Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 4. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 224 — 4. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ásbjarnar Óttarssonar um afskriftir lána.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Um hve háa fjárhæð voru húsnæðislán gömlu bankanna afskrifuð við kaup nýju bankanna á þeim?
2. Um hve háa fjárhæð voru lán fyrirtækja afskrifuð við kaup nýju bankanna á þeim?
3. Hvað mundi það kosta lánastofnanir ef dómur Hæstaréttar frá 16. september sl. næði líka til fyrirtækja?
4. Hversu há eru þau lán til fyrirtækja sem hugsanlega mundu falla undir dóm um gengistryggð lán hjá Hæstarétti?
Svar óskast sundurliðað eftir lánastofnunum.
Ekki er mögulegt að gefa svör sundurliðuð eftir fjármálafyrirtækjum. Tölurnar sem á eftir koma byggjast á gögnum frá Fjármálaeftirlitinu.
1. Nýju bankarnir keyptu húsnæðislánin að meðaltali á 72% af kröfuvirði við yfirfærslu frá gömlu bönkunum. Hlutfallið getur verið mismunandi milli bankanna þriggja. Afföllin voru því samtals 90 milljarðar kr. miðað við upphaflegan efnahagsreikning nýju bankanna þriggja.
Í umræðu um afskriftir húsnæðislána er vert að benda á að um þriðjungur húsnæðislána bankanna varð eftir í gömlu bönkunum við hrun bankakerfisins í október 2008. Tölur Seðlabankans um útlán bankakerfisins ná aðeins til starfandi fjármálastofnana. Húsnæðislán í eigu gömlu bankanna eru því ekki tekin með í þeim gögnum eftir þann tíma.
2. Nýju bankarnir keyptu fyrirtækjalánin á að meðaltali um 40% af kröfuvirði við yfirfærslu frá gömlu bönkunum. Hlutfallið getur verið mismunandi milli bankanna þriggja. Afföllin voru því um 1.600 milljarðar kr. miðað við upphaflegan efnahagsreikning bankanna þriggja.
3. Ekki er ljóst hversu víðtækt fordæmisgildi dómur Hæstaréttar frá 16. júní hefur, þ.e. hvaða lána hann nær til hvort sem það varðar einstaklinga eða fyrirtæki. Kostnaður lánastofnana mundi ráðast af því hversu stór hluti lánasafns þeirra yrði talinn falla undir fordæmi dómanna frá 16. júní og 16. september. Ef fyrirtækjalán sem ekki væru „hrein“ erlend lán yrðu dæmd ólögmæt og endurreiknuð miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Íslands, þá gæti tap lánastofnana vegna þeirra orðið nálægt 60 milljarðar. Það skal tekið fram að forsendur þessara talna eru mjög hreyfanlegar og fjárhæðir geta því breyst með tilliti til þess.
4. Erfitt er að meta fordæmisgildi dóma Hæstaréttar í þessum málum en dómarnir varða bílalán einstaklinga. Bókfært virði lána fjármálafyrirtækja til fyrirtækja með einhverja tengingu við erlenda mynt nemur um 660 milljörðum kr. Margvísleg sjónarmið geta legið að baki gengistryggðum samningum fyrirtækja og verður að líta til þess að í slíkum tilfellum er um að ræða samningssamband tveggja aðila í atvinnurekstri. Í flestum tilvikum byggist því skuldsetning fyrirtækja í erlendri mynt eða í íslenskum krónum með gengisviðmiðun á yfirveguðu mati þar sem mörg önnur sjónarmið eru í forgrunni en í tilviki einstaklinga. Af þeim sökum eru hvorki sérstök sanngirnisrök né efnahagsleg rök fyrir því að gengistryggð lán fyrirtækja hljóti sams konar meðferð og lán til einstaklinga. Einnig er algengt að fyrirtæki séu að fullu varin fyrir neikvæðum afleiðingum lántöku í erlendum gjaldmiðli þar sem þau hafi stóran hluta tekna sinna erlendis frá. Þá býðst fyrirtækjum sem ekki njóta náttúrulegra gengisvarna að kaupa sér gengisvarnir hjá fjármálafyrirtækjum. Talið er að um helmingur fyrirtækja með erlend lán hafi á að skipa einhvers konar gengisvörnum. Þá eru afborganir gengistryggðra lána frádráttarbærar sem kostnaður í bókhaldi fyrirtækja, en einstaklingar eru algerlega óvarðir fyrir þessum neikvæðu afleiðingum óhagstæðrar gengisþróunar. Eins verður að telja í tilfelli fyrirtækja málefnalegt að líta til samningssambands fyrirtækja og fjármálastofnunar í heild í stað þess að líta aðeins til eins afmarkaðs lánasamnings.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 224 — 4. mál.
Svar