Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 268. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 491 — 268. mál.
félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.
1. Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
Í upphafi árs 2009 var fjöldi starfsmanna ráðuneytisins 34 (fyrir utan tvo í ræstingu) í 33 stöðugildum. Í upphafi árs 2010 var fjöldi starfsmanna 37 í 35 1/ 4 stöðugildum og 1. október 2010 var fjöldi starfsmanna 39 í 37 1/ 4 stöðugildum. Rétt er að geta þess að verkefni ráðuneytisins hafa aukist jafnt og þétt á tímabilinu. Tveir starfsmenn voru fluttir til ráðuneytisins á árunum 2009 og 2010 í samræmi við 2. mgr. 11. gr. laga nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands, ásamt því að ráðið hefur verið í afleysingar vegna fæðingarorlofs starfsmanna. Á árinu 2009 var ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu fluttur í embætti ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins sem og skrifstofustjóri og bílstjóri ráðherra. Í stað þess var skipaður nýr ráðuneytisstjóri í ráðuneytið og bílstjóri forsætisráðuneytisins fluttur til félags- og tryggingamálaráðuneytisins, síðar urðu svo aftur bílstjóraskipti í ráðuneytinu.
Kynjahlutfalli starfsmanna í ráðuneytinu er þannig farið að 2/ 3 hlutar starfsfólks eru konur og karlar eru þriðjungur starfsmanna og hefur örlítið dregist úr fjölda þeirra fram til þessa.
Launakostnaður starfsmanna með launatengdum gjöldum á tímabilinu er samtals 506,9 millj. kr. Laun ráðherra og aðstoðarmanns ráðherra eru greidd af öðrum fjárlagalið.
2. Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
Laun starfsmanna í ráðuneytinu voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin nam 3–10% og náði til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þús. kr. á mánuði. Launalækkunin var útfærð með lækkun greiðslna fyrir yfirvinnu og lækkun þóknanagreiðslna en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var tilkynnt um lækkunina á starfsmannafundi í ráðuneytinu. Að auki var rætt við hvern starfsmann sérstaklega og farið yfir hvaða áhrif breytingin kæmi til með að hafa á hans laun. Þetta var gert með þriggja mánaða fyrirvara eða samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um.
3. Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
Ráðuneytið hefur tekið saman eftirfarandi yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu á tímabilinu 1. janúar 2009 til og með 30. september 2010. Yfirlitið nær yfir fjárlagalið aðalskrifstofu ráðuneytisins, ýmis verkefni og ýmsa starfsemi á vegum þess.
4. Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
Þegar ný verkefni og úrlausnarefni koma upp er ávallt reynt að leysa þau af sérfræðingum og starfsfólki innan ráðuneytisins eða í öðrum ráðuneytum eða stofnunum. Þó hefur sú staða komið upp að ekki er unnt að vinna verkefni innan ráðuneytisins eða að verkefnin eru þess eðlis að þörf er á afar sérhæfðri þekkingu og kunnáttu og því hefur verið talin þörf á utanaðkomandi sérþekkingu og er þá leitað eftir henni á þeim sviðum sem um ræðir.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 491 — 268. mál.
Svar

| Verksali | Fjárhæð |
Þjónusta |
| Katrín Ólafsdóttir | 426.700 | Viðskipta- og hagfræðingar |
| Data Market ehf. | 161.840 | Lögfræðiþjónusta |
| Juris hf. | 918.750 | Lögfræðiþjónusta |
| Landslög lögfræðiþjónusta ehf. | 757.631 | Lögfræðiþjónusta |
| Lögmenn Höfðabakka ehf. | 473.436 | Lögfræðiþjónusta |
| Anne Cecilia Benassi | 43.020 | Þýðendur og túlkar |
| Samskiptamiðstöð heyrnarlausra | 50.539 | Þýðendur og túlkar |
| Scriptorium ehf. | 108.000 | Þýðendur og túlkar |
| Skjal ehf. | 510.152 | Þýðendur og túlkar |
| Þórný Björk Jakobsdóttir | 28.000 | Þýðendur og túlkar |
| Arnaldur Sölvi Kristjánsson | 280.000 | Sérfræðiþjónusta – útreikningar v/barnatrygginga |
| Góð samskipti ehf. | 545.289 | Sérfræðiþjónusta |
| H:N markaðssamskipti ehf. | 6.404.413 | Sérfræðiþjónusta – verkefni unnið með bönkum v/fólks í greiðsluerfiðleikum |
| Kná ehf. | 330.000 | Sérfræðiþjónusta |
| Sírnir Hallgrímur Einarsson | 755.968 | Sérfræðiþjónusta |
| STRÁ Starfsráðningar ehf. | 1.060.042 | Sérfræðiþjónusta – ráðningarþjónusta |
| Teitur Þorkelsson | 1.540.000 | Sérfræðiþjónusta – kynning og fundaherferð |
| Hagstofa Íslands | 232.500 | Sérfræðiþjónusta |
| Háskóli Íslands | 250.000 | Sérfræðiþjónusta |
| Ingi Sturla Þórisson | 144.000 | Sérfræðiþjónusta |
| PARA ehf. | 40.400 | Sérfræðiþjónusta |
| P & Ó ehf. | 19.920 | Sérfræðiþjónusta |
| Vinnuvernd ehf. | 66.979 | Læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar – vinnuvernd |
| Þýðingastofa JC ehf. | 835.746 | Þýðendur og túlkar |
| VSI öryggishönnun og ráðgjöf ehf. | 438.566 | Sérfræðiþjónusta |
| Evrópulög ehf. | 534.000 | Lögfræðiþjónusta |
| KPMG hf. | 52.150 | Lögfræðiþjónusta |
| Tatjana Latinovic | 34.000 | Þýðendur og túlkar |
| Stefán Ólafsson | 963.000 | Sérfræðiþjónusta – Verkefnisstjórn um endurskoðun almannatrygginga |
| Lára V. Júlíusdóttir hrl. ehf. | 170.500 | Lögfræðiþjónusta |
| LÖGMENN Laugavegi 3 ehf. | 305.500 | Lögfræðiþjónusta |
| Ragnhildur Helgadóttir | 171.000 | Lögfræðiþjónusta |
| Baldvin Steindórsson | 22.000 | Sálfræðiþjónusta |
| Barnasálfræðiþjónustan ehf. | 656.000 | Sálfræðiþjónusta – úttekt á starfsemi meðferðarheimilis |
| Dagsbirta ehf. | 334.000 | Sálfræðiþjónusta – matsgerðir v/barnaverndarmála |
| Per Roald Landrö | 30.000 | Þýðendur og túlkar |
| Halldór Gunnarsson | 540.000 | Sérfræðiþjónusta – réttindagæsla fatlaðra |
| Kná ehf. | 190.000 | Sérfræðiþjónusta – rýnihópur foreldra |
| Barnasálfræðiþjónustan ehf. | 96.000 | Sérfræðiþjónusta – mat á hæfni umsækjenda um meðferð ungra gerenda í kynferðisbrotamálum |
| Jón Björnsson | 2.400.000 | Sérfræðiþjónusta – samningur um gerð gæðaviðmiða í öldrunarþjónustu |
| Hagvangur ehf. | 373.500 | Sérfræðiþjónusta – ráðningarþjónusta |
| ARGH ehf. | 39.040 | Sérfræðiþjónusta |
| Hrefna Friðriksdóttir | 1.710.000 | Sérfræðiþjónusta – vinna við endurskoðun barnaverndarlaga |
| Kvíðameðferðarstöðin ehf. | 40.000 | Sálfræðiþjónusta |
| HH Ráðgjöf ehf. | 118.524 | Sérfræðiþjónusta – ráðningarþjónusta |
| Þórhildur Þorleifsdóttir | 538.000 | Sérfræðiþjónusta – verkefni og ráðgjöf v/ráðherranefndar um jafnréttismál |
| Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir | 50.000 | Sérfræðiþjónusta – framkvæmdaáætlun um jafnréttismál |
| Naív ehf. | 74.700 | Sérfræðiþjónusta – framkvæmdaáætlun um jafnréttismál |
| Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 360.000 | Sérfræðiþjónusta – jafnréttisvakt |
| Þórhildur Þorleifsdóttir | 286.000 | Sérfræðiþjónusta – jafnréttisvakt |
| GH1 hf. | 602.408 | Sérfræðiþjónusta v/könnunar |
| 7 Jarðir ehf. | 40.000 | Sérfræðiþjónusta – Evrópuár 2010 gegn fátækt |
| Guðný Björk Eydal | 35.000 | Sérfræðiþjónusta – Evrópuár 2010 gegn fátækt |
| Lárus Ýmir Óskarsson | 300.000 | Sérfræðiþjónusta – Evrópuár 2010 gegn fátækt |
| Stjórnhættir ehf. | 13.253.852 | Sérfræðiþjónusta – Verkefnisstjórn um verkefnaflutning |
| Stjórnhættir ráðgjöf slf. | 12.710.120 | Sérfræðiþjónusta – Verkefnisstjórn um verkefnaflutning |
| ASK Arkitektar ehf. | 20.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Ingegerd Hedvig S Narby | 6.000 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Koma orðum að ehf. | 42.500 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Scriptorium ehf. | 38.250 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Þýðingastofa JC ehf. | 65.666 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| IRI ehf. | 67.230 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Jón Rúnar Sveinsson | 622.500 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Tuomas Jarvela | 12.000 | Þýðendur og túlkar – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| ARGH ehf. | 142.072 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Þorbjörg Eva Erlendsdóttir | 16.064 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Arnar Þór Jóhannesson | 35.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Ekon Dr Per Ahren | 72.048 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Elías Oikarinen | 107.510 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Erla Sigurðardóttir | 17.465 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Gwilym Price | 187.536 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Hugveitan ehf. | 290.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Ingi Rúnar Eðvarðsson | 50.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Kristinn Karlsson | 64.634 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Nýttu kraftinn ehf. | 100.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Palvi Valkama | 107.325 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Soffía Gísladóttir | 50.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Soren Brage | 55.772 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Stefán Ólafsson | 130.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Stjórnhættir ráðgjöf slf. | 125.500 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Studio F ehf. | 385.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Tinna Laufey Ásgeirsdóttir | 50.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Þórdís Hadda Yngvadóttir | 200.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Kársnesskóli | 40.000 | Sérfræðiþjónusta – Norræn nefnd um félags- og heilbrigðismál |
| Ásgeir Sigurgestsson | 2.366.375 | Sálfræðiþjónusta – notendastýrð þjónusta fatlaðra |
| Háskóli Íslands | 627.500 | Sálfræðiþjónusta – notendastýrð þjónusta fatlaðra |
| Ketill Guðjón Jósefsson | 17.500 | Sálfræðiþjónusta – notendastýrð þjónusta fatlaðra |
| Háskóli Íslands | 7.067.500 | Sérfræðiþjónusta – aðgerðaráætlun um ofbeldi |
| Hildigunnur Ólafsdóttir | 1.760.000 | Sérfræðiþjónusta – aðgerðaráætlun um ofbeldi |
| Skjal ehf. | 367.209 | Þýðendur og túlkar – rannsóknarverkefni um mansal |
| Félagsráðgjafinn ehf. | 1.846.571 | Sálfræðingar, félagsfræðingar – velferðarvakt |
| Þýðingastofa JC ehf. | 188.316 | Þýðendur og túlkar – velferðarvakt |
| Háskóli Íslands | 300.000 | Sérfræðiþjónusta – könnun velferðarvaktarinnar |
| Kná ehf. | 100.000 | Sérfræðiþjónusta – velferðarvakt, rýnihópur atvinnulausra ungmenna |
| Háskóli Íslands | 3.101.000 | Sérfræðiþjónusta – vinna v/kynbundinn launamunur |
| Skjal ehf. | 19.430 | Sérfræðiþjónusta – flóttamannaráð |
| Íris Björg Kristjánsdóttir | 340.000 | Sérfræðiþjónusta – flóttamannaráð |
| InterCultural Ísland ehf. | 15.000 | Þýðendur og túlkar – flóttamannaráð |
| Margrét Steinarsdóttir | 700.000 | Þýðendur og túlkar – flóttamannaráð |
| GH1hf. | 2.028.000 | Hlutdeild ráðuneytisins v/sparnaðarátaks í ríkisrekstri |
| InDevelop Íslandi ehf. | 9.080.000 | Sérfræðiþjónusta – sameining stofnana |
| Yngvi Örn Kristinsson | 1.428.526 | Sérfræðiþjónusta – skuldamál heimilanna |
| 87.904.184 |