Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 117. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 290 — 117. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um fjölda hjúkrunar- og dvalarrýma fyrir aldraða.
1. Hvað verða mörg hjúkrunar- og dvalarrými fyrir aldraða lögð niður árin 2010 og 2011?
Í upphafi árs 2010 var hjúkrunarrýmum á hjúkrunarheimilum fækkað um 22 og hjúkrunarrýmum á heilbrigðisstofnunum um 33. Þörf fyrir vistun er ákvörðuð samkvæmt reglugerð 1000/ 2008 um vistunarmat vegna hjúkrunarrýma. Við ákvörðun um fækkun rýma var stuðst við upplýsingar um fjölda einstaklinga með vistunarmat og fjölda vannýttra rýma á liðnum árum. Í fjárlagafrumvarpi 2011 er gert ráð fyrir að fækka um 47 hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilum og um 34 vannýtt hjúkrunarrými á heilbrigðisstofnunum.
Dvalarrýmum var fækkað um 83 í ársbyrjun 2010 og í fjárlagafrumvarpi 2011 er gert ráð fyrir að fækka um 47 dvalarrými.
Alls þýðir þetta fækkun um 136 hjúkrunarrými og 130 dvalarrými á árunum 2010 og 2011.
2. Hversu mörg rúm í einbýlum munu standa auð eftir fækkunina?
Leitast er við að breyta tvíbýlum í einbýli þar sem mögulegt er. Það leiðir ekki til þess að einbýli standi auð. Sums staðar er einbýlum fækkað á svæðum þar sem framboð rýma er umfram reiknaða þörf. Uppgefinn fjöldi hjúkrunar- og dvalarrýma miðar við þá fjárveitingu sem veitt hefur verið til slíkra rýma fremur en þess húsnæðis sem kann að vera til staðar á hverjum stað. Upplýsingar um „auð“ rými í einbýli fyrir og eftir fækkun liggja því ekki fyrir.
3. Hversu mörgum starfsmönnum hefur verið og verður sagt upp vegna fækkunar hjúkrunar- og dvalarrýma?
Fækkun rýma hefur hingað til fyrst og fremst verið vegna vannýttra rýma og benda upplýsingar frá stofnunum til þess að hagræðingarkröfu hafi að mestu leyti verið mætt án uppsagna. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi er hins vegar ljóst að fyrirhuguð fækkun rýma á næsta ári mun að óbreyttu leiða til uppsagna. Áætlaður fjöldi stöðugilda sem tapast er á bilinu 0,6–0,9 fyrir hvert fullnýtt rými sem fækkað er um á hjúkrunarheimili og 0,3–0,5 á dvalarheimili. Miðað við fækkun um 81 hjúkrunarrými og 47 dvalarrými á næsta ári má búast við að störfum fækki um 45–70.
4. Hvað er gert ráð fyrir mikilli fjölgun rýma samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma á árunum 2010–2016, sundurliðað eftir árum og hjúkrunarheimilum?
Fyrir rúmu ári, 13. október 2009, samþykkti ríkisstjórnin að hefja byggingu hjúkrunarheimila samkvæmt svokallaðri leiguleið í samstarfi við níu sveitarfélög. Þessi samþykkt opnaði nýja leið til þess að fjármagna uppbyggingu hjúkrunarheimila þar sem heimamenn annast hönnun og byggingu húsnæðisins, fjármögnunin er tryggð með láni frá Íbúðalánasjóði en félags- og tryggingamálaráðuneytið, í gegnum Framkvæmdasjóð aldraðra, greiðir viðkomandi sveitarfélagi hlutdeild í húsaleigu sem ígildi stofnkostnaðar. Nú þegar hafa verið undirritaðir samningar við sex sveitarfélög um framkvæmdir samkvæmt leiguleiðinni og viðræður hafa átt sér stað við tvö af þeim þremur sveitarfélögum sem þá standa eftir.
Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akureyri, Borgarbyggð, Fljótsdalshérað, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjanesbær og Seltjarnarnes.
Markmið áætlunarinnar er tvíþætt. Annars vegar að fækka fjölbýlum og bæta þannig aðstöðu einstaklinga á hjúkrunarheimilum og hins vegar að fjölga rýmum þar sem þess er þörf með nýjum rekstrarheimildum og tilfærslum á rýmum milli svæða. Á Akureyri, í Borgarbyggð og Hafnarfirði verður ekki um raunfjölgun hjúkrunarrýma að ræða. Stór hluti rekstrarheimilda fyrir hjúkrunarrými sem fyrirhugað er að byggja í Fljótsdalshéraði og í Garðabæ er þegar til staðar. Í Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ og á Seltjarnarnesi er gert ráð fyrir að rekstrarheimildir fyrir hjúkrunarrýmin komi með tilfærslu rekstrarheimilda frá stöðum þar sem fjöldi rýma er umfram þörf og með fjármagni úr Framkvæmdasjóði aldraðra til ársins 2014, en eftir það úr ríkissjóði.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 290 — 117. mál.
Svar