hvenær munu ný og endurskoðuð framfærsluviðmið taka gildi og verða þau samræmd innan stjórnkerfisins.
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 167 — 151. mál.
Fyrirspurn
til félags- og tryggingamálaráðherra um opinber framfærsluviðmið.
Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.