Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 193. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 210  —  193. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um sáttamiðlun.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



     1.      Er ráðherra sammála niðurstöðu nefndar um mat á árangri tilraunar með sáttamiðlun í sakamálum og ef svo er, hyggst ráðherra hrinda tillögum nefndarinnar í framkvæmd?
     2.      Telur ráðherra ástæðu til að heimildir til sáttamiðlunar nái til fleiri brotaflokka en tilraunin tók til?
     3.      Hefur ráðherra hug á að beita sér fyrir því að ákvæði um sáttamiðlun verði tekin upp í lög?


Skriflegt svar óskast.