Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 160. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 176  —  160. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um viðbrögð við kveðju utanríkisráðherra Bandaríkjanna 17. júní sl.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hvernig brást ráðuneytið við kveðju þeirri sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, sendi Íslendingum 17. júní sl.?
     2.      Hefur ríkisstjórnin og ráðuneytið látið reyna í verki á þann stuðning og vináttu Bandaríkjamanna sem fram kom í kveðjunni að Íslendingar gætu reitt sig á í þeim efnahagserfiðleikum sem steðjuðu að þjóðinni?
     3.      Hafa síðan aukist menningarleg og efnahagsleg tengsl landanna sem mikil áhersla er lögð á í yfirlýsingunni?
     4.      Hafi ráðherra ekki fylgt þessu boði um stuðning og vináttu eftir, nú fimm mánuðum seinna, stendur það þá til í nánustu framtíð?
     5.      Hefur það áhrif á viðbrögð við kveðjunni að leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu á fundi 17. júní að hefja formlegar viðræður við Ísland um aðild að ESB, sama dag og Hillary Clinton sendi kveðjuna?


Skriflegt svar óskast.