Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 30. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 456  —  30. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um skattrannsóknir og skatteftirlit.

    Til svars við fyrirspurninni óskaði ráðherra eftir upplýsingum frá embættum skattrannsóknarstjóra, ríkisskattstjóra og yfirskattanefnd. Svörum þeirra er haldið aðgreindum eftir embættum.

     1.      Hver var heildarhækkun á opinberum gjöldum árlega á tímabilinu 2000–2009 í kjölfar skattrannsókna og skatteftirlits, sundurliðað eftir lögaðilum, einstaklingum og tegundum skattsvika? Hve hátt hlutfall er það af skatttekjum og áætluðum skattsvikum og hver er hlutur stórfyrirtækjaeftirlits ríkisskattstjóra?

    a) Skattrannsóknarstjóri:

Ár Heildargjaldabreytingar (kr.) Lækkun yfirfæranlegs taps (kr.)
2009 201.268.208 66.173.382
2008 351.542.236 193.026.939
2007 422.598.779 87.198.235
2006 360.956.489 1.707.831.413
2005 522.956.856 201.089.598
2004 1.658.498.228 145.309.267
2003 345.502.725 579.085.363
Samtals 3.863.323.521 2.979.714.197

    Heildargjaldabreytingar til lækkunar hjá skattrannsóknarstjóra í kjölfar kæru á úrskurðum ríkisskattstjóra í skattrannsóknarmálum nema alls 257.991.540 kr. á umræddum árum. Nettóhækkun gjaldabreytinga nemur því alls 3.605.331.981 kr.
    Mál er sæta rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins sæta ekki öll endurákvörðun skattstofna í kjölfar rannsóknar. Á það einkum við um þann málaflokk sem varðar vanhöld á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda, eða svonefnt vörslufé. Þá sæta mál ekki endurákvörðun í kjölfar rannsóknar hafi verið staðin skil á leiðréttum skattskilagögnum til skattstjóra/ríkisskattstjóra undir rannsókn máls og skattar endurákvarðaðir á grundvelli þeirra gagna. Þá eru dæmi þess að í stað endurákvörðunar skattstofna sé sett fram skaðabótakrafa að hálfu ríkissjóðs við meðferð refsimáls fyrir dómi. Þá er ávallt nokkuð um lækkanir í rannsóknarmálum sökum þess að rannsóknarþolar hafa sætt áætlun skattstofna áður en til rannsóknar kemur.
    Heildarfjárhæð fésekta hjá dómstólum, yfirskattanefnd og skattrannsóknarstjóra ríkisins vegna skattalagabrota í kjölfar rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins er eftirfarandi á árunum 2000–2009 eftir að tekið hefur verið tillit til álagsbeitingar til frádráttar við sektarákvörðun:

Ár Dómstólar (kr.) YSKN (kr.) SRS (kr.) Samtals (kr.)
2009 770.675.000 319.910.000 52.830.000 1.143.415.000
2008 850.811.000 126.560.000 82.620.000 1.059.991.000
2007 314.501.387 193.830.000 93.370.000 601.701.387
2006 542.954.323 234.425.000 95.330.000 872.709.323
2005 575.150.000 174.570.000 749.720.000
2004 364.552.000 82.210.000 446.762.000
2003 493.836.000 96.580.000 590.416.000
2002 118.958.000 172.625.000 291.583.000
2001 233.468.008 127.075.000 360.543.008
2000 84.700.000 42.110.000 126.810.000
Samtals 4.349.605.718 1.569.895.000 324.150.000 6.243.650.718

    Ekki er unnt að svara með vissu hve hátt hlutfall gjaldabreytinga í kjölfar skattrannsóknar eru af heildarskattsvikum, þar sem erfitt er að meta heildarskattsvik vegna margra óvissuþátta. Á árunum 2000–2009 hefur einu sinni verið gerð úttekt á umfangi skattalagabrota. Í skýrslu starfshóps um umfang skattsvika á Íslandi frá því í desember 2004. Samkvæmt henni var áætlað að „tapaðar skatttekjur sem hlutfall af heildarskatttekjum“ opinberra aðila væru á bilinu 7–11,5%. Sé horft til þeirrar áætlunar nema hækkanir í kjölfar rannsóknar litlu broti af ætluðum töpuðum tekjum.

    b) Ríkisskattstjóri:
    Í eftirfarandi töflu er að finna upplýsingar um heildarhækkun á opinberum gjöldum á tímabilinu 2000–2009 í kjölfar aðgerða eftirlitseininga skattstjóra og ríkisskattstjóra. Í töflunni er einnig að finna upplýsingar um lækkun á yfirfæranlegu tapi.

Ár Heildargjaldabreytingar (kr. ) Lækkun yfirfæranlegs taps (kr. )
2009 2.874.536.891 1.269.105.760
2008 2.734.027.541 8.813.397.305
2007 1.635.902.563 1.046.268.849
2006 2.980.316.314 628.380.576
2005 1.251.410.275 592.634.787
2004 692.506.968 66.846.334
2003 398.173.652 95.784.929
2002 463.605.555 77.661.798
2001 293.267.357 19.076.247
2000 348.611.441 18.168.516
Samtals 10.797.821.666 11.358.219.341

    Á árunum 2000–2004 voru starfræktar þrjár eftirlitseiningar á landinu. Eftirlitsskrifstofa skattstjórans í Reykjavík sem annaðist skatteftirlit í Reykjavíkurumdæmi, eftirlitsdeild skattstjórans í Reykjanesumdæmi sem annaðist skatteftirlit í því umdæmi og skatteftirlit ríkisskattstjóra sem annaðist skatteftirlit á landsbyggðinni.
    Á árinu 2004 ákvað fjármálaráðherra breytingar á tilhögun skatteftirlits á landsbyggðinni. Samkvæmt ákvörðun ráðherra skyldi skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra annast skatteftirlit í Norðurlandsumdæmi vestra og Austurlandsumdæmi auk eigin umdæmis. Þá skyldi skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi annast skatteftirlit í Vestfjarðaumdæmi, Suðurlandsumdæmi og Vestmannaeyjaumdæmi auk eigins umdæmis. Með breytingunum var skatteftirlit ríkisskattstjóra lagt niður og verkefni þess flutt til fyrrnefndra eftirlitsdeilda á landsbyggðinni.
    Þessar breytingar tóku formlega gildi 1. október 2004. Samhliða þessum breytingum og árangursstjórnunarsamningi ríkisskattstjóra við fjármálaráðuneytið var stofnuð sérstök eftirlitsdeild við embætti ríkisskattstjóra. Markmiðið með stofnun deildarinnar var að byggja upp sérhæfða þekkingu á öllum helstu sviðum skatteftirlitsmála og sinna sértækum eftirlitsverkefnum. Deildin hóf starfsemi um mitt ár 2005.

     2.      Hver var árlegur fjöldi mála hjá skattyfirvöldum á tímabilinu 2000–2009, sundurliðað eftir uppruna, afgreiðslu og embættum (a. skattrannsóknarstjóra ríkisins, b. ríkisskattstjóra, skattstjórum og stórfyrirtækjaeftirliti, c. yfirskattanefnd)?
    a) Skattrannsóknarstjóri:
    Heildarfjöldi mála sem lokið er með skýrslu í kjölfar rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, lagt upp í kjölfar skoðunar eða eftir atvikum rannsóknar eða framsend skattstjóra/ ríkisskattstjóra til meðferðar er eftirfarandi á árunum 2000–2009:

Ár Skattsvik Vanskil Form-
brot
Lagt upp/
framsent
Samtals
2009 47 76 0 142 265
2008 73 76 0 82 231
2007 84 75 0 208 367
2006 84 72 0 210 366
2005 54 78 0 138 270
2004 46 103 1 222 372
2003 58 96 8 59 221
2002 31 99 2 248 380
2001 36 81 0 244 361
2000 13 44 0 194 251
Samtals 526 800 11 1.747 3.084

    Hér eru mál greind í almenn skattsvik (vanframtaldir skattstofnar), vanskil (vanræksla á greiðslu vörslufjár) og formbrot (vanræksla á skilum skattskilagagna). Til viðbótar framangreindu eru 6.729 mál á umræddum árum frá ársreikningaskrá vegna vanrækslu á skilum á ársreikningum til opinberrar birtingar.
    Uppruni mála sem afgreidd voru hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins á árunum 2000–2009 er eftirfarandi:

Ár Skattstjórar RSK SRS RLS Ábending Samtals
2009 44 1 99 103 18 265
2008 32 8 117 53 21 231
2007 73 11 171 79 33 367
2006 80 7 154 83 42 366
2005 35 6 111 80 38 270
2004 55 15 81 167 54 372
2003 39 2 67 45 68 221
2002 153 15 58 85 69 380
2001 121 18 91 76 55 361
2000 45 10 49 117 30 251
Samtals 677 93 998 888 428 3.084

    Til ábendinga teljast mál sem berast með öðrum hætti en frá skattstjórum/ríkisskattstjóra eða ríkislögreglustjóra eða eiga uppruna sinn hjá embættinu sjálfu. Þar falla undir t.a.m. ábendingar frá almenningi, innheimtumönnum ríkissjóðs, hagsmunaaðilum o.fl. Allar ábendingar er berast embættinu eru skoðaðar og metnar af sérstöku teymi innan embættisins. Sé ákvörðun tekin um frekari aðgerðir af hálfu þess er málið fært inn á málaskrá embættisins. Heildarfjöldi ábendinga sem berast embættinu og sæta skoðun eru því mun fleiri en hér greinir. Þá koma til viðbótar áðurgreind mál frá ársreikningaskrá vegna vanrækslu á skilum á ársreikningum til opinberrar birtingar.
    Heildarfjöldi mála send í refsimeðferð með vísun til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, með kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins fyrir yfirskattanefnd eða lokið með sektargerð hjá skattrannsóknarstjóra á árunum 2000–2009 er eftirfarandi, auk mála þar sem fallið er frá refsimeðferð:

Ár RLS YSKN SRS Fallið frá Samtals
2009 55 79 27 2 163
2008 65 85 34 4 188
2007 52 48 52 10 162
2006 19 57 58 20 154
2005 31 100 45 176
2004 38 64 19 121
2003 54 44 5 103
2002 35 64 21 120
2001 24 70 6 100
2000 86 47 81 214
Samtals 459 658 171 213 1.501

    b) Ríkisskattstjóri:
    Í eftirfarandi töflu er að finna upplýsingar um fjölda mála hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra á árunum 2000–2009. Upplýsingum í töflunni er skipt niður í samræmi við fjölda hafinna mála, fjölda lokinna mála, fjölda mála sem lauk með gjaldabreytingu og fjölda mála sem sendur var til skattrannsóknarstjóra ríkisins eða skattstjóra til frekari meðferðar.

Ár Hafin mál Málum lokið Mál m.
gjaldabr.
Mál send
SRS/skattstj.
Samtals
2009 1.327 1.645 631 92 3.695
2008 1.463 1.272 543 37 3.315
2007 1.370 1.466 833 28 3.697
2006 1.359 1.351 561 26 3.297
2005 1.302 1.302 490 75 3.169
2004 1.184 1.001 383 30 2.598
2003 832 832 411 37 2.112
2002 879 670 388 39 1.976
2001 518 429 477 135 1.559
2000 578 351 551 131 1.611
Samtals 10.812 10.319 5.268 630 27.029

    c) Yfirskattanefnd:
    Til skýringar á eftirfarandi töflu er vert að geta þess að skipting úrskurða í kærumálum tekur mið af því hvort úrskurður leiddi til lækkunar gjalda eða ekki. Í fyrri flokkinn eru taldir úrskurðir þar sem krafa er tekin til greina að hluta eða öllu leyti eða skattákvörðun er felld úr gildi, þ.e. úrskurður leiðir til breytinga á skattstofnum, þ.m.t. yfirfæranlegu tapi, og álögðum gjöldum. Í síðari flokkinn eru taldir úrskurðir sem staðfesta kærða skattákvörðun (kröfu kæranda hafnað að öllu leyti). Einnig falla hér undir mál sem vísað er frá yfirskattanefnd, m.a. sökum þess að kæra berst að liðnum kærufresti, svo og mál sem vísað er til skattstjóra til uppkvaðningar úrskurðar að nýju, sbr. 12. gr. laga um yfirskattanefnd.
    Skipting úrskurða í sektarmálum miðast við það hvort gjaldanda er gerð sekt eða ekki. Í síðari flokkinn falla m.a. úrskurðir þar sem kröfu skattrannsóknarstjóra er vísað frá yfirskattanefnd sökum þess að afstaða gjaldanda til sektarmeðferðar fyrir nefndinni þykir ekki liggja fyrir.

Yfirskattanefnd 2000–2009, fjöldi afgreiddra mála og afgreiðsla þeirra.

Kærumál Sektarmál Fellt niður Alls afgr. mál
Ár Úrsk. Lækkun Annað Úrsk. Sekt Ekki sekt
2009 265 114 151 76 56 20 9 350
2008 261 111 150 49 33 16 2 312
2007 300 134 166 52 41 11 9 361
2006 342 131 211 83 78 5 10 435
2005 350 147 203 58 44 14 23 431
2004 414 178 236 39 29 10 10 463
2003 354 174 180 43 36 7 14 411
2002 415 176 239 79 67 12 19 513
2001 538 261 277 74 63 11 24 636
2000 1.115 298 817 25 22 3 25 1.165
Samtals 4.354 578 145 5.077

     3.      Hversu mörgum málum frá umræddu tímabili er ólokið hjá skattrannsóknarstjóra og um hvaða fjárhæðir er þar að ræða?
    Útilokað er að segja með nákvæmni hversu háar fjárhæðir er um að ræða í óloknum málum. Bæði er að rannsóknir hafa ekki hafist í sumum þeirra, rannsóknum hefur ekki miðað svo í öðrum tilfellum að segja megi til með nákvæmni um undanskot og í mörgum tilfellum er eftir að leita álits rannsóknarþola á ávirðingum. Þá eru alltaf allmargir þeirra sem ekki hafa staðið skil á staðgreiðslu og virðisaukaskatti sem koma málum sínum í lag með greiðslu að hluta eða öllu leyti eftir að rannsókn og/eða refsimeðferð af hálfu skattrannsóknarstjóra hefur hafist.
    Samkvæmt málaskrá skattrannsóknarstjóra ríkisins eru þar nú skráð 261 mál; 172 almenn skattsvikamál og 25 vanskilamál auk 64 formbrotamála. Málin eru misjafnlega langt komin, sum á lokastigi rannsóknar en önnur á undirbúningsstigi.
    Áætluð fjárhæð undandregins skatts vegna framangreindra mála nemur alls 6.710.240.500 kr. vegna skattsvikamála, þar af er áætlaður undandreginn stofn til fjármagnstekjuskatts alls 29.644.000.000 kr. Hefur þá ekki verið tekið tillit til mögulegra áætlana ríkisskattstjóra á skattstofnum sem þá koma til frádráttar við endurákvörðun. Áætluð fjárhæð mála vegna vangoldins vörslufjár nemur alls 460.900.000 kr. Heildarfjárhæð ætlaðra sekta nemur alls 13.625.166.950 kr. Ástæða er til að árétta að hér er um áætlun að ræða og fjárhæðir geta og munu breytast í mörgum tilvikum undir rannsókn máls til lækkunar eða hækkunar.

     4.      Hvað störfuðu margir (stöðugildi) við skatteftirlit og skattrannsóknir árlega 2000– 2009?
    a) Skattrannsóknarstjóri:
    Heildarfjöldi ársverka hjá skattrannsóknarstjóra á árunum 2000–2009 er eftirfarandi:

Ár Ársverk
2009 21,4
2008 20,4
2007 18,2
2006 22,7
2005 24,1
2004 23,3
2003 20,0
2002 20,6
2001 20,0
2000 20,0

    Flest stöðugildi hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins eru vegna starfa við skattrannsóknir. Önnur stöðugildi eru stöðugildi lögfræðinga við refsimeðferð mála í kjölfar rannsóknar og við almenn skrifstofustörf auk stöðu skattrannsóknarstjóra. Í lok árs 2009 voru þannig 14,5 stöðugildi við skattrannsóknir. Stöðugildum hjá embættinu hefur nú verið fjölgað um 10, m.a. vegna þessara þungu mála sem hellst hafa yfir í kjölfar hrunsins haustið 2008.

    b) Ríkisskattstjóri:
    Í eftirfarandi töflu er að finna upplýsingar um fjölda stöðugilda hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra á árunum 2000–2009.

Ár Ársverk
2009 32,2
2008 33,0
2007 33,7
2006 40,1
2005 37,9
2004 35,4
2003 34,7
2002 37,6
2001 36,4
2000 34,9

     5.      Að hverju hafa skatteftirlit og skattrannsóknir helst beinst á árunum 2000–2009, þ.e. í hve miklum mæli:
              a.      að fjármálafyrirtækjum og fjármálastofnunum (bönkum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, eignarleigufyrirtækjum og öðrum fjármálastofnunum, lögmönnum, löggiltum endurskoðendum og öðrum fjárvörsluaðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum o.s.frv.),
              b.      að svonefndum skattaparadísum,
              c.      að skilum á fjármagnstekjuskatti,
              d.      að ólöglegum frádráttarliðum,
              e.      að skatti af hlutabréfakaupum stjórnenda og starfsmanna (þ.e. með svokölluðum kúlulánum),
              f.      að hlunnindum og eigin neyslu forsvarsmanna sem færð er á rekstur fyrirtækisins?


    a) Skattrannsóknarstjóri:
    Að því er skattrannsóknir varðar skal tekið fram að hvorki rannsóknarþolar né rannsóknarefni hafa sérstaklega verið flokkuð með þeim hætti að unnt sé með góðu móti að svara spurningum undir þessum tölulið með fullnægjandi hætti án frekari úrvinnslu. Að því marki sem skattrannsóknarstjóri ríkisins hefur svigrúm til ákvörðunar á því hvaða mál skuli sæta rannsókn hjá embættinu hefur verið reynt að bera þar niður þar sem mest þörf hefur verið talin á hverjum tíma. Á þeim árum sem fyrirspurnin varðar, þ.e. 2000–2009, beindust skattrannsóknir einkum að málum þar sem grunur var um undandrátt tekna í atvinnustarfsemi. Nokkur breyting hefur orðið á undanfarin missiri. Er það m.a. vegna aukinnar áherslu á skattundanskot einstaklinga og vegna aukins fjölda mála er varða skattundanskot í gegnum aflandssvæði (skattaparadísir) en slík mál voru óheyrð fyrir nokkrum missirum síðan.
    Í kjölfar hrunsins hefur verið aflað gagna frá bönkum og fjármálastofnunum um viðskipti bæði einstaklinga og lögaðila. Úrvinnsla þeirra gagna stendur enn yfir en rannsókn er hafin í nokkrum málum vegna gruns um undanskot fjármagnstekna. Fleiri mál bíða rannsóknar. Að því er varðar endurskoðendur, lögmenn og aðra sérfræðinga hafa skattrannsóknir í gegnum árin eftir atvikum beinst að hugsanlegri hlutdeild þeirra í brotum rannsóknarþolans vegna aðkomu þeirra að skattskilum hans. Nokkrir tugir mála vegna skattundanskota í gegnum aflandssvæði eru nú til rannsóknar. Mál vegna óheimilla frádráttarliða hafa í gegnum árin sætt rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, einkum ef frádráttur hefur verið byggður á tilhæfulausum gögnum. Mál vegna ólögmætra úttekta forsvarsmanna úr félögum hafa einnig sætt rannsókn, oft í tengslum við önnur skattalagabrot framin í rekstri lögaðila. Mál vegna kaup- og söluréttarsamninga hafa ekki sætt rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins. Hafa þau mál sem komið hafa upp á borð hjá embættinu verið send ríkisskattstjóra til meðferðar; á yfirstandandi ári mál á annað hundrað einstaklinga.

    b) Ríkisskattstjóri:
    Á árunum 2004–2009 komu 3.521 mál er varða umspurð atriði (sbr. a–e-liði hér á eftir) til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra. Upplýsingar um fjölda mála eftir uppruna á árunum 2000–2003 liggur ekki fyrir í upplýsingakerfum ríkisskattstjóra.
    Skatteftirlit á árunum 2004–2009, fjöldi mála:
    a. að fjármálafyrirtækjum og fjármálastofnunum     130
    b. að skattaparadísum     209
    c. að skilum á fjármagnstekjuskatti     1.100
    d. að óheimilum frádráttarliðum     1.312
    e. að skatti af hlutabréfakaupum stjórnenda og starfsmanna     217
    f. að hlunnindum og eigin neyslu forsvarsmanna     553
    Samtals                  3.521
    a. að fjármálafyrirtækjum og fjármálastofnunum (bönkum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, eignarleigufyrirtækjum og öðrum fjármálastofnunum, lögmönnum, löggiltum endurskoðendum og öðrum fjárvörsluaðilum, tryggingafélögum, lífeyrissjóðum o.s.frv.):
    Á árunum 2004–2009 komu alls 130 mál er varða fjármálafyrirtæki og fjármálastofnanir (banka, verðbréfafyrirtæki, verðbréfamiðlara o.fl.) til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.
     b. að svonefndum skattaparadísum:
    Á árunum 2004–2009 komu alls 209 mál er varða svonefndar skattaparadísir til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.
     c. að skilum á fjármagnstekjuskatti:
    Á árunum 2004–2009 komu alls 1.100 mál er varða skil á fjármagnstekjuskatti til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.
     d. að ólöglegum frádráttarliðum:
    Gert er ráð fyrir að hér sé verið að vísa til óheimilla frádráttarliða en ekki ólöglegra. Á árunum 2004–2009 komu alls 1.312 mál er varða óheimila frádráttarliði til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.
     e. að skatti af hlutabréfakaupum stjórnenda og starfsmanna (þ.e. með svokölluðum kúlulánum):
    Á árunum 2004–2009 komu alls 217 mál er varða skatt af hlutabréfakaupum stjórnenda og starfsmanna til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.
     f. að hlunnindum og eigin neyslu forsvarsmanna sem færð er á rekstur fyrirtækisins:
    Á árunum 2004–2009 komu alls 553 mál er varða hlunnindi og einkaneyslu forsvarsmanna félaga til skoðunar hjá eftirlitseiningum skattstjóra og ríkisskattstjóra.

     6.      Hvað hafa verið kveðnir upp margir dómar í skattsvikamálum á tímabilinu 2000–2009? Hversu mörgum málum lauk með sektarúrskurði hjá yfirskattanefnd og hversu mörgum með sektarmeðferð hjá skattrannsóknarstjóra (frá 2006)? Óskað er sundurgreiningar eftir tegundum skattsvika.
    Samkvæmt upplýsingum úr málaskrá hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins er heildarfjöldi hæstaréttardóma uppkveðinna vegna skattalagabrota á árunum 2000–2009 eftirfarandi:

Ár Skattsvik Vanskil Samtals
2009 0 2 2
2008 1 1 2
2007 0 19 19
2006 2 9 11
2005 0 1 1
2004 0 0 0
2003 3 1 4
2002 1 1 2
2001 2 1 3
2000 2 8 10
Samtals 11 43 54

    Samkvæmt upplýsingum úr málaskrá hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins er heildarfjöldi héraðsdóma uppkveðinna vegna skattalagabrota á árunum 2000–2009 eftirfarandi:

Ár Skattsvik Vanskil Samtals
2009 23 13 36
2008 24 21 45
2007 9 13 22
2006 10 29 39
2005 14 30 44
2004 3 20 23
2003 10 11 21
2002 6 12 18
2001 17 13 30
2000 18 8 26
Samtals 134 170 304

    Til viðbótar eru fjórir dómar kveðnir upp á árinu 2004 vegna vanskila á ársreikningum til opinberrar birtingar.
    Heildarfjöldi úrskurða yfirskattanefndar vegna sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins á árunum 2000–2009 er eftirfarandi:

Ár Skattsvik Vanskil Samtals
2009 42 34 76
2008 26 23 49
2007 19 33 52
2006 18 65 83
2005 21 37 58
2004 19 20 39
2003 10 33 43
2002 9 70 79
2001 34 40 74
2000 9 16 25
Samtals 207 371 578

    Heildarfjöldi sektargerða hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins á árunum 2000–2009 er eftirfarandi:

Ár Skattsvik Vanskil Samtals
2009 8 19 27
2008 9 25 34
2007 10 42 52
2006 18 40 58
Samtals 45 126 171

    Skattrannsóknarstjóra ríkisins var veitt lagaheimild á árinu 2006 til að ljúka refsimeðferð mála með sektargerð. Sá möguleiki var því ekki fyrir hendi vegna fyrri ára.

     7.      Hvað hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins rannsakað mörg mál þar sem um hefur verið að ræða vanskil á fjármagnstekjuskatti á umræddu tímabili? Hve háar fjárhæðir voru í vanskilum í þeim tilvikum og hve mikið hefur innheimst?
    Ekki liggja fyrir hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins upplýsingar um fjölda mála sem sætt hafa rannsókn og varða undanskot frá fjármagnstekjuskatti vegna þeirra ára sem fyrirspurnin varðar. Má ætla að þau séu innan við tugur. Fyrirséð er að málum af þessum toga muni fjölga á næstu missirum.

     8.      Hver er ábyrgð löggiltra endurskoðenda vegna rangra skila og rangra upplýsinga, af ásetningi eða af gáleysi? Eru dæmi um að löggiltir endurskoðendur hafi á umræddu tímabili sætt refsingu vegna brota á skattalögum?
    Í 5. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er kveðið á um að hver sá sem af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi láti skattyfirvöldum í té rangar eða villandi upplýsingar eða gögn varðandi skattframtöl annarra aðila eða aðstoðar við ranga eða villandi skýrslugjöf til skattyfirvalda skuli sæta refsingu skv. 1. mgr. greinarinnar. Sambærileg ákvæði eru í 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 7. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, sbr. og lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. Ef um stórfellt brot er að ræða gegn fyrrgreindum lagaákvæðum getur það jafnframt varðað við 262. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
    Samkvæmt bókhaldslögum, nr. 45/1994, getur hver sem með háttsemi sinni aðstoðar bókhaldsskyldan mann eða fyrirsvarsmann lögaðila við brot sætt refsingu. Háttsemi sú sem varðað getur framangreindum refsingum er tilgreind í ákvæðum 37. og 38. gr. laganna. Þá geta endurskoðendur eða skoðunarmenn gerst sekir um refsiverð brot gegn lögum nr. 3/2006, um ársreikninga, ef þeir taka að sér að framkvæma endurskoðun án þess að uppfylla hæfisskilyrði laganna, haga störfum sínum andstætt ákvæðum laganna eða í ósamræmi við góða endurskoðunarvenju eða með áritun sinni gefa rangar eða villandi upplýsingar eða láta hjá líða að geta um mikilsverð atriði er snerta rekstrarafkomu eða efnahag félagsins, sbr. 123. gr. laganna. Lög um ársreikninga hafa einnig að geyma refsiákvæði vegna hlutdeildar manna í brotum á lögunum, þ.e. aðstoði maður stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra félaga við þau brot sem lýst er í 121.–122. gr. laganna eða stuðlar að þess háttar brotum. Ef um stórfellt brot er að ræða gegn fyrrgreindum lagaákvæðum getur það jafnframt varðað við 262. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
    Ákvæði um skaðabótaskyldu endurskoðenda er að finna í lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur. Brjóti endurskoðandi gegn þeim lögum varðar háttsemi hans sektum, niðurfellingu réttinda hans eða fangelsi allt að 2 árum. Unnt væri að fara fram á niðurfellingu réttinda endurskoðanda sem gerðist sekur um skattalagabrot á grundvelli þeirra laga og almennra hegningarlaga.
    Endurskoðendur eru opinberir sýslunarmenn, sbr. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur, og geta sem slíkir bakað sér refsiábyrgð skv. 187. gr. almennra hegningarlaga.
    Ekki er kunnugt um dóma þar sem endurskoðandi hefur vegna starfa sinna sem slíkur sætt refsingu vegna brota á skattalögum, en dæmi eru um að endurskoðendur hafi sætt ákærumeðferð vegna meintra brota. Einn úrskurður yfirskattanefndar frá árinu 2003 liggur fyrir þar sem endurskoðendum var gerð fésekt vegna brota framinna í rekstri endurskoðendafélags sem þeir voru í forsvari fyrir og einn héraðsdómur kveðinn upp á yfirstandandi ári.