Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 158. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 174  —  158. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999.

Flm.: Arndís Soffía Sigurðardóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ásmundur Einar Daðason,


Lilja Mósesdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Þráinn Bertelsson.



1. gr.

    Orðin „fyrirmælum yfirboðara“ í 18. gr. laganna falla brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með þessu frumvarpi er lagt til að þagnarskylduákvæði laga um Byggðastofnun verði breytt þannig að orðin ,,fyrirmælum yfirboðara“ verði felld brott en eftir standi að þagnarskylda hvíli á starfsmönnum og stjórn Byggðastofnunar samkvæmt fyrirmælum laga og eðli máls og að þagnarskylda haldist þó að látið sé af starfi.
    Það er mikilvægt að þar sem sýslað er með fjármuni sé það gert á eins gagnsæjan hátt og mögulegt er. Byggðastofnun er fjármálastofnun í eigu íslenska ríkisins og eðlilegt að ríkisstofnanir gangi fram með góðu fordæmi og opni stjórnsýslu sína. Heimildir til að gefa fyrirmæli um þagnarskyldu geta í sjálfu sér vakið tortryggni án þess að sérstakt tilefni sé til og jafnvel þó að þær séu ekki nýttar. Tilvist þeirra vekur í sjálfu sér spurningar um hver tilgangur þeirra sé, hvað það sé sem leynt skuli fara umfram lög og eðli máls og hvort þörf sé á svo víðtæku þagnarskylduákvæði. Með hliðsjón af þeirri starfsemi sem fram fer í Byggðastofnun verður ekki séð að slík þörf sé fyrir hendi. Markmiðið með breytingunni er margþætt: að opna stjórnsýslu stofnunarinnar, að taka út úr ákvæðinu þætti sem teljast óþarfir og draga úr leyndarhyggju og tortryggni í garð fjármálastofnunar í eigu ríkisins.
    Þagnarskylduákvæði gildandi laga um Byggðastofnun hefur verið óbreytt frá fyrstu lögum um Byggðastofnun, nr. 64/1985. Í greinargerð með frumvarpinu sem varð að þeim lögum segir: ,,Ákvæði þetta um þagnarskyldu er í samræmi við slík ákvæði í lögum um banka og aðrar lánastofnanir og þarfnast ekki skýringa.“ Ekki verður séð af greinargerðinni né gildandi lögum um Byggðastofnun að sérstök ástæða sé fyrir svo víðtækri þagnarskyldu starfsmanna og stjórnar Byggðastofnunar né heldur kemur þar fram til hverra hugtakið ,,yfirboðari“ tekur. Engin takmörk virðast heldur vera á því um hvers kyns mál eða málefni yfirboðari getur krafist þagnarskyldu um.
    Engin ástæða er til að hafa þagnarskylduákvæði laga um Byggðastofnun svo víðtækt sem raun ber vitni. Óbreytt er það í andstöðu við ákall samtímans um opna og gagnsæja stjórnsýslu.