Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 111. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 410  —  111. mál.




Svar



sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur um áhrif veiðarfæra á lífríki sjávar o.fl.

     1.      Hafa verið gerðar sérstakar rannsóknir á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar, þ.e. áhrifum:
                  a.      dragnótar,
                  b.      botnvörpu,
                  c.      flotvörpu?

    Rannsóknir hafa verið gerðar hér við land sem beinast að veiðiálagi veiðarfæra. Þá hafa rannsóknir verið gerðar víða erlendis á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar og er hægt í einhverjum tilvikum að draga af þeim ályktanir og heimfæra á íslenskar aðstæður sem snúa að áhrifum dragnótar á lífríkið.

a. Dragnót.
    Fjórar athuganir eða samantektir um áhrifum dragnótar á lífríkið hafa verið gerðar hér við land:
     –      Árni Friðriksson 1934. Nokkrar athugasemdir við togstreituna um dragnótina. Ægir 27: 114–117.
     –      Guðni Þorsteinsson 1990. Athugun á atferli fisks við dragnótaveiðar. Sjávarfréttir 18 (1): 52–61.
     –      Hrafnkell Eiríksson 2008. Dragnót og dragnótaveiðar við Ísland. Hafrannsóknastofnunin. Fjölrit 140, 19 bls.
     –      Guðrún G. Þórarinsdóttir o.fl. 2010. Áhrif dragnótaveiða á lífríki botns í innanverðum Skagafirði. The impact of a fly-dragging fishery on the bottom community in Skagafjördur. Hafrannsóknir 151. Reykjavík 2010. 19 bls.
    Erlendar rannsóknir á dragnót hafa verið nokkrar og er yfirlit með stuttum úrdráttum að finna í nýútkominni skýrslu vinnuhóps um veiðarfæri og atferli fiska á vegum Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) með þátttöku sérfræðings Hafrannsóknastofnunarinnar:
     –      ICES WGFTFB Report 2010. SCICOM, ICES CM 2010/SSGESST:14. Sjá kafla 14 og þá sérstaklega 14.5.2 Enviromental Impact.

b.     Botnvarpa.
    Á botnvörpu hafa einnig verið gerðar nokkrar íslenskar athuganir og er þar helst að nefna:
     –      Stefán Áki Ragnarsson & Lindegarth, M. 2009. Testing hypotheses about temporary and persistent effects of otter trawling on infauna: changes in diversity rather than abundance. Ecology Progress Series 385: 51–64.
     –      Stefán Áki Ragnarsson & Sigmar A. Steingrímsson 2001. Áhrif veiða með botnvörpu á botndýr. Morgunblaðið, Úr verinu, 6. september 2001.
     –      Stefán Áki Ragnarsson & Steingrímsson, Sigmar A. 2003. Spatial distribution of otter trawl effort in Icelandic waters: Comparison of measures of effort and implications for benthic community effects of trawling activities. ICES Journal of Marine Science 60: 1200–121.
    Fjölmargar erlendar rannsóknir á áhrifum botnvörpu á lífríki hafa verið gerðar og beinast að mismunandi þáttum. Í því sambandi skal bent á nýlegt rit „Seas at risk“, sem inniheldur upplýsingar um málefnið:
     –      J. Gascoigne, E. Willsteed. 2009. Moving towards low impact fisheries in Europe, Policy Hurdles & Actions. Seas at risk. [nov.2010] www.seas-at-risk.org/news_ n2.php?page=318

c. Flotvarpa.
    Rannsóknir sem gerðar hafa verið á flotvörpu hér á landi hafa beinst að veiðum á kolmunna og loðnu:
    –     Haraldur Arnar Einarsson, Einar Hreinsson and Sigurður Þór Jónsson. 2007. Direct observations of large mesh capelin trawls; evalutation of mesh escapements and gear efficiency. ICES ASC CM 2007/Q:12.
    –     Haraldur Arnar Einarsson. Meðaflaskilja í flotvörpur. Hafrannsóknastofnun, október 2009. (Skýrsla til AVS).
    Nokkur fjöldi erlendra rannsókna á flotvörpum hafa einnig verið gerðar en þó alls ekki í sama mæli og á botnvörpum. Hafrannsóknastofnunin í Noregi vinnur að rannsókn þar sem markmiðið er að veiða bolfisk með flotvörpu, m.a. vegna þess að veiðarfærið snertir ekki botn við veiðar:
    –      www.imr.no/nyhetsarkiv/2010/november/ny_teknologi_skal_gjore_torsketraling_stuereint/nb-no
    –     ICES WGFTFB Report 2006, ICES FTC, ICES CM 2006/FTC:06. Sjá kafla 9.

     2.      Hvað er vitað um áhrif þessara veiðarfæra á:
                  a.      sjávargróður og sjávarbotn,
                  b.      ástand fiskjar, einkum smugufiskjar, þ.e. fiskjar sem sleppur úr veiðarfærum?


a. Áhrif á sjávargróður og sjávarbotn.
    Dragnót er létt veiðarfæri í sjó og aðeins hægt að nota á tiltölulega sléttum botni. Veiðarfærinu er venjulega kastað á sand-, leir- eða malarbotn á grunnu vatni (= 100 m). Á því dýpi gætir uppróts sets af völdum veðurs, sem haft getur áhrif niður á allt að 100 m dýpi í miklum stormum. Botndýralíf á grunnsævi er því aðlagað að slíku raski. Á áðurnefndum botngerðum er lítið um stórvaxin áföst dýr enda þola þau illa þann óstöðuleika sem gjarnan er á slíkum botni. Flest botndýr sem þarna þrífast finnast í setinu og geta þau auðveldlega rótast upp þegar dragnótin er dregin yfir botn, líkt og gerist við upprót sets af völdum veðurs.
    Áhrif botnvörpu er háð botnlagi og þeim búsvæðum/dýrum sem eru á togslóðinni. Botnvarpan er notuð á mismunandi botnlagi á öllum hafsvæðum við Ísland. Innfjarða hefur hún löngum verið notuð við rækjuveiðar. Þá eru humarveiðar stundaðar með humarvörpu að ótöldum bolfiskveiðum. Hlerarnir sem eru dregnir á botni hafa áhrif á botndýralíf en flatarmál röskunar af þeirra völdum er lítið í samanburði við flatarmál fótreipis/steinastikla. Á botni þar sem mjög mikið er af viðkvæmum tegundum getur botnvarpan haft langvarandi áhrif á botndýralíf. Viðkvæm búsvæði finnast í meira mæli á miklu dýpi og gjarnan þar sem hart undirlag er. Á grunnsævi þar sem botndýralíf er aðlagað að uppróti vegna veðurs hefur botnvarpan minni áhrif. Það hefur m.a. verið kannað hér á landi á 30 m dýpi (sjá b-lið hér að framan). Með auknu dýpi þar sem viðkvæmari tegundir er að finna, geta áhrifin á hinn bóginn verið umtalsverð, t.d. þar sem svampar og kórallar eru. Unnið er að kortlagningu búsvæða kóralla með það að markmiði að meta umfang og ástand þeirra svæða. Þessar rannsóknir hafa leitt til friðunar slíkra búsvæða fyrir veiðum. Auka þyrfti kortlagningu annarra svæða. Togveiðar á svæðum þar sem botnlæg egg fiska eru (t.d. egg steinbíts) geta hugsanlega valdið hnjaski og þar með haft áhrif á viðkomu stofnsins.
    Flotvarpa hefur í eðli sínu engin áhrif á botndýralíf og því síður á sjávargróður.
    Í fyrirspurninni er ekki minnst á önnur veiðarfæri notuð hér á landi. Þess ber þó að geta að öll veiðafæri sem notuð eru á botni hafa einhver áhrif. Sýnt hefur verið fram á skaðsemi á lífríki botns vegna neta, gildra og línu sem lagðar eru á botn. Umfang áhrifa þessara staðbundu veiðarfæra fer að sjálfsögðu eftir hversu mikið þau eru notuð og hvar.

b. Ástand fisks sem sleppur.
    Hlutur þess fisks sem sleppur frá veiðarfærum drepst óhjákvæmilega. Þetta á jafnt við um veiðar með vörpum og krókum. Lífslíkur fiska sem sleppa frá veiðarfærum hafa verið nokkuð rannsakaðar, en enn er ýmsu ósvarað þar að lútandi. Munur er milli fisktegunda og stærðar þeirra hvað þær þola af hnjaski vegna veiðarfæra. Það er hins vegar ekki möskvasmugið sjálft sem veldur mestum afföllum, heldur getur streita og þreyta vegna ferðarinnar gegnum vörpuna einnig haft mjög mikil áhrif. Tegundir eins og þorskur og ufsi þola þetta vel, en tegundir eins og ýsa, lýsa og síld eru viðkvæmari og eru það fyrst og fremst ungviði þessara tegunda sem eru viðkvæmust fyrir afföllum. Þættir svo sem hitastig sjávar, ástand fisks og toghraði eru líklegir áhrifaþættir. Ef heimfærðar eru niðurstöður erlendra rannsókna yfir á aðstæður hér við land má reikna með um og yfir 15% afföllum af ýsu, 20 sm og smærri, sem sleppur út í drætti við fjögurra hnúta togferð. Afföllin minnka síðan með fisklengd og eru nær engin við 30 sm lengd.
    Hluti fisks fer undir botnvörpu, en að hve miklu leyti sá fiskur skaddast og/eða deyr er órannsakað. Rannsóknir hafa sýnt að hluti fisks sem sleppur við botnvörpuveiðar gerir það við botn en 20–40% sleppa í hífingu eða við yfirborð. Leiða má líkur að því að fiskur sem sleppur í hífingu og við yfirborð hafi minni lífslíkur en sá sem sleppur við botn.
    Hér við land hafa verið gerðar nokkrar rannsóknir á lífslíkum rækju og fisks eftir snertingu við veiðarfæri. Hlutfall eftirlifandi rækju eftir smug úr rækjuvörpu var yfirleitt hátt. Þá var gerð rannsókn á lífslíkum þorska eftir brottkast frá handfæraveiðum og síðar svipuð rannsókn þar sem línufiskur var einnig rannsakaður. Í báðum þessum tilfellum kom í ljós að hátt hlutfall fisks drapst eftir veiðar á krók.
    Almennt er talið að lífslíkur fiska eftir möskvasmug séu meiri úr dragnót en botnvörpu, enda styttra veiðiferli og dregið hægar. Eftirfarandi rannsóknir voru gerðar á lífslíkum fisks og rækju eftir veiði á krók og í rækjuvörpu:
    –     Guðni Þorsteinsson. 1995. Survival of shrimp and small fish in the inshore shrimp fishery in Iceland. ICES Study Group on Unacconted Fishing Mortality in Fisheries, Aberteen, april 1995.
    –     Guðni Þorsteinsson. 1996. Overlevelse av reker som kastes ut i trålfiske nord for Island. Bidødelighet i nordiske trålfiskerier. Volum I: Feltforsøk. Nord 1996:16. p 105–110.
    –     Ólafur K. Pálsson, Haraldur A. Einarsson, Höskuldur Björnsson 2002: Lífslíkur smáþorsks sem veiðist á handfæri. Ægir, 95(1):35–37.
    –     Palsson, Olafur K., Einarsson, H. A. and Bjornsson, H. 2003. Survival experiments of undersized cod in a hand-line fishery at Iceland. Fish. Res., 61 (2003) 73–86.

    3.     Liggja fyrir upplýsingar, og þá hverjar, um:
             a.     hlutfall smugufiskjar við flotvörpuveiðar,
             b.     afdrif fiskjar sem smýgur úr flotvörpu,
             c.     áhrif flotvörpu á þær fiskitorfur sem veiðarfærin fara í gegnum?


a. Hlutfall smugufisks.
    Þessi spurning er í eðli sínu svipuð og b-liður 2. tölul. fyrirspurnarinnar nema hvað hún beinist að flotvörpu eingöngu, því er flotvarpa ekki nefnd í svari við 2. tölul. heldur aðeins hér. Fremstu möskvar flotvörpu eru gjarnan nokkrir tugir metrar að stærð. Ljóst er að fiskur getur auðveldlega smogið slíka möskva, jafnvel án þess að verða þeirra var.
    Rannsókn var gerð á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar árið 2007 sem beindist að því að meta hve mikið af loðnu sleppur frá flotvörpu við loðnuveiðar (sjá svar við c-lið 1. tölul.). Lítill hluti þeirrar loðnu sem vart var við á bergmálsmælum skilaði sér sem afli. Það eru hins vegar hreinar getgátur hve mikið af loðnu slapp fyrir framan vörpuna og hve mikið í gegnum möskva hennar. Líklegt má teljast að loðna, sem og aðrar fisktegundir fari að einhverju leyti gegnum möskva vörpunnar. Breytileiki milli tegunda er trúlega nokkur og er einnig háður aðstæðum og gerð veiðarfæris í notkun.

b. Afdrif fiska sem smjúga úr flotvörpu.
    Um afdrif þeirra fiska sem sleppa frá flotvörpu er lítið vitað enda erfitt viðfangsefni til rannsókna. Þó er þekkt frá rannsóknum úr Eystrasalti að smásíld er viðkvæm fyrir smugi/ferð gegnum vörpu (sbr. svar við b-lið 2. tölul.).

c. Áhrif flotvörpu á fiskitorfur.
    Áhrif flotvörpu á þær fiskitorfur sem veiðarfærin fara í gegnum hafa ekki verið sérstaklega rannsökuð.

    4.     Hversu hátt hlutfall meðafla (bolfisks og seiða) sem kemur í flotvörpu fer í bræðslu og um hve mikið magn er að ræða í tonnum talið?
    Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu veiddu uppsjávarveiðiskip alls 399.691 tonn í flotvörpu á fiskveiðiárinu 2009/2010. Þar af voru 0,11% eða 435 tonn meðafli, þ.e. ekki þær tegundir sem sótt var í við veiðarnar.
    Ekki er hægt að rekja í opinberum tölum hvernig þessum meðafla er ráðstafað, þ.e. hversu mikið af honum fer til bræðslu.

    5.     Hefur ráðuneytið brugðist við, eða hefur í hyggju að bregðast við, vísbendingum sem fram hafa komið um áhrif veiðarfæra á lífríki sjávar?

    Ráðuneytið hefur í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar unnið að friðunaraðgerðum á grunnslóð fyrir dregnum veiðarfærum. Vakin skal athygli á að í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands eru togveiðar almennt bannaðar, þ.e. „Íslenskum skipum eru bannaðar veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi Íslands nema á þeim veiðisvæðum og veiðitímum sem tilgreind eru ...“ Almennt eru veiðar með fyrrgreindum veiðarfærum ekki leyfðar innan flóa og fjarða, þó að undanþáguheimildir hafi verið veittar fyrir veiðar með dragnót. Í fjölritum Hafrannsóknarstofnunnar númer 140 eftir Hrafnkel Eiríksson, „Dragnót og dragnótaveiðar við Ísland. The Danish seine fisheries in Iceland.“ segir á bls. 18:
    „Næsta öruggt má telja að skynsamlegt væri að loka tilteknum uppeldissvæðum fiskistofna
fyrir dragnótaveiðum eins og gert er fyrir veiðum með botnvörpu af ýmsum ástæðum, mest vegna hás hlutfalls af smáfiski. Á þessu stigi málsins býr Hafrannsóknastofnunin hins vegar ekki yfir þeim upplýsingum og gögnum sem nauðsynlegar eru fyrir tillögur af því tagi. Fyrsta skrefið gæti þó verið að takmarka dragnótaveiðar á innanverðum fjörðum þar sem eru líklegar uppeldisstöðvar fyrir bæði flatfisk og bolfisktegundir.“ ( www.hafro.is/Bokasafn/Timarit/fjolrit-140.pdf)
    Á þessu ári gaf ráðuneytið út nýja reglugerð um bann við dragnótaveiðum í sjö fjörðum. Þeir eru Önundarfjörður, Hrútafjörður, Miðfjörður, Húnafjörður, Skagafjörður, Loðmundarfjörður og Seyðisfjörður. Lokunin tekur einkum til svæða innan fjarða. Ráðuneytið telur að leggja beri áherslu á að dragnótaveiðar fari ekki fram í innfjörðum.
    Í lögsögu Íslands eru stór svæði afmörkuð þar sem takmarkanir eru á notkun veiðarfæra, sbr. eftirfarandi uppdrátt. Á stórum svæðum eru togveiðar ekki leyfðar, á öðrum svæðum eru togveiðar eingöngu leyfðar með meðafla- eða smáfiskaskiljum. Einnig eru afmörkuð svæði þar sem eingöngu eru leyfðar línu- og netaveiðar. Við Suðurland hafa kóralsvæði verið friðuð fyrir veiðum.
    Fyrirhugað er að ráðuneytið vinni frekari tillögur að takmörkun dragnótaveiða á næstunni.

    6.     Er meðafli sem hafnar í bræðslu reiknaður með aflaheimildum viðkomandi veiðiskipa eða er hann dreginn frá kvóta þeirra?
    Af þeim 435 tonna meðafla sem vísað er til í svari við 4. tölul. fyrirspurnarinnar voru 119 tonn, eða 0,03%, heildarafla uppsjávarveiðiskipa í flotvörpu aðrar kvótabundnar tegundir, sem dragast frá aflaheimildum viðkomandi skipa.

    7.     Eru í gildi sérstök lög um flotvörpuveiðar innan lögsögu ESB-ríkja, Chile og Bandaríkjanna?
    8.     Samræmast flotvörpuveiðar löggjöf og viðurkenndum veiðiaðferðum erlendra ríkja?
    Lögsögu ESB er skipt eftir hafsvæðum, þ.m.t. Eystrasalti, Norðursjó, ýmsum undirsvæðum í Atlantshafi, og strandsvæðum landa. Á hinum ýmsu undirsvæðum gilda mismunandi reglur um veiðar, þar með um notkun veiðarfæra, veiðiskilja og skipagerða og á mismunandi tímum. Við veiðar á ýmsum uppsjávarfiski er flotvarpa leyfð. Nánari upplýsingar er að finna á vef ESB um fiskveiðar: eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=OJ:L: 1998:125:0001:0036:EN:PDF.
    Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um flotvörpuveiðar í lögsögu Síle eða Bandaríkjanna. Hins vegar mun flotvarpa vera notuð við veiðar á ýmsum stofnum uppsjávarfiska í ESB og vísast þar til framangreindrar vefslóðar ESB um fiskveiðimál. Í lögsögu Noregs eru flotvörpuveiðar ekki leyfðar við botnfiskveiðar norðan 62. gráðu norðlægrar breiddar. Hins vegar munu nú standa yfir í Noregi tilraunaveiðar með flotvörpu, með það að markmiði að kanna hvort leyfa eigi flotvörpuveiðar á vissum svæðum og/eða ákveðnum fisktegundum norðan 62. gráðu.
    Þó að ráðuneytið hafi ekki tiltækar nákvæmar upplýsingar um lagaramma einstakra þjóða varðandi flotvörpuveiðar má benda á að fjölmargar erlendar þjóðir sem stunda veiðar á úthafskarfa í NA-Atlantshafi, þ.m.t. Norðmenn, Rússar og ESB-þjóðir, nota flotvörpu við þær veiðar.
    Ráðuneytið mun leitast við að afla frekari upplýsinga um flotvörpuveiðar annarra þjóða, en taka mun nokkurn tíma að formleg svör erlendra stjórnvalda um það efni berist.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.