Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 264. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 489  —  264. mál.




Svar



mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.

     1.      Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
    Á tímabilinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010 hefur stöðugildum á aðalskrifstofu mennta- og menningarmálaráðuneytisins fækkað lítillega eða sem nemur 3,8 stöðugildum. Breytingarnar má m.a. rekja til starfsloka einstakra starfsmanna og að ekki hefur verið endurráðið í viðkomandi stöður, starfsmenn hafa minnkað við sig starfshlutfall eða flutt tímabundið til verkefna í öðrum ráðuneytum. Á tímabilinu urðu eftirtaldar mannabreytingar í ráðuneytinu:
    Ráðuneytisstjóri var fluttur tímabundið til sex mánaða á grundvelli 36. gr. laga nr. 70/1996 í stöðu ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins. Viðkomandi var síðan skipaður í þá stöðu að þeim tíma liðnum. Í fjarveru hans gegndu þrír embættismenn tímabundið starfi ráðuneytisstjóra eða þar til starfið var auglýst laust haustið 2009 og núverandi ráðuneytisstjóri var skipaður frá 1. desember 2009. Þrír skrifstofustjórar hættu á tímabilinu. Í stöðu tveggja var endurskipað eftir að störf þeirra höfðu verið auglýst. Skrifstofa þess þriðja var sameinuð annarri skrifstofu innan ráðuneytisins. Störf sérfræðinga breyttust þannig á tímabilinu að tveir hættu störfum og einn var ráðinn tímabundið til starfa erlendis. Einn sérfræðingur var ráðinn á tímabilinu. Ráðgjafi ráðherra úr fyrri ríkisstjórn hætti og nýr hóf störf er núverandi ríkisstjórn tók við. Einn deildarstjóri hætti á tímabilinu og einn starfsmaður var fluttur tímabundið í annað ráðuneyti.
    Þann 1. nóvember voru samtals um 67 stöðugildi á aðalskrifstofu ráðuneytisins. Þau eru þannig skipuð: Einn ráðuneytisstjóri, sex skrifstofustjórar, 14 deildarstjórar, 30 sérfræðingar, 11 stjórnarráðsfulltrúar, einn lögfræðingur, einn ráðgjafi ráðherra, einn ritari ráðherra, einn vefstjóri og einn bílstjóri. Kynjahlutfall starfsmanna er 48 konur og 21 karl. Heildarlaunakostnaður með launatengdum gjöldum fyrir tímabilið frá 1. janúar 2009 til og með september 2010 nemur samtals 872,9 millj. kr. Laun ráðherra og aðstoðarmanns ráðherra eru greidd af öðrum fjárlagalið og teljast ekki með í stöðugildum.

     2.      Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
    Dregið var úr launakostnaði í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 14. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin nam 3–10 %. Náði hún til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þúsund kr. Við framkvæmdina var farið eftir því sem fram kom í leiðarljósum ríkisstjórnarinnar um aðhaldsaðgerðir um að draga meira úr launakostnaði hjá þeim sem meira bera úr býtum en hinum sem lægri laun hafa. Þetta var framkvæmt með því að fækka föstum yfirvinnutímum og einingum og kom til framkvæmda þremur mánuðum eftir að hverjum starfsmanni hafði verið tilkynnt um launabreytingar, annars vegar 1. september 2009 hjá þeim er fá greidd laun samkvæmt ákvörðun Kjararáðs og hins vegar 1. janúar 2010 hjá þeim er fá greidd laun samkvæmt kjarasamningum FHSS og FSS. Jafnframt lækkun launakostnaðar hefur verið reynt að komast hjá því að ráða í störf sem losnað hafa á tímabilinu.

     3.      Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     4.      Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
    Alla jafna er reynt að leysa verkefni er upp koma hverju sinni innan ráðuneytisins. Nær öll þau verkefni sem á undan er getið í svari við 3. lið eru þess eðlis að nauðsynlegt hefur verið að leita til utanaðkomandi sérfræðinga þar sem nægileg sérþekking á viðkomandi sviði hefur ekki verið til staðar innan ráðuneytisins.