Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 169  —  153. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um innheimtu fésekta og afplánun í fangelsinu að Bitru.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hversu háar upphæðir hafa innheimst eftir að farið var að boða menn til afplánunar vararefsingar vegna ógreiddra fésekta í fangelsinu að Bitru?
     2.      Hafa kröfur fyrnst síðan fangelsið var opnað?
     3.      Hver er upphæð óinnheimtra fjársekta sem hafa vararefsingu á bak við sig 1. nóvember?
     4.      Er áætlað að fjölga úrræðum í fangelsiskerfinu vegna slíkra mála?


Skriflegt svar óskast.