Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 174. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 514  —  174. mál.




Svar



dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um eftirlit Bandaríkjamanna með mannaferðum við Laufásveg.

     1.      Hversu lengi hefur „eftirlitssveit“ á vegum Bandaríkjastjórnar eða sendiráðs Bandaríkjamanna í Reykjavík starfað hér á landi?
    Ráðherra fól embætti ríkislögreglustjóra að kanna starfsemi svokallaðrar eftirlitssveitar eða öryggissveitar við bandaríska sendiráðið 8. nóvember sl. Ríkislögreglustjóri skilaði ráðuneytinu skýrslu 16. nóvember sl. Svör við þeim spurningum sem settar eru fram í þessari fyrirspurn byggjast á þeirri skýrslu. Hefur hún nú verið gerð opinber á heimasíðu ráðuneytisins og er einnig að finna í fylgiskjali hér á eftir. Við vinnslu skýrslu ríkislöreglustjóra voru lagðar ítarlegar spurningar fyrir sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Þeim spurningum var aðeins að hluta til svarað en samkvæmt upplýsingum bandarískra stjórnvalda var ákveðið að koma á fót öryggissveitum við öll sendiráð Bandaríkjamanna erlendis í kjölfar mannskæðra árása á sendiráð Bandaríkjanna í Austur-Afríku árið 1998. Í svörum sínum geta Bandaríkjamenn þess ekki hvenær starfsemi eftirlitssveitar hófst á Íslandi.

     2.      Hafa stjórnvöld eða lögregluyfirvöld haft vitneskju um starfsemina og ef svo er, síðan hvenær?
    Í svari bandarískra yfirvalda við spurningu um hvort þau hafi upplýst íslensk stjórnvöld um eftirlitssveitina, starfsemi hennar og umsvif þegar sveitin var stofnuð, kemur fram að sendiráðum Bandaríkjanna hafi verið falið að hafa samráð við viðeigandi stjórnvöld í gistiríkjum um öryggisráðstafanir þessar. Ekki kemur fram hvort þetta hafi verið gert, hvernig eða til hvaða yfirvalda á Íslandi sendiráðið sneri sér. Þó kemur fram að síðustu tíu ár hafi sendiráðið haft víðtækt samráð við samstarfsaðila sinn, íslensku lögregluna, hvað varðar öryggismál sendiráðsins.
    Í skýrslu ríkislögreglustjóra kemur fram að sérsveit ríkislögreglustjóra hefur verið tengiliður af hálfu íslensku lögreglunnar við öryggisstjóra bandaríska sendiráðsins í samræmi við skyldur Íslands sem gistiríkis. Árlega hafi verið fundað með öryggisstjóranum og sé sams konar samstarfi haldið uppi við fulltrúa annarra sendiráða. Embætti ríkislögreglustjóra hafi borist ábendingar frá sendiráðinu um grunsamlegt atferli og hefur sendiráðinu ætíð verið bent á að hringja í neyðarsíma lögreglu telji sendiráðið viðkomandi einstaklinga ógna öryggi sendiráðsins.

     3.      Hversu margir starfsmenn vinna við þessa iðju og hvar eru þeir staðsettir?
     4.      Hvaða svæði er vaktað?

    Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvaða svæði eftirlitssveit bandaríska sendiráðsins vaktar. Í svörum bandarískra stjórnvalda segir að eftirlitssveitinni sé ætlað að greina hvort fylgst sé með sendiráðssvæðinu hér á landi og að samkvæmt mati þeirra séu slíkar öryggisráðstafanir liður í venjubundnum aðgerðum til að verja sendiráðsbyggingar og til þess að tryggja öryggi starfsmanna sendiráðsins, gesta og annarra sem eiga erindi við fulltrúa Bandaríkjastjórnar. Eftirlitssveitinni sé ætlað að fylgjast kerfisbundið – og þannig að leynt fari – með stöðum nærri bandarískum sendiráðsbyggingum sem njóta verndar.

     5.      Hvers kyns heimildir hafa verið veittar fyrir þessari starfsemi Bandaríkjamanna, hver veitti heimildina og hvenær?
    Samkvæmt alþjóðasamningi um stjórnmálasamband (Vínarsamningurinn), sbr. lög nr. 16/1971, er erlendum sendiráðum sem á Íslandi starfa heimilt „að afla á löglegan hátt upplýsinga um ástand og þróun mála í móttökuríkinu og gefa ríkisstjórn sendiríkisins skýrslur um það.“ Einnig mega þau grípa til þeirra öryggisráðstafana sem nauðsynlegar eru taldar á sendiráðssvæðum eins og þau eru skilgreind í samningnum.
    Engar heimildir hafa verið veittar fyrir starsfemi eftirlitssveitar Bandaríkjamanna umfram þær heimildir sem er að finna í Vínarsamningnum og íslenskum lögum.
    Í svari bandarískra stjórnvalda segir að eftirlitssveitin sinni viðfangsefnum í samræmi við 3. gr. Vínarsamningsins um stjórnmálasamband frá árinu 1961 og vísað er til skuldbindinga Íslands sem gistiríkis samkvæmt 22(2) gr. Vínarsamningsins en samkvæmt henni hvílir sérstök skylda á mótttökuríkinu að gera allar þær ráðstafanir sem viðeigandi eru, til að vernda sendirráðssvæðið fyrir árásum og tjóni og koma í veg fyrir röskun á friði sendiráðsins eða skerðingu á virðingu þess. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnir almennu eftirliti með bandaríska sendiráðinu eins og öðrum sendiráðum og þá ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra.

     6.      Hafa Bandaríkjamönnum eða starfsmönnum þeirra verið veitt tilskilin leyfi, m.a. Persónuverndar, til að safna upplýsingum um íslenska ríkisborgara og skrá í gagnagrunn sem er rekinn á vegum erlends ríkis?
     Á árinu 1998 var til umfjöllunar hjá íslenskum stjórnvöldum umsókn bandaríska sendiráðsins um að setja upp hreyfanlega öryggismyndavél gegnt sendiráðinu og aðsetri sendiherrans við Laufásveg. Í því máli var aflað álits Tölvunefndar og taldi nefndin vinnslu upplýsinga af því tagi sem um ræðir í málinu ekki brjóta í bága við ákvæði laga nr. 121/1989 enda yrði hún framkvæmd með tilteknum skilmálum. Ekki var um að ræða heimild til þess að safna upplýsingum um íslenska ríkisborga og skráningu þeirra í gagngrunn sendiráðsins.
Ríkislögreglustjóri spurði bandaríska sendiráðið hvort eftirlitssveitin safni upplýsingum um íslenska ríkisborgara eða erlenda ríkisborgara á Íslandi. Sé svo var beðið um að skýrt yrði frá því um hvaða upplýsingar væri að ræða, hvernig þeim væri safnað og í hvaða tilgangi. Þessari spurningu er svarað að hluta þar sem upplýst er að eftirlitssveitin skráir niður mannaferðir við sendiráðið sem taldar eru grunsamlegar og tekur niður skráningarnúmer grunsamlegra bifreiða. Jafnframt segir í svarinu að ljósmyndir séu teknar og sendar ríkislögreglustjóra þegar ástæða þyki til.

     7.      Hvaða reglur gilda um geymslu og eyðingu þeirra gagna sem er safnað á vegum „eftirlitssveitarinnar“ og skráð eru í SIMAS-gagnagrunn bandarískra stjórnvalda?
    Bandarísk stjórnvöld svara ekki spurningum um hvaða reglur gildi um geymslu, meðhöndlun og eyðingu þeirra upplýsinga sem eftirlitssveit sendiráðsins aflar umfram þær almennu upplýsingar sem veittar eru um SIMAS- kerfið, sem er netkerfi sem rekið er af þeirri skrifstofu bandaríska utanríkisráðuneytisins sem ábyrg er fyrir öryggi sendiráða og starfsmanna erlendis. Af svarinu að ráða er um að ræða miðlægan grunn þar sem skráð eru öll þau atvik sem sendiráð erlendis telja ástæðu til að flokka sem grunsamleg. Í hverju sendiráði starfar svæðisstjóri öryggismála sem metur framkomnar upplýsingar eftirlitssveitar og ákveður viðbrögð, til að mynda þau að vísa atferli sem talið er grunsamlegt til yfirvalda í gistiríki til frekari athugunar.

     8.      Hvernig er eftirliti íslenskra stjórnvalda með þessari starfsemi háttað?
     9.      Telur ráðherra að starfsemi sveitarinnar standist lög og að mannréttindi og persónufrelsi íbúa í nágrenni bandaríska sendiráðsins séu virt?

    Í svari bandarískra yfirvalda segir að eftirlitssveitin sinni verkefnum sem kveðið er á um í 3. gr. Vínarsamningsins um stjórnmálasamband og sé til styrktar þeim ráðstöfunum sem ríkisstjórn Íslands, sem gistiríki, geri í því skyni að uppfylla þá skyldu sína að tryggja öryggi bandaríska sendiráðsins samkvæmt grein 22(2).
    Af þjóðarrétti leiðir að sendiráðum er heimilt að grípa til öryggisráðstafana á sendiráðssvæðum. Þetta á einnig við um heimili sendiherrans. Í svari bandarískra stjórnvalda kemur fram að starfsemi eftirlitssveitarinnar falli undir venjubundnar aðgerðir til að tryggja öryggi sendiráðssvæða.
    Íslensk stjórnvöld geta ekki haft afskipti af því hvernig öryggisráðstöfunum er háttað innan sendiráðssvæðisins. Utan þess gilda á hinn bóginn íslensk lög og sé talið nauðsynlegt að grípa til aðgerða vegna umsvifa aðila sem talin eru ógn við öryggi sendiráðsins er það í verkahring íslenskrar lögreglu.
    Svör bandarískra yfirvalda við spurningum ríkislögreglustjóra nægja ekki til að unnt sé að skera úr um hugsanleg brot gegn íslenskum lögum. Það á við um umsvif og starfsaðferðir eftirlitssveitarinnar og starfsmanna hennar. Það á einnig við um hugsanleg brot gegn lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og lögum um öryggisþjónustu.
    Þar sem ekki fengust svör við þeim spurningum sem lutu að því hvort íslenska ríkisborgara væri að finna í hópi starfsmanna eftirlitssveitar sendiráðsins og þar sem ekki var upplýst um starfsaðferðir sveitarinnar og fleira sem að starfsemi hennar lýtur verður ekkert fullyrt um hvort íslensk lög hafi hugsanlega verið brotin hvað varðar framkvæmd þeirrar „öryggisáætlunar“ sem vísað er til í upphafi svars bandarískra stjórnvalda. Í þessu ljósi ákvað ráðherra að senda embætti ríkissaksóknara málið til þóknanlegrar meðferðar og var það gert með bréfi dagsettu 14. desember 2010.


Fylgiskjal.


Skýrsla um könnun embættis ríkislögreglustjóra
á starfsemi öryggissveitar sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík.

25. nóvember 2010.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Opinber útgáfa.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.