Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 249. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 554 — 249. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar um tækni- og raungreinamenntun.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig sér ráðherra fyrir sér að hægt verði að efla tækni- og raungreinamenntun á Íslandi á allra næstu árum, með það að markmiði að mæta sívaxandi eftirspurn atvinnulífsins eftir slíku vinnuafli? Er til áætlun þessa efnis innan ráðuneytisins sem starfað er eftir?
Á undanförnum missirum hefur eftirspurn aukist á vinnumarkaði fyrir starfsfólk með tæknimenntun. Að hluta til má skýra þessa aukningu með breytingum á samsetningu vinnumarkaðarins og meira vægi hugbúnaðariðnaðar og skapandi greina eins og tölvuleikjaframleiðslu. Eftirspurn atvinnulífsins eftir starfsfólki með tækni- og raungreinamenntun nær bæði til fólks með menntun á framhaldsskólastigi og á háskólastigi.
Rétt er að taka fram að undanfarin ár hefur nemendum í verk- og tæknigreinum fjölgað umtalsvert. Árið 2002 voru nemendur sem lögðu stund á verk- og tæknivísindi á háskólastigi 867 en sl. vetur voru þeir nærri tvöfalt fleiri, eða 1.653. Þá hefur þeim fjölgað sem leggja stund á framhaldsnám á háskólastigi í sömu fögum. Árið 2002 stunduðu tíu nemendur doktorsnám í verk-, tækni- og raunvísindum en nú eru þeir 92.
Nemendaþróun í raunvísindum hefur ekki verið sú sama. Nemendum fækkaði á árunum 2002–2008 en fjölgaði á nýjan leik í fyrra og eru þeir nú nokkru fleiri en fyrir átta árum. Fjöldi nemenda sem útskrifast með meistaragráðu í raunvísindum hefur á hinn bóginn tvöfaldast á sama tíma.
Ráðuneytið hefur brugðist við framangreindri þróun meðal annars með því að hækka fjárframlög til þessara greina. Við fjárlagagerð 2011 er gert ráð fyrir fjölgun nemenda í verk- og tæknifræði sem og í raunvísindanámi og nemur hækkun í framlögum til þessara greina um 100 nemendaígildum. Á síðustu sex árum hafa fjárveitingar til þessara greina hækkað um 58% á fjárlögum á sama tíma og hækkun á framlögum til hug- og félagsvísindagreina samsvarar um 36%.
Milli áranna 2002 og 2009 hefur skráðum nemendum á framhaldsskólastigi sem stunda starfsnám í raungreinum, verkfræði og tæknigreinum fjölgað úr rúmlega 3.200 upp í u.þ.b. 3.500. Fjöldi nemenda á þessum fagsviðum hefur staðið nokkurn veginn í stað frá 2007 þó að nemendum á fagsviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hafi fækkað um u.þ.b. 220 frá 2007. Aftur á móti fjölgaði nemendum í byggingar- og mannvirkjagerð í heildina frá árinu 2002 um 28%.
Ef verkfræði og tæknigreinar eru skoðaðar sérstaklega, þar sem m.a. er að finna málmiðnir, véltækni, rafiðnað og bíliðnir, þá fjölgaði nemendum um rúmlega 11% frá árinu 2002 og hefur þeim fjölgað um rúmlega 100 frá árinu 2007. Nemendum í almennu námi til stúdentsprófs á náttúrufræðibrautum (þ.m.t. skyldar raungreina- og tæknibrautir til stúdentsprófs) voru 3.814 árið 2002 og 5.096 árið 2009, sem er fjölgun um 33%.
Með lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla frá 2008 og í drögum að aðalnámskrám fyrir þessi skólastig og lögum um framhaldsfræðslu frá árinu 2010 eru innleiddar breytingar sem samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum styðja við eflingu starfs- og tæknimenntunar. Þar má nefna sameiginleg viðmið um hæfni og námslok (qualification system), sem gerir m.a. kleift að meta hæfni sem aflað er utan skólakerfisins til eininga með raunfærnimati. Einnig má nefna aukna áherslu á náms- og starfsráðgjöf og á framhaldsskólastigi er skólum veitt stóraukið svigrúm til að þróa nýjar námsbrautir í samvinnu við atvinnulífið. Starfsgreinaráð og starfsgreinanefnd, sem skipuð er formönnum ráðanna, eru ráðuneytinu til ráðgjafar varðandi eflingu starfsmenntunar og þar með tæknigreina. Þá má nefna aukna áherslu á menntun til sjálfbærni í nýjum drögum að námskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla sem m.a. byggist á að auka þekkingu og skilning á umhverfi og náttúru. Enn fremur þarf í samráði við sveitarfélög að skoða til lengri tíma hvernig megi efla vísinda- og tæknivitund í gegnum leik og fræðslu þar sem nemendur á ýmsum aldri geta kynnst raunhæfum og hlutbundnum verkefnum.
Að viðhalda og auka námsframboð í tækni- og raungreinum með fjárframlögum er eitt en annað er að beina fleirum nemendum í nám á þessu sviði. Ekki er sjálfgefið að aukið námsframboð laði fleiri námsmenn í slíkt nám. Hafa ber í huga að ákvörðun um að stunda tiltekið nám er á endanum einstaklingsbundin og því takmörk sett hvað hægt er að stýra námsvali. Þó skiptir markviss náms- og starfsráðgjöf þar miklu máli.
Ráðuneytið hefur undanfarin ár stutt með ýmsum hætti við kynningu á verk- og náttúruvísindum fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum. Dæmi um verkefni á þessu sviði eru Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda, tilraunaverkefni í framhaldsskólum í samvinnu við atvinnulífið á sviði nýsköpunar og tæknimenntar, tilraunahúsið í Vatnsmýrinni og Rafheimar í Elliðarárdalum. Á háskólastigi hefur kynning á verk- og náttúruvísindum til að mynda farið fram í gegnum Nýsköpunarsjóð námsmanna og Innovit frumkvöðlakeppnina en einnig má nefna Vísindavöku, árlega vitundarvakningu um vísindi, sem Rannís stendur fyrir.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 554 — 249. mál.
Svar