Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 265. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 490 — 265. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.
1. Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 hefur fjöldi stöðugilda hjá ráðuneytinu staðið í stað. Tveir sérfræðingar hættu störfum fyrir ráðuneytið á árinu 2009, annar vegna aldurs en hinn hvarf til starfa á öðrum vettvangi. Í þeirra stað var ráðinn sérfræðingur í tímabundið starf og annar í ótímabundið starf. Þá var á tímabilinu ráðið í afleysingar vegna sumarleyfa og fæðingarorlofs. Auk þess starfaði laganemi í ráðuneytinu bæði sumrin. Á árinu 2010 var ráðinn einn starfsmaður í tímabundna stöðu og þá störfuðu þrír háskólanemar í ráðuneytinu sumarið 2010 í tengslum við vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar.
Þann 1. október sl. störfuðu 19 manns hjá iðnaðarráðuneytinu í 18,5 stöðugildum. Um er að ræða ráðuneytisstjóra, þrjá skrifstofustjóra, níu sérfræðinga, ritara ráðherra, bifreiðastjóra, tvo stjórnarráðsfulltrúa og tvo móttökuritara. Kynjahlutfall starfsmanna er 13 konur og 6 karlar. Launakostnaður með launatengdum gjöldum fyrir tímabilið 1. janúar 2009 til og með september 2010 nam samtals 284,4 millj. kr.
2. Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
Laun starfsmanna í ráðuneytinu voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin nam 3–10% og náði til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þús. kr. Kerfislega var lækkunarhlutfall útfært með fækkun eininga og yfirvinnu en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var tilkynnt á fundi um lækkunina og hverjum og einum afhent bréf með tilkynningu um breytingu, með þriggja mánaða fyrirvara eða samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um.
3. Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
Ráðuneytið hefur tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu umrætt tímabil. Yfirlitið nær yfir fjárlagalið aðalskrifstofu ráðuneytisins og ýmissa verkefna á þess vegum.
4. Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
Þegar ný úrlausnarefni og verkefni koma upp er ávallt reynt að leysa þau af sérfræðingum og starfsfólki innan Stjórnarráðsins. Er allur meginþorri verkefna og úrlausnarefna sem upp koma innan Stjórnarráðsins leystur með þeim hætti. Ætíð koma þó upp einhver verkefni þar sem talin er þörf á utanaðkomandi sérþekkingu og er þá leitað til sérfræðinga og ráðgjafa á viðkomandi sviðum, m.a. vegna samráðs og til að tryggja aðkomu hlutlausra aðila. Hæsta einstaka fjárhæðin er t.d. vegna lögfræðiráðgjafar vegna útboðs á Drekasvæðinu en ráðuneytið hafði ekki nauðsynlega sérfræðiþekkingu á þessu sviði á þeim tíma.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 490 — 265. mál.
Svar

|
Iðnaðarráðuneyti, aðalskrifstofa og ýmis verkefni. |
||
| Upphæð kr. | Verksali | Vegna |
| 945.000 | Kristín Haraldsdóttir | Lögfræðiþjónusta v/frumvarps til laga um rammaáætlun |
| 403.749 | eCom ehf. | Lögfræðiþjónusta v/lagaumhverfis netþjónabúa |
| 153.000 | Sigurður G. Guðjónsson ehf. | Lögfræðiþjónusta v/ráðningarmála |
| 450.000 | Bonafide ehf. | Lögfræðiþjónusta v/frumvarps til vatnalaga |
| 257.438 | LEX ehf. | Lögfræðiþjónusta v/frumvarps til vatnalaga |
| 4.260.697 | BBA Legal ehf. | Lögfræðiþjónusta v/útgáfu rannsóknar- og vinnsluleyfa á Drekasvæði |
| 563.372 | WVS-verkfræðiþjónusta ehf. | Sérfræðiþjónusta v/mats á rekstrarstöðu Hitaveitu Öxarfjarðar |
| 309.000 | Arkiteo ehf. | Sérfræðiþjónusta v/breytinga á húsnæði |
| 2.307.147 | Efla hf. | Sérfræðiþjónusta v/staðarvals vegna olíuleitar á Drekasvæði |
| 100.108 | Jón Skaptason | Þýðingar |
| 88.400 | Þýðingastofa JC ehf. | Þýðingar |
| 52.921 | JS þýðingar ehf. | Þýðingar |
| 225.028 | Skjal ehf. | Þýðingar |
| 327.730 | GH1 hf. | Sérfræðiþjónusta v/ráðningar sérfræðings í ráðuneytið |
| 372.250 | Athygli ehf. | Sérfræðiþjónusta v/orkuskiptaverkefnis |
| 10.815.840 | Samtals 2009 | |
| Upphæð kr. | Verksali | Vegna |
| 1.900.000 | Askar Capital hf. | Skýrslugerð v/ endurskoðunar raforkulaga |
| 212.678 | Logos slf. | Lögfræðiþjónusta v/markaðsátaks í ferðaþjónustu |
| 406.873 | LEX ehf. | Lögfræðiþjónusta v/frumvarps til vatnalaga |
| 185.971 | Landslög lögfræðiþjónusta ehf. | Lögfræðiþjónusta v/kæru til siðanefndar Verkfræðingafélags Íslands |
| 901.150 | Efla hf. | Sérfræðiþjónusta v/endurskoðunar raforkulaga |
| 122.150 | Anne Cecilia Benassi | Þýðingar |
| 70.000 | Þýðingastofa JC ehf. | Þýðingar |
| 24.000 | Rit ehf. | Þýðingar |
| 9.459 | Markmál ehf. | Þýðingar |
| 57.600 | Sigrún Árnadóttir | Sérfræðiþjónusta v/frumvarps til vatnalaga |
| 49.800 | Netorka hf. | Sérfræðiþjónusta v/tilskipunar 2008/92 í EES-samningnum |
| 900.555 | GH1 hf. | Sérfræðiþjónusta v/sparnaðarverkefnis |
| 114.700 | Athygli ehf. | Sérfræðiþjónusta v/orkuskiptaverkefnis |
| 1.195.219 | Íslensk NýOrka ehf. | Sérfræðiþjónusta v/orkuskiptaverkefnis |
| 6.150.155 | Samtals jan.–sept. 2010 | |