Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 157. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 235 — 157. mál.
forseta Alþingis við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um styrki frá Evrópusambandinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hyggst Alþingi sækja um aðlögunarstyrki (IPA-styrki) Evrópusambandsins eða aðra almenna styrki sem sambandið veitir umsóknarríkjum og ef svo er, hvað á að sækja um háar fjárhæðir?
2. Komi til styrkveitinga, hvenær verða styrkirnir þá greiddir út?
IPA-styrkir Evrópusambandsins hafa ekki komið til umræðu á vettvangi þeirra aðila sem samkvæmt þingsköpum hafa á hendi stjórn Alþingis eða er ætlað að fjalla um innri málefni þingsins, þ.e. forsætisnefndar og formanna þingflokka. Engin tilmæli hafa heldur komið fram um að málið verði rætt á þessum vettvangi.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 235 — 157. mál.
Svar