Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 159. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 453  —  159. mál.




Svar



félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um aldursdreifingu, lífeyrisgreiðslur og atvinnuleysi í nokkrum ríkjum .

     1.      Hver er hlutfallsleg aldursdreifing í ríkjum Evrópusambandsins, Noregi, Bandaríkjunum, Kanada, Kína og Íslandi miðað við eftirfarandi aldursbil:
              a.      0–20 ára,
              b.      21–30 ára,
              c.      31–40 ára,
              d.      41–50 ára,
              e.      51–60 ára,
              f.      61–70 ára,
              g.      yfir 70 ára?

    Ekki var unnt að finna aldursdreifingu í nokkrum ríkjum eftir þeim aldursbilum sem tilgreind eru í spurningunni, en reynt var að fara eins nálægt þeim og unnt var. Ekki fengust áreiðanlegar upplýsingar frá Belgíu og Kína.

0–20 ára 21–30 ára 31–40 ára 41–50 ára 51–60 ára 61–70 ára yfir 70 ára
Austurríki 21,8% 12,8% 13,7% 16,5% 12,5% 12,0% 10,8%
Belgía
Búlgaría 20,1% 13,9% 14,8% 13,4% 13,9% 12,7% 11,2%
Danmörk 25,3% 11,4% 13,4% 14,5% 12,7% 12,8% 9,9%
Eistland 22,5% 15,2% 13,7% 13,3% 13,0% 11,0% 11,2%
Finnland 23,7% 12,3% 11,9% 13,7% 14,2% 13,0% 11,1%
Frakkland 25,6% 12,4% 13,0% 13,7% 12,9% 10,7% 11,7%
Grikkland 20,2% 12,7% 15,3% 14,6% 12,6% 11,4% 13,0%
Holland 24,6% 12,0% 13,4% 15,3% 13,3% 11,8% 9,7%
Írland 28,4% 15,8% 15,7% 13,3% 10,9% 8,9% 7,0%
Ísland 29,6% 14,7% 13,5% 13,7% 11,9% 8,7% 7,9%
Ítalía 19,7% 11,1% 15,1% 15,5% 12,5% 12,3% 13,7%
Kýpur 25,1% 16,6% 14,3% 13,6% 12,3% 10,2% 7,9%
Lettland 21,4% 15,4% 13,8% 14,1% 12,9% 11,3% 11,0%
Litháen 23,5% 14,9% 13,5% 15,1% 12,2% 10,3% 10,4%
Lúxemborg 24,6% 13,0% 15,4% 16,1% 12,3% 9,5% 9,2%
Malta 23,5% 14,6% 13,4% 12,9% 14,0% 12,3% 9,3%
Noregur 26,5% 12,4% 14,0% 14,1% 12,3% 11,0% 9,7%
Pólland 22,9% 16,3% 14,3% 12,8% 14,8% 9,8% 9,0%
Portúgal 21,4% 13,0% 15,4% 14,4% 12,6% 11,4% 11,9%
Rúmenía 22,3% 15,5% 15,9% 13,0% 13,5% 10,2% 9,7%
Slóvakía 23,3% 16,2% 15,7% 13,6% 13,9% 9,8% 7,5%
Slóvenía 20,1% 14,0% 14,7% 15,1% 14,5% 11,0% 10,6%
Spánn 20,6% 13,5% 17,1% 15,1% 11,7% 10,3% 11,6%
Svíþjóð 24,5% 12,3% 12,9% 13,5% 12,3% 12,9% 11,5%
Tékkland 21,1% 14,1% 16,3% 12,8% 13,9% 12,6% 9,2%
Ungverjaland 21,7% 13,6% 15,7% 12,4% 14,3% 11,8% 10,4%
Þýskaland 19,7% 12,0% 12,4% 16,8% 13,5% 12,4% 13,2%
Heimild: Eurostat, epp.eurostat.ec.europa.eu/

0–14 ára 15–24 ára 25–34 ára 35–44 ára 45–54 ára 55–64 ára 65–74 ára Yfir 75 ára
Kanada
17,9% 13,7% 13,7% 16,1% 15,0% 10,6% 6,9% 6,0%
Heimild: Canadian Council on Social Development, www.ccsd.ca/ en tölurnar eru frá árinu 2004.

0–15 ára 16–64 ára 65–84 ára Yfir 85 ára
Bretland 21,0% 64,0% 14,0% 1,0%
Heimild: Office for National Statistics, www.statistics.gov.uk/ en tölurnar eru frá árinu 2008.

0–15 ára 16–24 ára 25–44 ára 45–64 ára Yfir 65 ára
Bandaríkin 21,4% 13,9% 30,2% 22,0% 12,4%
Heimild: US Census Bureau, www.census.gov.

     2.      Á hvaða aldri hefst taka lífeyris í framangreindum ríkjum og hvernig er lífeyrisgreiðslum háttað, er um að ræða séreignarsjóði, gegnumstreymissjóði eða annað, og þá hvað?


    Byggt er á upplýsingum frá eftirtöldum heimildum:
          MISSOC (Mutual Information System of Social Protection in the Member States of the European Union, of the European Economic Area and in Switzerland) Staðan 1. janúar 2010.
          MISSCEO (Mutual Information System of Social Protection of the Council of Europe). Staðan 1. janúar 2009.
          Social Security Programs Throughout the World; Asia and the Pacific fyrir árið 2008 og The Americas fyrir árið 2009.
    Ráðuneyti og stofnanir ríkjanna sem taka þátt í framangreindu samstarfi láta umbeðnar upplýsingar í té og er hér byggt á þeirra skilgreiningum, m.a. á því hvað teljist skyldubundið eða hluti félagslegs öryggis í viðkomandi ríki, lögboðinn lífeyrisaldur og hvers konar kerfi sé um að ræða.

Austurríki.
          Karlmenn: 65 ára. Konur: 60 ára. Stighækkandi aldur fyrir konur þar til sama lífeyrisaldri verður náð á árunum 2024 til 2033.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Belgía.
          65 ára fyrir karlmenn og konur.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Búlgaría.
          Fyrsta stoð: Skilyrði lífeyris tengjast stigakerfi þar sem stig, aldur og fjöldi tryggingarára eru tekin með í reikninginn. Núgildandi skilyrði eru: Karlmenn: 63 ára og 100 stig. Konur: 60 ára og 94 stig. Hafi einstaklingur ekki nægan stigafjölda ávinnst lífeyrisréttur eftir 15 tryggingarár, þar af verða 12 ár að byggjast á raunverulegri vinnu, og við 65 ára aldur fyrir bæði karla og konur. Sérstakar reglur eru um það hvernig tryggingartímabil eru reiknuð, þar sem 3 ár í 1. flokki vinnu eða 4 ár í 2. flokki vinnu eru talin jafngilda 5 árum í 3. flokki vinnu. Þá gilda sérákvæði um ákveðnar starfsstéttir.
         Önnur stoð: Réttur stofnast þegar hinn tryggði öðlast rétt til almenns lífeyris samkvæmt fyrstu stoð. Hægt er að sækja um lífeyri úr Viðbótarskyldutryggingarsjóðnum fimm árum áður en lífeyrisaldri er náð svo fremi sem fjárhæðin sem safnast hefur á reikning viðkomandi sé fullnægjandi til að veita bætur sem jafngilda lágmarkslífeyri fyrir tryggingu og elli.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi) fyrir einstaklinga sem fæddir eru fyrir 1. janúar 1960 og blandað kerfi (gegnumstreymi og fjármagnað) fyrir einstaklinga sem fæddir eru eftir 31. desember 1959 og fyrir þá sem starfa í 1. og 2. atvinnuflokki.

Kýpur.
          65 ára fyrir karlmenn og konur. 63 ára fyrir námuverkamenn.
          Grunnlífeyrir Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
        Viðbótarlífeyrir: Að hluta til fjármagnað.

Tékkland.
          Karlmenn: 62 ára. Konur: Veltur á fjölda barna sem viðkomandi hefur alið upp: Engin börn; 60 ára og 8 mánaða. Eitt barn; 59 ára og 8 mánaða. Tvö börn; 58 ára og 8 mánaða. Þrjú eða fjögur börn; 57 ára og 8 mánaða. Fimm eða fleiri börn; 56 ára og 8 mánaða.
        Lífeyrisaldur hækkar um 2 mánuði fyrir karlmenn og 4 mánuði fyrir konur á hverju ári þar til lífeyrisaldur er orðinn 65 ár fyrir karla og konur með eitt barn og 62 til 64 ára fyrir konur með tvö eða fleiri börn (beinist að einstaklingum sem fæddir eru eftir 1968).
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Danmörk.
          Félagslegur lífeyrir (almannatryggingar): 65 ára.
        Viðbótarlífeyrir (vinnumarkaðstengdur lífeyrir, ATP): 65 ára.
          Félagslegur lífeyrir (almannatryggingar): Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
        Viðbótarlífeyrir (atvinnutengdur viðbótarlífeyrir, ATP): Fjármagnað.

Eistland.
          Árið 2010: Karlmenn: 63 ára. Konur: 61 ára. Lífeyrisaldur hækkar smám saman og skal vera jafnhár fyrir karla og konur árið 2016, 63 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Finnland.
          Lífeyrir almannatrygginga: 65 ára
        Lögbundinn tekjugrundvallaður lífeyrir: Á aldrinum 63 til 68 ára samkvæmt ákvörðun viðkomandi einstaklings. Lægri lífeyrisaldur fyrir opinbera starfsmenn.
          Almennur lífeyrir: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
        Lögbundinn tekjugrundvallaður lífeyrir: Blandað kerfi, að hluta til fjármagnað, að hluta til gegnumstreymi.
        Hlutalífeyrir: Gegnumstreymi.

Frakkland.
          Almennt kerfi fyrir launþega: 60 ára.
        Viðbótarkerfi fyrir launþega og stjórnendur: 65 ára, mögulegt að hefja töku lífeyris við 60 ára aldur ef fullur grunnlífeyrir var veittur.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Þýskaland.
          67 ára (lögbundinn lífeyrisaldur). Lög um aðlögun lífeyrisaldurs að lýðfræðilegri þróun og styrkingu grundvallaratriða fjármögnunar lögbundnu lífeyristrygginganna frá 20. apríl 2007 kveða á um að lögbundinn lífeyrisaldur skuli smám saman hækka upp í 67 ára aldur frá 2012 til 2019 fyrir þá sem fæddir eru 1947 og síðar. Fyrst bætist við einn mánuður á ári (65 til 66) og síðan tveir mánuðir á ári (66 til 67) Fyrir þá sem fæddir eru eftir 1963 er lífeyrisaldurinn 67 ára. Tryggðir einstaklingar geta hætt störfum við 65 ára aldur án skerðingar á lífeyri hafi viðkomandi lokið 45 árum með greiðslu skyldubundinna gjalda vegna vinnu og umönnunar og tímabila með barnaumönnun upp að 10 ára aldri barnsins.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Grikkland.
          Einstaklingar tryggðir fyrir 1993: Karlmenn: 65 ára. Konur: 60 ára.
        Einstaklingar tryggðir eftir 1993: Karlmenn: 65 ára. Konur: 65 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Ungverjaland.
          Fyrsta og önnur stoð: Fyrir bæði kyn: 62 ára aldur árið 2009. Lífeyrisaldur hækkar smám saman (um hálft ár fyrir hvern aldurshóp) frá 2010 upp í 65 ára aldur árið 2022 fyrir þá sem fæddir eru 1957 og síðar. Fyrstu einstaklingarnar sem þessi hækkun snertir eru þeir sem fæddir eru 1952.
          Fyrsta stoð: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
         Önnur stoð: Fjármagnað.

Ísland.
          67 ára.
          Lífeyrir almannatrygginga: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
        Lögbundnir lífeyrissjóðir: Fjármagnað að fullu.

Írland.
          Ríkislífeyrir: 65 ára.
        Ríkislífeyrir (iðgjalda): 66 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Ítalía.
          Einstaklingar tryggðir fyrir árið 1996: Karlmenn: 65 ára. Konur: 65 ára.
        Lífeyrisgreiðslur hefjast 1. júlí fyrir þá sem ná lífeyrisaldri á fyrsta ársfjórðungi sama ár, 1. október fyrir þá sem ná lífeyrisaldri á öðrum ársfjórðungi sama ár, 1. janúar árið eftir fyrir þá sem ná lífeyrisaldri á þriðja ársfjórðungi undanfarandi ár og 1. apríl árið eftir fyrir þá sem ná lífeyrisaldri á fjórða ársfjórðungi undanfarandi ár.
        Einstaklingar með örorku sem nemur a.m.k. 80% og blindir einstaklingar: Karlmenn 60 ára, konur 55 ára.
        Einstaklingar tryggðir frá 1996: Sami lífeyrisaldur og fyrir þá sem tryggðir voru fyrir 1996.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Lettland.
          Karlar og konur: 62 ára.
          Fyrsta þrep: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
         Annað þrep: Fjármagnað.

Liechtenstein.
          Fyrsta og önnur stoð: Karlar og konur: 64 ára (eftir aðlögunartímabil árið 2009) .
        Í annarri stoð er hægt að velja annan lífeyrisaldur, svo fremi sem lífeyrisáætlun sem er a.m.k. jafngild sé látin í té.
          Fyrsta stoð: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
         Önnur stoð: Fjármagnað.

Litháen.
          Karlar: 62,5 ára. Konur: 60 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi) og söfnunarfjármögnun.

Lúxemborg.
          65 ára.
          Almennt kerfi fyrir fjármögnun iðgjaldalífeyris.

Malta.
          Einstaklingar fæddir fyrir 1. janúar 1952: Karlar: 61 ára. Konur: 60 ára. Þær hafa val um að hætta störfum 61 árs óski þær þess.
        Einstaklingar fæddir árin 1952 til 1955: Karlar og konur: 62 ára.
        Einstaklingar fæddir árin 1956 til 1958: Karlar og konur: 63 ára.
        Einstaklingar fæddir árin 1959 til 1961: Karlar og konur: 64 ára.
        Einstaklingar fæddir 1. janúar 1962 og síðar: Karlar og konur. 65 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Noregur.
          67 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Pólland.
          Konur: 60 ára. Karlar: 65 ára.
          Fyrsta stoð: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
         Önnur stoð: Fjármagnað að fullu.

Portúgal.
          65 ára.
          Samtímafjármögnun og sjóður.
Rúmenía.
          Ellilífeyrir: Munur á lífeyrisaldri karla og kvenna helst:
        Karlar: 63 ára og 9 mánaða 1. janúar 2010, hækkar í 65 ára árið 2014.
        Konur: 58 ára og 9 mánaða 1. janúar 2010, hækkar í 60 ára árið 2014.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Slóvakía.
          Ellilífeyrir: 62 ára. Þessum lífeyrisaldri verður náð árið 2014 fyrir alla aldurshópa.
          Fyrsta stoð: Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).
         Önnur stoð: Fjármagnað.

Slóvenía.
          Fullur lögbundinn lífeyrisaldur er 61 ár fyrir konur og 63 ár fyrir karla.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Spánn.
          65 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi) og tilurð eins stöðugleika sjóðs fyrir allt almannatryggingakerfið.

Svíþjóð.
          Sveigjanlegur lífeyrisaldur frá 61 árs aldri. Hægt er að vinna eftir 67 ára aldur með samþykki vinnuveitanda.
          Blandað kerfi: Að hluta gegnumstreymi og að hluta til fjármagnað.

Sviss.
          Fyrsta stoð (grunnkerfi) og önnur stoð (lögbundið lágmark): Karlar: 65 ára. Konur: 64 ára.
          Fyrsta stoð (grunnkerfi): Gegnumstreymi kerfi með bótasjóð (jöfnunarsjóður).
         Önnur stoð (lögbundið lágmark): Fjármagnað að fullu.

Holland.
          65 ára.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Bretland.
          Lífeyrisaldur ríkisins: Karlar: 65 ára. Konur: 60 ára. Hækkar smám saman í 65 ár tímabilið 2010 til 2020.
          Samtímafjármögnun (gegnumstreymi).

Bandaríkin.
          Einstaklingar fæddir 1943–1954: 66 ára. Hækkar smám saman í 67 ára aldur árið 2027. Einstaklingar fæddir 1960 og síðar: 67 ára.
          Fólk á vinnumarkaði greiðir tryggingagjöld. Ákveðin stig ávinnast árlega.

Kanada.
          Almennur lífeyrir: 65 ára eða eldri.
          Almennur lífeyrir. Ríkissjóður, af skatttekjum.
        Tekjugrundvallaður lífeyrir: Gegnumstreymi með varasjóð fyrir fjárhagslegar sveiflur.

Kína.
          Grunnlífeyristrygging (leiðbeiningar ríkisins): Karlar: 60 ára. Sérmenntaðar konur: 60 ára. Konur, launþegar/ófaglærðar: 55 ára. Aðrir hópar kvenna: 50 ára.
          Almannatryggingakerfi ekki til staðar. Sveitarfélög og vinnuveitendur aðlaga leiðbeiningar ríkisins að staðháttum. Séreignasjóður lögbundið. Fjármagnað með gjöldum af tekjum.

     3.      Hvert var atvinnuleysi í framangreindum ríkjum á árabilunum:
              a.      1990–2000,
              b.      2001–2005,
              c.      2006–2010?
    
Að því er varðar Evrópuríkin er byggt á upplýsingum frá Eurostat, (http://epp.eurostat.ec. europa.eu). Þær upplýsingar ná einungis aftur til ársins 1998 og því vantar tölur fyrir árin 1990–1997. Upplýsingarnar fyrir Bandaríkin byggjast á tölum frá Bureau of Labour Statistics, (www. bls.gov/cps) og upplýsingarnar fyrir Kanada eru fengnar af heimasíðu Human Resources and Skills Development Canada, (www. hrsdc.gc.ca). Því miður liggja ekki fyrir upplýsingar frá Kína.

1990–2000 2001–2005 2006–2010 Elstu tölur
Austurríki 4,9% 4,8% 4,7% 1998
Bandaríkin 5,6% 5,5% 6,8% 1990
Belgía 8,2% 7,8% 8,0% 1999
Bretland 5,8% 488,0% 6,2% 2000
Búlgaría 18,7% 16,5% 8,2% 2000
Danmörk 5,5% 5,4% 5,4% 1999
Eistland 14,6% 11,1% 9,4% 2000
Finnland 11,3% 9,5% 7,9% 1998
Frakkland 11,4% 8,8% 8,9% 1998
Grikkland 12,1% 11,0% 9,6% 1998
Holland 3,3% 3,8% 3,8% 2000
Írland 4,8% 4,2% 7,2% 2000
Ísland 3,7% 2,9% 4,6% 1990
Ítalía 11,7% 9,1% 7,6% 1998
Kanada 9,3% 7,3% 6,8% 1990
Kína
Kýpur N/A 5,5% 5,5% 2005
Lettland N/A 11,2% 11,1% 2002
Litháen N/A 13,5% 9,3% 2002
Lúxemborg N/A 4,4% 4,9% 2003
Malta N/A 7,0% 6,9% 2002
Noregur 3,5% 3,9% 3,1% 2000
Pólland 14,5% 19,8% 10,9% 1999
Portúgal 5,2% 5,8% 8,8% 1998
Rúmenía 8,5% 8,8% 7,2% 1999
Slóvakía 15,7% 19,0% 12,6% 1998
Slóvenía 7,3% 6,8% 6,0% 1999
Spánn 17,0% 11,2% 12,9% 1998
Svíþjóð N/A 6,0% 7,6% 2001
Tékkland 8,0% 8,2% 6,5% 1998
Ungverjaland 7,2% 6,3% 8,9% 1999
Þýskaland N/A 11,5% 9,0% 2005