Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 331. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 398 — 331. mál.
til umhverfisráðherra um umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar.
1. Hefur framkvæmdaraðili Kárahnjúkavirkjunar uppfyllt þau 20 tölusettu skilyrði sem sett voru í úrskurði umhverfisráðherra 20. desember 2001 um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar og ef svo er, hvernig var þeim framfylgt?
2. Telur ráðherra að fullnægjandi bakgrunnsupplýsinga hafi verið aflað um ástand náttúrufars og lífríkis á áhrifasvæðum framkvæmdanna áður en þær hófust?
3. Komu upp tilvik eða aðstæður á framkvæmdatíma sem kölluðu á frekari rannsóknir en þær sem mat á umhverfisáhrifum byggðist á?
4. Hafa komið fram ábendingar um nauðsyn frekari rannsókna eða lengri vöktunartíma en fram kemur í skilyrðunum og ef svo er, hvaða ábendingar?
5. Hvernig hefur verið fylgst með náttúrufari og lífríki á áhrifasvæði Hálslóns og Kárahnjúkavirkjunar að framkvæmdum loknum?
6. Hafa leyfisskyld efni, eða efnasambönd sem geta haft skaðleg áhrif á lífríkið, verið notuð til þess að hefta fok af bökkum Hálslóns og/eða til þess að þétta aðrennslisgöng virkjunarinnar? Ef svo er, hvaða efni hafa verið notuð og hvernig var staðið að leyfisveitingum og vöktun vegna þeirra?
7. Telur ráðherra, að fenginni reynslu af þeim vatnsárum sem virkjunin hefur verið í rekstri, vera þörf á viðvarandi mótvægisaðgerðum og ef svo er, hverjar eru þær þá helstar?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 398 — 331. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar.
Frá Þuríði Backman.