Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 168. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 184  —  168. mál.




Fyrirspurn



til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um varnargarða og fyrirhleðslur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli.

Frá Arndísi Soffíu Sigurðardóttur.



     1.      Hversu miklum fjármunum hefur ríkið varið til viðhalds og uppbyggingar varnargarða og fyrirhleðslna eftir flóðin af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli?
     2.      Hvaða varnargörðum og fyrirhleðslum er áformað að halda við?
     3.      Hvaða varnargarða og fyrirhleðslur er áformað að styrkja sérstaklega vegna flóðahættu?
     4.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við verkefnið?
     5.      Hvenær er áformað að verkefninu ljúki?


Skriflegt svar óskast.