Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 228. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 553 — 228. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um kostnað langveikra sjúklinga af sjúkdómum sínum.
1. Liggur fyrir greining á mismunandi kostnaði langveikra sjúklinga af sjúkdómum sínum og ef svo er, er opinber aðstoð við langveika sjúklinga í samræmi við þennan kostnað?
Ekki liggur fyrir greining á mismunandi kostnaði langveikra sjúklinga af sjúkdómum sínum.
2. Tekur opinber aðstoð við langveika sjúklinga tillit til þess hvað þeir búa langt frá þeim stað þar sem þeir fá þjónustu?
Reglugerð nr. 871/2004, með síðari breytingum, varðar ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innan lands. Almenna reglan er sú varðandi langar ferðir að sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði við tvær ferðir sjúklings á 12 mánaða tímabili til að sækja að tilhlutan læknis óhjákvæmilega sjúkdómsmeðferð, sé a.m.k. 20 km vegalengd milli staða.
Þegar um að ræða illkynja sjúkdóma, nýrnabilun, alvarlega augnsjúkdóma, brýnar lýtalækningar, bæklunarlækningar barna, tannréttingar vegna meiri háttar galla eða alvarlegra tilefna svo og sambærilega sjúkdóma, taka sjúkratryggingar þátt í kostnaði við ítrekaðar ferðir sjúklings.
Reglugerðin tekur og til kostnaðar vegna styttri ferða.
Þá eru í gildi reglur um greiðslu dvalarkostnaðar foreldris/forráðamanns vegna sjúkrahúsinnlagnar barns enda sé a.m.k. 20 km vegalengd milli heimilis og sjúkrahúss. Ef um erfiða sjúkdómsmeðferð vegna lífshættulegs sjúkdóms er að ræða er heimilt að slík greiðsla nái til beggja foreldra/aðstandenda barns að 18 ára aldri.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 553 — 228. mál.
Svar