Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 94. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 503  —  94. mál.
Leiðrétting.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um hlutdeild Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum.

     1.      Hvað eiga íslenskir einstaklingar og lögaðilar mikið í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum? Hver eru fyrirtækin, hvar starfa þau, hver er hlutur Íslendinga í þeim, hvenær eignaðist íslenski aðilinn fyrst hlut í fyrirtækinu og hvers virði er heildarhlutur Íslendinga í fyrirtækjunum talinn?
    Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands var fjármunaeign Íslendinga erlendis í sjávarútvegi um 9 milljarðar kr. í lok árs 2009. Með vísan til þagnarskyldu, sbr. lög um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, er ekki hægt að gefa upp hvaða fyrirtæki þetta eru, hvar þau starfa, hlutdeild Íslendinga í fyrirtækjunum, hvenær Íslendingarnir eignuðust fyrst hlut í fyrirtækjunum eða virði heildarhlutar þeirra.

     2.      Hver eru tuttugu umsvifamestu fyrirtækin að fjórðungi eða meira í eigu Íslendinga (velta) og hverjir eru tuttugu helstu eigendur erlendra sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis (miðað við veltu fyrirtækis og hlut)?
    Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra er ekki vitað hver eru tuttugu umsvifamestu fyrirtækin að fjórðungi eða meira í eigu Íslendinga og hverjir eru tuttugu helstu eigendur erlendra sjávarútvegsfyrirtækja hérlendis.