Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 142. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 292 — 142. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um heilsufarslegar afleiðingar af boðuðum niðurskurði á heilbrigðisstofnunum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hverjar kunna að verða heilsufarslegar afleiðingar þeirrar tafar sem verður á því að sjúklingar komist undir læknishendur sem óhjákvæmilega fylgir boðuðum niðurskurði á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011?
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 er lögð mikil áhersla á að heilsugæsla verði áfram öflug og mönnun lækna óbreytt í heilsugæslu. Því er ekki ástæða til að ætla að tafir verði á því að sjúklingar komist undir læknishendur. Víða um landið hefur heilsugæslan getað nýtt sjúkrarými til innlagna. Fjölda þessara rýma verður að nokkru leyti betur jafnað milli heilbrigðisumdæma en þessi þáttur þjónustunnar verður áfram til staðar.
Bráðaþjónusta við landsmenn er nú þegar í föstum skorðum og ekki er ætlunin að hrófla við þeim. Alvarlegum slysum og veikindum sem krefjast sérhæfðrar þjónustu er að mestu leyti sinnt á tveimur helstu sjúkrahúsum landsins, Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri, og eru ekki fyrirhugaðar breytingar á því. Ekki er heldur gert ráð fyrir stórfelldum breytingum á þeirri almennu bráðaþjónustu sem sjúkrahús veita í öllum heilbrigðisumdæmum.
Að öllu samanlögðu er þess vænst að þær breytingar sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 hafi ekki áhrif á heilsufar landsmanna. Landlæknir hefur eftirlit með heilbrigðisþjónustu og komi fram neikvæð áhrif niðurskurðarins á heilsu verður brugðist við því.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 292 — 142. mál.
Svar