Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 347. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 425  —  347. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um mat á kostnaði við rekstur sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Er kostnaður við rekstur sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana m.a. metinn með því að bera saman sams konar þjónustu á Landspítala og öðrum stofnunum? Ef svo er, hvernig er þessi samanburður metinn og reiknaður?
     2.      Hvernig verður því mati háttað ef sambærileg þjónusta verður lögð niður á öðrum stofnunum en Landspítala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri?



Skriflegt svar óskast.