Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 194. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 457  —  194. mál.




Svar



félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um þjónustusamninga.

     1.      Hver er að mati ráðherra reynslan af:
                  a.      þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð um heilbrigðis- og öldrunarmál,
                  b.      þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð um málefni fatlaðra,
                  c.      þjónustusamningi við Vestmannaeyjabæ um málefni fatlaðra,
                  d.      sambærilegum samningum við önnur sveitarfélög, eins og Akureyrarbæ og Samtök sveitarfélaga á Norðvesturlandi?

    Reynslan er almennt góð. Það að hafa ábyrgð á öllum þáttum öldrunarþjónustu á einni hendi hefur stuðlað að uppbyggingu á ódýrari úrræðum, svo sem þjónustuíbúðum og öflugri heimahjúkrun í stað langrar legu í hjúkrunarrýmum. Þannig hefur öldruðum verið gert kleift að búa lengur á eigin heimilum en ella. Reynslan af þessum samningum á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála hefur einnig verið góð. Áhrifin koma helst fram í því að þörf fyrir langlegurými hefur minnkað og einnig hafa verið teknar upp ýmsar nýjungar eins og heilsueflandi heimsóknir til aldraðra. Einnig hafa komið fram samlegðaráhrif heimahjúkrunar og félagslegrar þjónustu þar sem upplýsingar og verkefni hafa færst á milli hjúkrunar- og félagsteyma, notendum þjónustunnar til góða auk fjárhagslegs ávinnings.
    Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður eru sammála um að ánægja sé með þá þjónustusamninga sem gerðir hafa verið. Fyrsti samningurinn tók gildi í janúar 1997 og sá síðasti var endurnýjaður 2007. Samningagerð og samskipti hafa alltaf gengið vel. Að mati aðila hefur ávinningur samningsaðila komið fram í því að unnt hefur verið að laga þjónustuna að aðstæðum og samþætta enn frekar við önnur þjónustukerfi, svo sem félagsþjónustu, heilbrigðisstofnun, grunn- og leikskóla. Þetta hefur skilað sér í markvissari og betri þjónustu við notendur.
    Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vestmannaeyjabær eru sammála um að reynslan af þeim þjónustusamningum sem gerðir hafa verið sé góð. Skýr meginmarkmið samningsins hafa stuðlað betur að því að samþætta þjónustu við fötluð börn og fullorðna í heimabyggð. Einnig hefur gengið vel að færa þjónustuna nær notendum og aðgangur að henni er góður. Þjónustusamningurinn hefur boðið upp á meiri skilvirkni, betri nýtingu fjármuna og aukin þjónustugæði að mati ráðuneytisins. Þekking og fjölgun fagfólks hefur byggst upp innan sveitarfélagsins. Samskipti og samvinna Vestmannaeyjabæjar og ráðuneytisins hafa verið góð.
    Reynsla samningsaðila af þjónustusamningum við Akureyrarkaupstað um málefni fatlaðra hefur frá upphafi verið góð og gefið færi á fjölbreytilegum úrbótum bæði á almennri þjónustu sveitarfélagsins og sérþjónustu við fatlaða, en þó hafa fyrst og fremst skapast tækifæri til samþættingar þessara þátta við heildræna þjónustu. Aðeins hefur borið á ágreiningi um fjárhagsleg málefni en hann hefur aldrei yfirskyggt jákvæða fleti samstarfsins.
    Reynslan hefur styrkt það mat Akureyrarkaupstaðar að þjónusta við fatlaða sé nærþjónusta sem best sé fyrir komið hjá sveitarfélögunum með annarri grunnþjónustu við íbúana.
    Byggðasamlag um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra hefur gert þrjá þjónustusamninga við ríkið frá árinu 1999. Markmið allra samninganna hefur verið að samþætta þjónustu við fötluð börn og fullorðna í heimabyggð og fella hana eins og framast er unnt að starfsemi annarra þjónustuaðila, færa þjónustuna nær notendum og auðvelda þannig aðgengi að henni. Ráðuneytið tekur undir þá afstöðu byggðasamlagsins að unnið hefur verið út frá hugmyndafræði um heildstæða og samþætta þjónustu og að meginforsenda þess sé að þjónusta við fatlaða sé á ábyrgð sveitarfélaga.
    Sveitarfélögin hafa horft til þess að losna undan fjötrum ríkjandi skipulags þar sem unnið er annaðhvort á forsendum ríkis eða sveitarfélaga, en þó innan raunsæisramma þannig að tillögur séu framkvæmanlegar og úrræði ákjósanlegri fyrir notendur. Leiðarljós við uppbyggingu þjónustu við börn og fullorðna í sveitarfélögum á Norðurlandi vestra er að koma á sveigjanlegu og skilvirku skipulagi og persónulegri þjónustu innan félags-, skóla- og frístundaþjónustu og að þjónustan sé veitt innan heimils, í skóla, vinnu eða frístundum. Jafnframt að ráðgjöfin sé skilvirk og á ábyrgð fárra aðila, sérfræðiþekking fjölþætt og áhersla lögð á þverfagleg vinnubrögð.
    Reynslan er sú í stuttu máli að með þjónustusamningunum hefur náðst meiri skilvirkni, betri nýting fjármuna, fagþekking (ríkis og sveitarfélaga) og aukin þjónustugæði.

     2.      Hvað eru margir slíkir samningar til og um hvað fjalla þeir?
    Nú eru í gildi fjórir þjónustusamningar sem ráðuneytið hefur gert við sveitarfélög og samtök þeirra, en það er við Byggðasamlagið á Norðurlandi vestra, Akureyrarkaupstað, Norðurþing og Sveitarfélagið Hornafjörð. Árssamningur við Vestmannaeyjabæ hefur enn ekki verið undirritaður.
    Ráðuneytið hefur á undanförnum árum beitt sér fyrir því að gengið sé út frá sama formi í samningum við öll þau sveitarfélög sem gerður hefur verið samningar við. Samningarnir hafa að bera mjög skýrar faglegar kröfur við framkvæmd þjónustunnar sem byggjast á tiltekinni framtíðarsýn, grundvallarsjónarmiðum og skilgreindum markmiðum. Samningarnir innihalda einnig lýsingu á þeim verkefnum sem samningsaðilum er ætlað að inna af hendi á samningstímanum, hvernig skuli staðið að söfnun upplýsinga um þjónustuþarfir notenda, greiðslum fyrir þjónustuna, umsýslu húsnæðis og loks hvernig staðið skuli að eftirliti, eftirfylgd og ágreiningi svo eitthvað sé nefnt.

     3.      Hver er stefnan varðandi framhald slíkra samninga?
    Við yfirfærslu sértækrar félagsþjónustu ríkisins til sveitarfélaga um næstu áramót er gert ráð fyrir sveitarfélögin yfirtaki að fullu ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk sem ber það með sér að þjónustusamningar verða óþarfir.