Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 282. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 325  —  282. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um prest á Þingvöllum.

Flm.: Árni Johnsen, Gunnar Bragi Sveinsson, Ragnheiður E. Árnadóttir,


Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir.



    Alþingi ályktar að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að semja við þjóðkirkjuna um fasta þjónustu prests tengda Þingvöllum og Þingvallakirkju þannig að guðsþjónustur megi vera þar allar helgar ársins.

Greinargerð.


    Til skamms tíma var fast prestsembætti á Þingvöllum en með aflagningu þess setti þjóðkirkjan og eins íslenska þjóðin ofan. Á Þingvöllum slær Íslandsklukkan og gamla litla kirkjan er tákn um auðmýkt, lítillæti og þakklæti íslensku þjóðarinnar fyrir kristnina, þann sið sem tekinn var upp á Alþingi á Þingvöllum árið 1000 og gerði Íslendinga að einni þjóð. Á rótum trúar, hefðar og siðar hefur íslenska þjóðin komist í gegnum þykkt og þunnt með ótrúlegu æðruleysi þótt á móti hafi blásið oft og tíðum. Það er engin spurning um það að samkomur þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga í Þingvallakirkju yrðu uppbót fyrir íslensku þjóðina og það er ekkert sem bendir til annars en að margir mundu kunna að meta þá þjónustu að messað væri í Þingvallakirkju um hverja helgi ársins. Til að mynda gæti það verið auðveld lausn á þessari ósk að fela prestum landsins að skiptast á að messa í Þingvallakirkju. Slíkt ætti að vera auðvelt fyrir okkar skeleggu prestastétt og metnaðarfull tilbreyting hvaðan sem menn koma að.
    Skipulagðar samkomur í Þingvallakirkju sem fastur liður mundu stækka helgi Íslands og ekki síst helgi Þingvalla. Fyrir litla þjóð veiðimannasamfélags er mjög mikilvægt að ankerin séu á sínum stað hverju svo sem fram vindur að öðru leyti.