Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 259. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 548 — 259. mál.
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.
1. Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 var heildarstöðugildafjöldi hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins og Jarðeignum ríkisins alls 43 starfsmenn, 18 karlar og 25 konur, þar af var einn starfsmaður í launalausu leyfi 1. janúar 2009 en 1. október 2010 er hann kominn til starfa á ný.
Á tímabilinu urðu eftirtaldar breytingar: Ráðinn var upplýsingafulltrúi ráðuneytisins tímabundið 1. maí 2010 sem lét af störfum 31. ágúst 2010. Skrifstofustjóri auðlindaskrifstofu ráðuneytisins hóf störf sem fiskimálafulltrúi í Brussel 1. ágúst 2010, en á sama tíma hætti annar fulltrúi ráðuneytisins í Brussel og hvarf til annarra starfa. Í mars 2010 var ráðinn starfsmaður til afleysinga í fæðingarorlofi. Stjórnarráðsfulltrúi hjá Jarðeignum ríkisins hætti og enginn ráðinn hans stað, lögfræðingur Jarðeigna fluttist til starfa í annað ráðuneyti og ráðinn var lögfræðingur tímabundið, þar til staðan var auglýst, en þá var lögfræðingur fastráðinn í ágúst 2010. Einn stjórnarráðsfulltrúi lét af störfum á tímabilinu, en nokkru áður hafði verið ráðið í starf hans. Engir starfsmenn voru ráðnir til sumarafleysinga árin 2009 og 2010.
Hjá ráðuneytinu eru 39,7 stöðugildi. Um er að ræða 1 ráðuneytisstjóra, 2 ritara, 6 skrifstofustjóra aðalskrifstofu, 1 skrifstofustjóri Jarðeignaskrifstofu, 12 sérfræðinga, 3 fulltrúa í Brussel, 6 stjórnarráðsfulltrúa, 5 stjórnarráðsfulltrúa Jarðeigna ríkisins, 3 móttökuritara, 3 skjalaverði og 1 bílstjóra ráðherra. Laun ráðherra og aðstoðarmanns ráðherra eru greidd af öðrum fjárlagalið.
Launakostnaður með launatengdum gjöldum tímabilið 1. janúar 2009 til 1. október 2010 var 628.702.853 kr.
2. Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
Kjararáð lækkaði laun starfsmanna ráðuneytisins sem falla undir ákvörðunarvald þess. Laun annarra starfsmanna voru lækkuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar um sparnaðarátak frá 18. ágúst 2009. Lækkunin nam 3–10% og náði til þeirra starfsmanna sem höfðu heildarlaun yfir 400 þús. kr. Aðferðafræðilega var lækkunarhlutfall hvers og eins útfært með fækkun yfirvinnutíma en grunnlaun héldust óbreytt. Starfsmönnum var hverjum og einum tilkynnt á fundi um fyrirhugaða lækkun og afhent bréf með tilkynningu um breytingu, með þriggja mánaða fyrirvara eða samkvæmt ákvæðum kjarasamninga þar um.
3. Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
Ráðuneytið hefur tekið saman yfirlit yfir aðkeypta sérfræðiþjónustu umrætt tímabil. Yfirlitið nær yfir fjárlagalið aðalskrifstofu ráðuneytisins og ýmissa verkefna á þess vegum.
4. Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?
Þegar ný verkefni og álitaefni koma upp er reynt að leysa þau af sérfræðingum og starfsfólki ráðuneytisins og stofnana þess. Oft koma þó upp verkefni sem krefjast sérstakrar sérfræðiþekkingar og ráðgjafar á viðkomandi sviði. Þar að auki er oft nauðsynlegt fá sjónarhorn óháðra og hlutlausra aðila á tiltekin sérhæfð útlausnarefni, m.a. vegna samráðs við þá sem málið varða. Þrátt fyrir þetta er allur meginþorri verkefna og úrlausnarefna sem upp koma hjá ráðuneytinu leystur af starfsmönnum þess og stofnunum sem undir það heyra.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 548 — 259. mál.
Svar

| Aðalskrifstofa | |||
| 2009 | 2010 | Verksali | Vegna |
| 2.365.000 | Parx | Samþætting undirstofnana | |
| 2.015.860 | 4.755.313 | Útgerðarfélagið Ískrókur ehf. | Ráðgjöf vegna fiskveiðistjórnunar |
| 46.200 | KPMG | Samþætting undirstofnana | |
| 1.648.727 | 2.403.242 | GH1 ehf. Capacent | Samþætting undirstofnana |
| 376.000 | 2.370.890 | Lex ehf. | Samráðsnefnd |
| 1.214.250 | 491.400 | Lögmenn Ránargötu ehf. | Aðstoð vegna fyrirspurnar |
| 17.735.273 | 1.410.000 | Jón B. Jónasson | Ráðgjöf vegna fiskveiðistjórnunar og afleysing vegna leyfa á fiskveiðistjórnunarsviði |
| 101.500 | Jón Höskuldsson | Búvörusamningur | |
| 102.400 | Evrópulög ehf. | ESB | |
| 630.000 | Skarphéðinn Pétursson | Úrskurðarnefnd gæðastýringar | |
| 90.000 | LM-lögmenn | Lög um stjórn fiskveiða | |
| 2.540.000 | Rannsóknarstofnun H.A. | Endurskoðun laga um fiskveiðistjórn | |
| 138.000 | Regula lögmenn | Málflutningur vegna riðubóta | |
| 2.250.000 | Bonafide | Endurskoðun laga um fiskveiðistjórn | |
| 83.720 | Ellen Margrét Ingvadóttir | Þýðingar | |
| 809.300 | 589.750 | Scriptorium ehf. | Þýðingar |
| 15.950 | Dudo ehf. | FAO-verkefni | |
| 16.120 | 5.200 | Túnfiskar sf. | Þýðingar |
| 587.202 | 368.035 | Magnús Rafnsson | ESB |
| 400.000 | JS þýðingar ehf. | Þýðingar | |
| 102.023 | Druzina | Þýðingar | |
| 290.695 | Davíð Guðmundsson | Búnaðarlagasamningur | |
| 69.000 | Stefán Vilberg Árnason | Þýðingar | |
| 585.000 | Sjávarútvegsþjónustan ehf. | Fiskeldisreglugerð | |
| 113.424 | Gunnar Ágúst Gunnarsson | Ráðgjöf – lífræn framleiðsla | |
| 356.597 | Ímyndunarafl ehf. | Kynningarefni á vefsíðu ráðuneytisins | |
| 101.200 | Þórhallur Birgir Jósepsson | Hagsmunasamtök um óvigtaðan fisk | |
| 891.162 | Hagþjónusta landbúnaðarins | Útreikningur v/OECD | |
| 50.000 | Ólafur Ísberg Hannesson | ESB | |
| 40.000 | Bjarni Guðmundsson | Sumarfundur NMR 2009 | |
| 1.274.900 | DMR | Matsnefnd eignarnámsbóta | |
| 3.410.000 | Háskóli Íslands | Skilvirkni aflaheimilda | |
| 1.500.000 | Hagstofa Íslands | Afkomutölur fiskveiða 2008 | |
| 30.726.803 | 23.665.730 | ||
| Ýmis verkefni | |||
| 2009 | 2010 | Verksali | Vegna |
| 261.675 | 43.250 | Deloitte hf. | Verðlagsnefnd landbúnaðarins |
| 100.000 | Jón Már Halldórsson | Sjávarútvegurinn í tölum | |
| 81.450 | Logos sf. | Framkvæmdanefnd búvöru | |
| 125.000 | Jón Páll Baldvinsson | Skýrsla um skelrækt | |
| 4.500 | 10.830 | Ellen Margrét Ingvadóttir | NAMMCO |
| 439.050 | Scriptorium ehf. | Reglugerð um hvalveiðar | |
| 238.885 | 128.000 | Alþjóðahús | Starfsmenntun |
| 118.881 | 128.007 | InterCultural | Starfsmenntun |
| 611.780 | Monika Figlarska | Starfsmenntun | |
| 220.000 | Anna Federowicz | Starfsmenntun | |
| 20.000 | Maríusz Wanecki | Starfsmenntun | |
| 712.500 | MarkMar | Rannsóknir á þorski | |
| 1.260.000 | Intellecta | Nefnd um kornrækt | |
| 261.675 | Deloitte hf. | Verðlagsnefnd landbúnaðarins | |
| 555.000 | Guðrún Marteinsdóttir | Nefnd um þorskrannsóknir | |
| 95.000 | Mentor ehf. | Starfsmenntun | |
| 150.000 | Ásta Möller | Nefnd um íslenska hestinn | |
| 990.852 | Veiðimálastofnun | NASCO-skýrsla um veiðistjórn 2008 | |
| 4.855.418 | 1.700.917 | ||