Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 532 — 262. mál.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.
1. Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 hefur heildarstöðugildafjöldi hjá ráðuneytinu staðið nokkuð í stað. Eftirfarandi breytingar urðu á árinu 2009. Á fyrri hluta árs 2009 voru gerðar skipulagsbreytingar hjá ráðuneytinu. Lagðar voru niður skrifstofustjórastöður og nýjar stöður auglýstar lausar til umsóknar. Skrifstofustjórastöðum var fækkað úr fimm í fjórar. Einn skrifstofustjóri fór í leyfi og var starfsmaður ráðuneytisins settur skrifstofustjóri í fjarveru hans. Einn nýr sérfræðingur var ráðinn til starfa og annar ráðinn tímabundið í fjóra mánuði. Þrír sérfræðingar hættu á árinu og voru aðrir ráðnir í þeirra stað. Einn sérfræðingur fór í fæðingarorlof og var sérfræðingur ráðinn tímabundið í hans stað.
Á árinu 2010 urðu eftirfarandi breytingar. Tveir skrifstofustjórar óskuðu eftir lausn frá embætti. Setning skrifstofustjóra frá árinu 2009 var framlengd til áramóta og starfandi skrifstofustjóri settur í hina stöðuna til áramóta. Einn nýr starfsmaður var fastráðinn og tveir ráðnir tímabundið. Þá fór sérfræðingur í fæðingarorlof og var annar ráðinn tímabundið í hans stað. Við ráðherraskipti í september urðu breytingar á stöðum bílstjóra ráðherra, bílstjóri heilbrigðisráðuneytis var ráðinn til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og starfandi bílstjóri var ráðinn til fjármálaráðuneytis.
Hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu eru nú 33,5 stöðugildi. Um er að ræða ráðuneytisstjóra, þrjá skrifstofustjóra, forstöðumann Jöfnunarsjóðs, 20 sérfræðinga, ritara ráðherra, bifreiðastjóra, tvo móttökuritara, einn upplýsingafulltrúa, tvo stjórnarráðsfulltrúa og starfsmann í hálfu starfi við vefsíðu.
Kynjahlutfall starfsmanna er 17 konur og 17 karlar. Launakostnaður með launatengdum gjöldum fyrir tímabilið 1. janúar 2009 til og með september 2010 er samtals 452,6 millj. kr. Laun ráðherra og aðstoðarmanns ráðherra eru greidd frá forsætisráðuneytinu.
2. Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
Laun starfsmanna ráðuneytisins voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. ágúst 2009 um sparnaðaraðgerðir. Lækkunin var frá 3–10% og náði til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þús. kr. Lækkunin var útfærð með lækkun yfirvinnu en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var tilkynnt á fundi um lækkunina og síðar afhent bréf með tilkynningu um breytingu, með þriggja mánaða fyrirvara eða samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um.
3. Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
Á því tímabili sem spurt er um keypti ráðuneytið sérfræðiþjónustu fyrir 35.180.943 kr., sbr. eftirfarandi töflu:
4. Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
Ráðuneytið hefur þá ófrávíkjanlegu vinnureglu að kaupa aldrei sérfræðiþjónustu af einkaaðilum nema það sé metið óhjákvæmilegt vegna þess að sérfræðiþekking á málefninu sé ekki fyrir hendi í ráðuneytinu eða stofnunum þess eða vegna þess að ráðuneytið hafi ekki yfir að ráða mannafla til að leysa verkefnið af hendi.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 532 — 262. mál.
Svar

| Tilgangur | Fjárhæð | |
| Anne Cecilia Benassi | 48.060 | |
| þýðendur | 48.060 | |
| Arkiteo ehf. | 664.500 | |
| arkitektaþjónusta vegna breytinga á húsnæði | 664.500 | |
| Capacent hf. | 1.129.239 | |
| ráðgjöf vegna stefnumótunar | 627.065 | |
| ráðgjöf vegna skipulags og stjórnunar, mannauðsmál | 200.803 | |
| hlutdeild í sérfræðiþjónustu vegna sparnaðarátaks | 301.371 | |
| Consultis ehf. | 800.000 | |
| ráðgjöf vegna athugunar á lestarsamgöngum | 800.000 | |
| Endurskoðendaþjónustan ehf. | 800.000 | |
| ráðgjöf vegna fjárhags Bolungarvíkurkaupstaðar | 800.000 | |
| Evrópuráðgjöf alþjóðatengsl ehf. | 6.717.695 | |
| ráðgjöf vegna sameiningar sveitarfélaga | 6.717.695 | |
| Feti ehf. | 91.437 | |
| gerð skráningartöflu fyrir hafnarhúsið | 91.437 | |
| G&T ehf. | 2.957.186 | |
| endurskoðun sveitarstjórnarlaga | 2.047.186 | |
| ráðgjöf vegna sameiningar sveitarfélaga | 910.000 | |
| GH1 hf. | 30.000 | |
| endurskoðun sveitarstjórnarlaga | 30.000 | |
| GSP samskipti ehf. | 70.000 | |
| sérfræðiþjónusta vegna almannatengsla | 70.000 | |
| Gunnar Valberg Andrésson | 20.000 | |
| ljósmyndun | 20.000 | |
| Hagvangur ehf. | 759.450 | |
| ráðningarþjónusta | 759.450 | |
| Haukur Björgvinsson | 60.000 | |
| þýðendur | 60.000 | |
| Hákon Gunnarsson | 81.450 | |
| ráðgjöf vegna stefnumótunar | 81.450 | |
| Háskóli Íslands | 704.000 | |
| sérfræðiráðgjöf vegna áætlunar um vegtolla og aðkomu lífeyrissjóða að framkvæmdum í vegagerð | 704.000 | |
| Heilsuvernd ehf. | 139.692 | |
| heilsuefling | 139.692 | |
| HLH ehf. | 3.405.000 | |
| sérfræðiþjónusta vegna fjárhaldsstjórnar Álftaness | 3.405.000 | |
| Hrif ehf. | 166.020 | |
| heilsuefling | 166.020 | |
| Inga Freyja Arnardóttir | 68.000 | |
| aðstoð við skjalafrágang | 68.000 | |
| Juris hf. | 4.458.859 | |
| lögfræðiþjónusta vegna ýmissa mála | 1.007.500 | |
| sérfræðiþjónusta vegna fjárhaldsstjórnar Álftaness | 3.013.050 | |
| ráðgjöf vegna sameiningar opinberra hlutafélaga | 438.309 | |
| KPMG hf. | 1.300.100 | |
| sérfræðiþjónusta vegna fjárhaldsstjórnar Álftaness | 100.100 | |
| ráðgjöf vegna reglugerðar um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga | 1.200.000 | |
| Lögmenn Laugavegi 3 ehf. | 46.500 | |
| lögfræðiþjónusta vegna ýmissa mála | 46.500 | |
| Mannvit hf. | 551.513 | |
| verkfræðiþjónusta vegna samgönguáætlunar | 376.998 | |
| sérfræðiþjónusta vegna stækkunar ljósleiðaragrunnnets | 174.515 | |
| Rannsóknastofnun Hásk. Akureyri | 65.964 | |
| sérfræðiþjónusta vegna sóknaráætlunar | 65.964 | |
| Reykjavíkurborg | 755.139 | |
| ráðgjöf vegna athugunar á lestarsamgöngum | 755.139 | |
| Róbert Ragnar Spanó | 1.240.000 | |
| lögfræðiþjónusta vegna lagafrumvarpa | 1.240.000 | |
| Sigurður G. Guðjónsson ehf. | 221.000 | |
| lögfræðiþjónusta vegna starfsmannamála | 170.000 | |
| lögfræðiþjónusta vegna ýmissa mála | 51.000 | |
| Stjórnhættir ehf. | 6.687.500 | |
| endurskipulagning samgöngustofnana | 3.207.500 | |
| sérfræðiþjónusta vegna fjárhaldsstjórnar Álftaness | 1.020.000 | |
| sérfræðiráðgjöf vegna endurskipulagningar samgöngustofnana | 2.460.000 | |
| Túnfiskar sf. | 11.440 | |
| þýðendur | 11.440 | |
| Verkfræðistofan Víðsjá ehf. | 378.376 | |
| verkfræðiþjónusta vegna breytinga á húsnæði | 378.376 | |
| Vinnuvernd ehf. | 20.034 | |
| heilsuefling | 20.034 | |
| VSÓ Ráðgjöf ehf. | 732.789 | |
| verkfræðiþjónusta vegna samgönguáætlunar | 379.425 | |
| ráðgjöf vegna athugunar á lestarsamgöngum | 353.364 | |
| Samtals | 35.180.943 | |