Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 356. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 446 — 356. mál.
til félags- og tryggingamálaráðherra um stöðu Íbúðalánasjóðs.
1. Hver er fjárhæð áætlaðra framlaga í afskriftarsjóð útlána Íbúðalánasjóðs árin 2010– 2012, sundurliðuð eftir árum?
2. Hversu miklum fjármunum tapaði Íbúðalánasjóður árin 2000–2010, sundurliðað eftir árum, vegna kaupa á skuldabréfum og aðildar að vaxtaskiptasamningum?
3. Af hvaða aðilum keypti Íbúðalánasjóður þau skuldabréf sem sjóðurinn tapaði á árin 2000–2010 og hverjir voru útgefendur þeirra bréfa?
4. Hverjir eru og voru gagnaðilar Íbúðalánasjóðs að þeim vaxtaskiptasamningum sem sjóðurinn tapaði á árin 2000–2010?
5. Hversu mikið reiðufé keypti Íbúðalánasjóður af Seðlabanka Íslands árin 2000–2010, sundurliðað eftir árum, og hversu mikið af öðrum fjármálastofnunum?
6. Hvaða einstaklingar og lögaðilar veittu Íbúðalánasjóði sérfræðiaðstoð á árunum 2000– 2008, í hverju fólst sú aðstoð og hve mikið greiddi sjóðurinn fyrir hana, sundurliðað eftir einstökum sérfræðingum?
7. Hversu mikið má áætla að eigið fé og eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs verði á árunum 2010–2012, sundurliðað eftir árum, leggi íslenska ríkið sjóðnum ekki til aukið fé?
8. Hvað gerir ráðherra ráð fyrir að fjárframlag ríkissjóðs til Íbúðalánasjóðs verði hátt á næstu þremur til sex árum?
9. Hvernig er gert ráð fyrir að Íbúðalánasjóður ráðstafi u.þ.b. 1.100 íbúðum sem sjóðurinn er eigandi að, hversu hátt hlutfall þeirra er í útleigu og hversu hátt hlutfall þeirra telur ráðherra að sjóðurinn geti selt á næstu tveimur til fjórum árum?
10. Hvaða skyldum hefur Íbúðalánasjóður að gegna sem virkasti lánveitandinn á innlendum fasteignamarkaði eins og ráðherra vísaði til í svari við 5. lið fyrirspurnar um stöðu Íbúðalánasjóðs á þingskjali 229 í 89. máli?
11. Hvaða lögaðilum lánaði Íbúðalánasjóður fé til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði og hvaða einstaklingar og lögaðilar eru eigendur lánþeganna nú?
12. Hver er heildarfjöldi og heildarupphæð veittra lána Íbúðalánasjóðs frá upphafi árs 2007, sundurliðað eftir mánuðum og verkefnum Íbúðalánasjóðs skv. 9. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998?
Skriflegt svar óskast.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 446 — 356. mál.
Fyrirspurn
til félags- og tryggingamálaráðherra um stöðu Íbúðalánasjóðs.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.