Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 191. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 501  —  191. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum.

Frá minni hluta heilbrigðisnefndar.


    Minni hlutinn leggst gegn því að ákvæðinu verði frestað. Með því að fresta því allt til ársins 2014 er verið að fara þvert gegn markmiðum laga um sjúkratryggingar en þar segir í 1. gr.:
    „Markmið laga þessara er að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag, svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum og í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu, lög um réttindi sjúklinga og önnur lög eftir því sem við á.
    Jafnframt er markmið laga þessara að stuðla að rekstrar- og þjóðhagslegri hagkvæmni heilbrigðisþjónustu og hámarksgæðum hennar eftir því sem frekast er unnt á hverjum tíma. Þá er markmið laga þessara að styrkja hlutverk ríkisins sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og kostnaðargreina heilbrigðisþjónustuna.“
    Þessar tvær markmiðsgreinar tengjast órjúfanlegum böndum, því til að tryggja öllum heilbrigðisþjónustu þarf greiðandi þjónustunnar að gera eins góða samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu og kostur er. Engin betri leið hefur fundist en kostnaðargreining þjónustunnar en það leiðir m.a. af sér að samið er um þá þjónustu sem hagstæðust er hverju sinni.
    Umsagnaraðilar voru mjög afgerandi og lögðust eins og minni hlutinn gegn þessari breytingu:
     Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu: „Stjórn SFH telur brýnt að ljúka gerð þessara þjónustusamninga sem allra fyrst en breyting á þessum lögum stefnir málinu í allt aðra átt.“
     Læknafélag Íslands: „Félagið er andvígt fyrirhugaðri frestun.“
     Landspítali: „Landspítali gerir ekki sérstakar athugasemdir við frumvarp til laga um sjúkratryggingar. Hins vegar telur Landspítali ástæðu til að lýsa yfir vonbrigðum vegna frestunar gildistöku ákvæðis um samninga við heilbrigðisstofnanir sem frumvarpið felur í sér enda hefur það verið stefnumál sjúkrahússins um árabil að fjárveitingar til spítalans fylgi þjónustu við sjúklinga og öðrum verkefnum í meiri og skýrari mæli en nú er. Slík fjármögnun er nú viðhöfð gagnvart öllum öðrum háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum og gjarnan staðið að henni með samningum á borð við þá sem frestað er í nefndu frumvarpi.“
     Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga: ,,Stjórnin telur mikilvægt að farið sé vel með almannafé og skýrt sé hvaða þjónustu ríkið og ríkisstofnanir eru á hverjum tíma að kaupa af sveitarfélögum og öðrum rekstraraðilum hjúkrunarheimila. Einnig er brýnt að heimilismenn og aðstandendur geti fengið upplýsingar um hvaða þjónustu ber að veita og hvaða viðmiðanir eru í gildi varðandi þann mannafla sem þjónustuna veitir á hverju heimili. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að skýrir þjónustusamningar séu í gildi á milli aðila. Stjórn Fíh leggst því gegn því að gildistöku umrædds ákvæðis verði frestað.“ „Stjórnin fullyrðir að með skýrum þjónustusamningum fáist meira fyrir það fé sem veitt er til reksturs hjúkrunarheimila hér á landi.“
    Í athugasemdum með frumvarpinu er talað um að ástæða frestunar á ákvæðinu hafi verið vegna minni tekna ríkissjóðs. Í minnisblaði forstjóra SÍ er farið yfir þetta atriði, en þar segir:
     „Þann forsendubrest sem vitnað er til í athugasemdum með frumvarpinu til skýringar á frestun umræddrar samningsgerðar á vegum SÍ má fyrst og fremst rekja til þess að stofnunin hefur ekki fengið nauðsynlegar fjárveitingar til að sinna verkefninu. Það hefur á hinn bóginn ekki með aukinn kostnað fyrir ríkið að gera heldur það að heilbrigðisráðuneytið hefur ekki fylgt eftir tilflutningi starfa og fjárveitinga til SÍ eins og til stóð þegar lögin um sjúkratryggingar voru samþykkt.
    Í því sambandi má nefna:
     *      Ekki er enn lokið við áformaða fjárhagslega uppskiptingu milli TR og SÍ í samræmi við niðurstöðu ráðgjafanna sem unnu að aðskilnaðinum fyrir forsætisráðuneytið (kostnaðargreining TR, dags. 6. maí 2008, lögð fyrir heilbrigðisnefnd Alþingis í aðdraganda laga nr. 112/2008).
     *      Ekki hefur enn orðið af tilflutningi 5–6 starfsmanna frá aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins til stofnunarinnar vegna samningamálanna, sbr. til dæmis umsögn fjármálaráðuneytis um frumvarp til laga um sjúkratryggingar (þskj. 955, 613. mál).
     *      Ekki hefur enn orðið af tilflutningi starfsmanna frá heilsugæslunni og Landspítalanum sem sinnt hafa samningsgerð og öðrum verkefnum sem SÍ var ætlað að sinna, sbr. til dæmis ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.“
    Minni hlutinn leggur til að ráðherra klári þetta verkefni í stað þess að fresta ákvæðinu.

Alþingi, 13. des. 2010.



Guðlaugur Þór Þórðarson,


frsm.


Ragnheiður Ríkharðsdóttir.