Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 332. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 399  —  332. mál.




Fyrirspurn



til félags- og tryggingamálaráðherra um réttindi fatlaðs fólks.

Frá Þuríði Backman.


     1.      Hvenær má vænta þess að framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla verði kynnt?
     2.      Hvernig miðar endurskoðun laga og reglugerða með tilliti til innleiðingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks?
     3.      Hvenær hyggst ráðherra leggja fram frumvarp um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks?


Skriflegt svar óskast.