139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 441 — 137. mál.
Svar
félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um hlutabætur í atvinnuleysi.
1. Hver er að mati ráðherra reynslan af ákvæðum um hlutabætur í atvinnuleysi, þ.e. atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sem voru lögleidd með lögum nr. 131/2008?
Ákvæðunum um hlutabætur í atvinnuleysi var ætlað að koma til móts við þær breytingar sem urðu á íslenskum vinnumarkaði í kjölfar efnahagsþrenginganna haustið 2008. Á þeim tíma hvatti forysta atvinnulífsins fyrirtæki sem áttu í tímabundnum rekstrarvanda til að skoða þann kost að skerða starfshlutfall starfsmanna sinna fremur en að grípa til uppsagna. Var ákvæðunum því ætlað að stuðla að því að fleiri héldu störfum en ella og að dregið yrði úr þeim áhrifum sem ákvarðanir vinnuveitenda um skerðingu starfshlutfalls kynnu að hafa á réttindi launafólks.
Ákvæðin hafa almennt þótt reynast vel og hafa ekki síst sýnt ágæti sitt sem vinnumarkaðsúrræði, þar sem að starfsmenn eru áfram virkir á vinnumarkaði í að minnsta kosti 50% starfshlutfalli, í stað þess að missa hugsanlega vinnu sína að fullu. Ákvæði til bráðabirgða V í lögum um atvinnuleysistryggingar sem fjallar um rétt launafólks til atvinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli hefur reynst konum betur en körlum en mun fleiri konur hafa nýtt sér þann rétt sem ákvæðið veitir.
Ákvæði til bráðabirgða VI í lögum um atvinnuleysistryggingar fjallar um rétt sjálfstætt starfandi einstaklinga til atvinnuleysisbóta vegna verulegs samdráttar í rekstri þeirra reyndist þegar í upphafi nokkuð flókið í framkvæmd þar sem erfiðlega reyndist að meta samdrátt í rekstri sjálfstætt starfandi einstaklinga og hvað gæti talist tilfallandi verkefni. Alþingi samþykkti því breytingar á ákvæðinu með lögum nr. 134/2008, um breytingu á lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, og lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, þannig að hver og einn sjálfstætt starfandi einstaklingur getur nú nýtt sér þetta úrræði í allt að þrjá mánuði samfellt í því skyni að bregðast við tímabundnum samdrætti í rekstrinum. Eftir þessa breytingu hefur ákvæðið reynst vel í framkvæmd.
Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp þar sem m.a. er lagt til að framlengdur verði til 30. júní 2011 gildistími fyrrnefndra ákvæða til bráðabirgða V og VI í lögum um atvinnuleysistryggingar.
2. Hversu margir einstaklingar þiggja hlutabætur nú, sundurliðað eftir kyni, aldri, búsetu og atvinnugreinum?
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru í október 2010 samtals 1.903 einstaklingar sem skráðir voru á atvinnuleysisskrá í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli, eða 623 karlar (33%) og 1.280 konur (67%). Þar af fengu 1.179 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V í lögum um atvinnuleysistryggingar eða 824 konur (70%) og 355 karlar (30%).
Samtals eiga 1.123 af þeim 1.903 einstaklingum sem voru í október 2010 skráðir á atvinnuleysisskrá í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli lögheimili á höfuðborgarsvæðinu, 190 á Suðurnesjum, 74 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum, 24 á Norðvesturlandi, 207 á Norðausturlandi, 50 á Austurlandi og 127 á Suðurlandi. Meiri hluti þeirra sem fengu á þessu tímabili greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V á lögheimili á höfuðborgarsvæðinu eða 716 einstaklingar (61%) en fæstir eiga lögheimili á Vestfjörðum eða 12 einstaklingar (1%).
Aldursdreifing er nokkuð jöfn enda þótt flestir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi séu í aldurshópunum 20–30 ára (456) og 30–40 ára (467). Þegar eingöngu eru skoðaðir þeir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V eru flestir í aldurshópunum 30–40 ára (302) og 40–50 ára (270).
Í lok október voru 32 sjálfstætt starfandi einstaklingar skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða VI vegna verulegs samdráttar í rekstri þeirra.
Tafla 1 sýnir skiptingu þeirra eftir starfsgreinum sem voru í október 2010 skráðir á atvinnuleysisskrá í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli.
Tafla 1. Fjöldi einstaklinga sem voru í október 2010 skráðir á atvinnuleysisskrá í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli, skipt eftir starfsgreinum.
| 01. Landbúnaður | 15 |
| 02. Fiskveiðar | 21 |
| 03. Fiskvinnsla | 30 |
| 04. Iðnaður/hráefnav. | 192 |
| 05. Veitur og endurveitur | 10 |
| 06. Mannvirkjagerð | 139 |
| 07. Verslun | 367 |
| 08. Flutningar | 104 |
| 09. Gisting og veitingar | 100 |
| 10. Upplýsingar og fjarskipti | 53 |
| 11. Fjármál og tryggingar | 50 |
| 12. Sérfr.starfs., faste. | 165 |
| 13. Ýmis sérhæfð þjónusta | 209 |
| 14. Menning/íþróttir/félög | 81 |
| 15. Opinber stjórnsýsla | 26 |
| 16. Fræðslustarfsemi | 73 |
| 17. Heilbrigðisstarfsemi | 153 |
| Óvíst | 114 |
| Heimild: Vinnumálastofnun. |
3. Hversu margir einstaklingar hafa notið hlutabóta, greint eftir kyni, aldri og búsetu?
Frá haustmánuðum 2008 hafa verið sveiflur í fjölda þeirra sem fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli. Fjöldi þeirra var mestur í mars 2009 eða rúmlega 3.200 einstaklingar en þar af voru 2.105 einstaklingar sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V í lögunum samhliða skertu starfshlutfalli. Í ársbyrjun 2009 nýtti hærra hlutfall karla en kvenna sér atvinnuleysisbætur á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V samhliða skertu starfshlutfalli, en í mars það ár voru 57% þeirra sem voru í skertu starfshlutfalli karlar en í árslok 2009 voru karlar um 40% og konur 60%. Fjöldi þeirra sem nýttu sér ákvæði til bráðabirgða V var nokkuð jafn á árinu 2009 þegar á heildina er litið, eða 51% konur og 49% karlar.
Það sem af er ársins 2010 hefur hins vegar orðið fækkun meðal þeirra sem fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli. Í janúar 2010 fengu 2.588 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli eða um 16% þeirra sem voru á þessu tímabili skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun. Þar af fengu 1.516 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V í lögum um atvinnuleysistryggingar eða 891 kona (59%) og 625 karlar (41%). Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru í október 2010 samtals 1.903 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá, í hlutastarfi eða í skertu starfshlutfalli, eða 623 karlar (33%) og 1.280 konur (67%). Þar af fengu 1.179 einstaklingar greiddar atvinnuleysisbætur vegna skerts starfshlutfalls á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða V í lögum um atvinnuleysistryggingar eða 824 konur (70%) og 355 karlar (30%). Ekki liggja fyrir ástæður þess að fækkun hefur orðið meiri meðal karla en kvenna.
Mynd 1 sýnir þróun eftir kyni og landshlutum á fjölda þeirra sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá og fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 1. Þróun fjölda þeirra sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá
og fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi
eða skertu starfshlutfalli, eftir kyni og landshlutum.
4. Hversu lengi hafa menn notið hlutabóta í senn og í hversu stóru hlutfalli af dagvinnu?
Flestir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli eru í 25–75% starfshlutfalli. Starfshlutfall miðast við fullt starf og kemur hlutfallið fram í vinnuveitandavottorði. Ekki eru til upplýsingar um það hversu lengi hver og einn einstaklingur hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli heldur eingöngu í hversu langan tíma einstaklingar hafa í heild fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Skv. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eiga þeir sem eru tryggðir samkvæmt lögunum rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár. Tafla 2 sýnir starfshlutfall (%) og þann fjölda mánaða sem einstaklingar sem voru skráðir á atvinnuleysisskrá í október 2010 samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli hafa verið á atvinnuleysisskrá. Samkvæmt töflunni höfðu flestir fengið greiddar atvinnuleysisbætur í 12–24 mánuði eða 987 en fjöldi þeirra sem höfðu fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en eitt ár var aðeins minni eða 804. Samtals höfðu 112 einstaklingar fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli í meira en tvö ár.
Tafla 2.
Lengd þess tíma sem fólk hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur
samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli.
| Starfshlutfall | Mánuðir nýttir af tímabili sem |
||
| Karlar | 12 mánuðir eða minna | 12–24 mánuðir | 24–36 mánuðir |
| 0–25% | 29 | 43 | 4 |
| 25–50% | 114 | 186 | 15 |
| 50–75% | 64 | 75 | 3 |
| 75–100% | 38 | 52 | 0 |
| Samtals | 245 | 356 | 22 |
| Konur | 12 mánuðir eða minna | 12–24 mánuðir | 24–36 mánuðir |
| 0–25% | 55 | 64 | 9 |
| 25–50% | 230 | 263 | 38 |
| 50–75% | 177 | 210 | 30 |
| 75–100% | 97 | 94 | 13 |
| Samtals | 559 | 631 | 90 |
| Samtals | 804 | 987 | 112 |
5. Hvernig skiptast hlutabætur eftir atvinnugreinum og milli opinberra starfa annars vegar og almenna vinnumarkaðarins hins vegar?
Vinnumálastofnun skráir ekki fyrri störf atvinnuleitenda eftir því hvort þau voru hjá hinu opinbera eða á almennum vinnumarkaði og því eru ekki tiltækar þær upplýsingar sem hér er beðið um. Hins vegar skráir stofnunin upplýsingar um fyrra starf atvinnuleitanda eftir starfaflokkum. Í því sambandi er vísað til upplýsinga í töflu 1 en þar kemur m.a. fram að 153 þeirra sem fengu greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli í október 2010 starfa við heilbrigðisstarfsemi, 73 við fræðslustarfsemi og 26 við opinbera stjórnsýslu.
6. Hefur ráðherra upplýsingar um afdrif þeirra sem hætta á hlutabótum, þ.e. hvort þeir fara í fulla vinnu eftir það eða á fullar atvinnuleysisbætur?
Vinnumálastofnun hefur ekki haldið reglubundið utan um upplýsingar um afdrif þeirra er hætta að fá greiddar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi eða skertu starfshlutfalli. Vinnumálastofnun vann þó óformlega úttekt í apríl 2010 á ástæðum þess að þessir einstaklingar hættu að skrá sig án atvinnu hjá stofnuninni á þessu tímabili. Í langflestum tilvikum var ástæðan sú að viðkomandi fór í 100% starfshlutfall að nýju eða 495 einstaklingar af 1031, sem gera 48% af heildarfjölda þeirra sem hættu á þessu tímabili að skrá sig án atvinnu hjá stofnuninni. Enn fremur fluttust 39 einstaklingar af landi brott eða tæp 4% og 22 einstaklingar fóru í fæðingarorlof eða 2%. Jafnframt fengu sjö einstaklingar tímabundna vinnu, einn einstaklingur fékk ellilífeyrisgreiðslur og einn einstaklingur fékk örorkulífeyri. Ekki er vitað er um afdrif 391 einstaklings af þeim sem hættu í apríl 2010 að ská sig án atvinnu hjá Vinnumálastofnun en það eru 38% af heildarfjöldanum.
7. Hyggst ráðherra leggja til breytingar á þessu fyrirkomulagi og þá á hvern hátt?
Ráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar þar sem lagt verður til að gildistími ákvæða til bráðabirgða V og VI í lögum um atvinnuleysistryggingar verði framlengdur til 30. júní 2011. Í þeim tilgangi að ná fram markmiðum í ríkisfjármálum sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2011 er jafnframt gerð tillaga um að starfshlutfall launafólks verði að skerðast um 30% hið minnsta í stað 20% áður svo hlutaðeigandi geti átt rétt á hlutfallslegum greiðslum samkvæmt ákvæði til bráðabirgða V í lögunum.