Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 313. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 585  —  313. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld.

Frá Eygló Harðardóttur og Birki Jóni Jónssyni.



    Við 3. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Við A-lið bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Einstakar gjafir til menningarmála, vísindalegra rannsóknastarfa, víðurkenndrar líknarstarfsemi og kirkjufélaga, enda sé gjöfin ekki undir 50.000 kr. Fjármálaráðherra ákveður með reglugerð hvaða málaflokkar og stofnanir falli undir þennan tölulið og hvernig skal standa að skráningu þeirra.