Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 317. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 384  —  317. mál.
Fyrirsögn.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um Varnarmálastofnun.

Frá Ragnheiði E. Árnadóttur.



     1.      Hefur verkefnisstjórn sem var skipuð samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í varnarmálalögum, nr. 34/2008, sbr. lög nr. 98/2010, skilað tillögum til ráðherra? Ef svo er, hverjar eru tillögurnar og hvenær hyggst ráðherra kynna þær fyrir utanríkismálanefnd, sbr. fyrrnefnt bráðabirgðaákvæði?
     2.      Hvernig ætlar ráðherra, í ljósi þess knappa tíma sem eftir er til áramóta, að framkvæma varnarskuldbindingar þjóðarinnar frá og með 1. janúar nk.?
     3.      Hvernig verður eftirlit með íslenskri lofthelgi áfram tryggt, svokölluð loftrýmisgæsla?
     4.      Verður varnaræfingin Norðurvíkingur haldin á næsta ári í samræmi við fyrri áætlanir?
     5.      Hver er kostnaðurinn við að leggja Varnarmálastofnun niður og flytja verkefni hennar til annarra stofnana?