Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 230. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 565  —  230. mál.




Svar



sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um undanþágur frá banni við að sprauta hvíttunarefnum í fisk.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu lengi munu matvælayfirvöld veita undanþágur frá banni við að sprauta hvíttunarefnum í fisk við vinnslu?

    Um notkun aukefna í matvælum gildir reglugerð nr. 285/2002, með síðari breytingum. Sérstaklega er bent á viðauka II, en þar kemur fram hvaða aukefni má nota í fiskafurðir. Ekki er heimilt að nota fjölfosföt í ferskan eða saltaðan fisk, en heimilt er að nota fjölfosföt í frystan fisk og fiskafurðir. Undantekningarlaust er skylt að merkja aukefni ef þau eru notuð.
    Vegna óska Samtaka fiskvinnslustöðva féllst Matvælastofnun, hinn 7. apríl 2010, á að fresta áður boðuðum aðgerðum vegna notkunar fjölfosfata í saltfisk til 1. janúar 2011, þar sem lögð hafði verið fram umsókn til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að notkun fjölfosfata verði heimil í fleiri vörur, þ.m.t. saltfiski.
    Hinn 22. september 2010 bárust íslenskum yfirvöldum bréf frá Eftirlitsstofnun EFTA þar sem óskað var upplýsinga um breytta afstöðu Matvælastofnunar og óskað eftir afstöðu íslenskra yfirvalda vegna notkunar fosfata í saltfisk á Íslandi, sem að mati Eftirlitsstofnunar EFTA er óheimil.
    Ráðuneytið svaraði þessu erindi Eftirlitsstofnunar EFTA með bréfi, dags. 1. október 2010, og í framhaldi af því barst ráðuneytinu bréf frá stofnuninni, dags. 1. desember 2010 (Letter of formal notice), þar sem fram kom sú afstaða stofnunarinnar að yfirvöldum bæri að framfylgja umræddu banni við notkun fjölfosfata í saltfiskframleiðslu tafarlaust. Í bréfinu var veittur 10 daga frestur til að svara. Ef ekki yrði brugðist við yrði málinu fylgt eftir með dómstólameðferð hjá EFTA-dómstólnum og jafnframt bent á að Eftirlitsstofnun EFTA mundi hugsanlega gera kröfu um að tilteknum bráðabirgðaaðgerðum yrði beitt gegn Íslandi skv. 41. gr. samningsins um stofnun Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins. Slíkar aðgerðir felast í því að EFTA-dómstóllinn úrskurðar um tilteknar aðgerðir að kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA sem mundu þá taka gildi strax í janúar eða byrjun febrúar 2011 eftir því hversu hratt málið yrði rekið fyrir dómstólnum. Ekki er að finna nánari skýringar í 41. gr. EES-samningsins á því um hvers kyns bráðabirgðaráðstafanir gæti verið að ræða, en líklegt má telja að þær mundu felast í einhverjum tilteknum ráðstöfunum sem íslenskum yfirvöldum væri gert að grípa til í því skyni að tryggja að íslenskur saltfiskur yrði ekki fluttur út til ríkja innan EES-svæðisins. Sem dæmi um hugsanlega kröfugerð má nefna bann við markaðssetningu á saltfiskafurðum frá Íslandi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ef úrskurður félli Eftirlitsstofnun EFTA í vil mundu slíkar ráðstafanir taka gildi þegar við uppkvaðningu úrskurðar.
    Eftir fund ráðuneytisins með fulltrúum utanríkisráðuneytisins og forráðamönnum saltfiskframleiðenda 9. desember 2010, þar sem framangreind staða málsins var rædd, var ákveðið að fallast á kröfur Eftirlitsstofnunar EFTA um að efnisákvæðum löggjafarinnar yrði framfylgt án tafar, þ.e. frá og með 1. desember 2010 að telja. Bréf þessa efnis var sent Eftirlitsstofnun EFTA 10. desember 2010.
    Samkvæmt framansögðu hefur Matvælastofnun, frá og með 1. desember 2010, gengið eftir því að þessum ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt.