Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 439  —  260. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.

     1.      Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
    Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 hefur heildarstöðugildafjöldi verið á bilinu 22–24 eftir því hvort stöður starfsmanna í fæðingarorlofi hafa verið mannaðar eða ekki. Þessi fjöldi er fyrir utan aðstoðarmann ráðherra og ráðherrann sjálfan þar sem þeir eru ekki á launaskrá ráðuneytisins. Með flutningi efnahagsmála til viðskiptaráðuneytisins fékk ráðuneytið tvo starfsmenn frá forsætisráðuneytinu og tvo starfsmenn frá fjármálaráðuneytinu. Einn starfsmaður fór frá ráðuneytinu með málaflokki neytendamála til dóms- og mannréttindaráðuneytis. Tveir til fjórir starfsmenn eru á þessu tímabili í fæðingarorlofi og ráðið hefur verið flestar þær stöður tímabundið. Með komu nýs ráðherra í september 2010 fór einn bílstjóri yfir til félagsmálaráðuneytisins og annar frá félagsmálaráðuneytinu kom í hans stað. Einn lögfræðingur, einn skrifstofustjóri, ráðuneytisstjóri og ritari hættu á tímabilinu fyrir utan flutning bílstjóra. Ráðning í lögfræðistöðuna hefur farið fram en ekki hefur verið ráðið í ritarastöðu, nýr ráðuneytisstjóri tók við 1. desember. 1. október 2010 voru starfandi í ráðuneytinu fjórir skrifstofustjórar, 14 sérfræðingar, tveir stjórnarráðsritarar, einn móttökuritari, einn bílstjóri, einn ritara ráðherra, fjórir starfsmenn voru í fæðingarorlofi og ráðuneytisstjóri var væntanlegur. Starfsmenn alls eru 24, 15 kvenmenn og 9 karlmenn. Launakostnaður með launatengdum gjöldum fyrir tímabilið 1. janúar 2009 til 1. október 2010 er samtals 295,7 millj. króna.

     2.      Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
    Laun stafsmanna í ráðuneytinu voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin nam 3–10% og náði til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þús. kr. Lækkun launaútgjalda náðist með fækkun yfirvinnueininga en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var hverjum og einum kynnt útfærslan á fundi og þeim var jafnframt afhent bréf þar sem breytingin var tilkynnt með þriggja mánaða fyrirvara samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um.

     3.      Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
    Ráðuneytið hefur tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu umrætt tímabil. Yfirlitið nær yfir fjárlagalið aðalskrifstofu og ýmissa verkefna á þess vegum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     4.      Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?

    Þegar ný úrlausnarefni og verkefni koma upp er ávallt reynt að leysa þau af sérfræðingum og starfsfólki innan Stjórnarráðsins. Meginþorri verkefna sem upp koma í ráðuneytinu er leystur með þeim hætti. Ætíð koma þó upp einhver verkefni þar sem talin er þörf á utanaðkomandi sérþekkingu og er þá leitað til sérfræðinga og ráðgjafa á viðkomandi sviðum, m.a vegna samráðs til að tryggja aðkomu hlutlausra sérfræðinga, sbr. þau tilvik og verkefni sem tilgreind eru hér að framan.