Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 383. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 509  —  383. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um framlög til kvikmyndagerðar og fleiri listgreina.

Frá Sigurgeir Sindra Sigurgeirssyni.



     1.      Hver eru framlög í samningum við fagfélög annarra listgreina en kvikmyndagerðar, þ.e. leiklistar, tónlistar, myndlistar, hönnunar og ritlistar, samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs og tillögu ráðuneytisins fyrir næsta ár, en samkvæmt gildandi samningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis við fagfélög í kvikmyndagerð eiga framlög til kvikmyndasjóða að minnka um rúm 35%?
     2.      Hvers vegna er tillaga um niðurskurð til kvikmyndagerðar ekki endurskoðuð í ljósi upplýsinga í skýrslu sem Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda lét vinna í vor þar sem kemur fram að þessi niðurskurður til kvikmyndasjóða í mennta- og menningarmálaráðuneytinu leiðir til tekjutaps í fjármálaráðuneytinu sem er meira en nemur hinum meinta sparnaði?


Skriflegt svar óskast.