Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 604  —  153. mál.




Svar



dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um innheimtu fésekta og afplánun í fangelsinu að Bitru.

     1.      Hversu háar upphæðir hafa innheimst eftir að farið var að boða menn til afplánunar vararefsingar vegna ógreiddra fésekta í fangelsinu að Bitru?
    Þegar fangelsið að Bitru var opnað stóð til að taka frá fimm afplánunarrými í kerfinu svo að hægt væri að boða einstaklinga til afplánunar vararefsingar fésekta. Enginn var boðaður til afplánunar vararefsingar á Bitru. Hins vegar afplánuðu nokkrir einstaklingar vararefsingar fésekta í fangelsinu á Akureyri og í fangaklefum lögreglunnar á Hverfisgötu eftir að fangelsið að Bitru var opnað. Þrjú til fjögur rými voru þannig notuð í nokkrar vikur undir vararefsingar en í ljósi þess erfiða ástands sem uppi er í afplánunarmálum var ekki mögulegt að halda þessum rýmum fráteknum fyrir vararefsingar fésekta. Fangelsismálastofnun getur ekki að fullu stýrt því hverjir koma inn í afplánun þar sem stofnunin þarf að taka við einstaklingum sem úrskurðaðir eru í gæsluvarðhald eða eru hættulegir og var nauðsynlegt að taka öll möguleg afplánunarrými undir hefðbundnar fangelsisrefsingar og gæsluvarðhald/lausagæslu. Engar merkjanlegar breytingar urðu á innheimtu fésekta við opnun fangelsisins að Bitru.

     2.      Hafa kröfur fyrnst síðan fangelsið var opnað?
    Frá því að fangelsið að Bitru var opnað og til 15. nóvember 2010 hafa fésektir að fjárhæð 4.357.637 kr. verið afskrifaðar. Þetta eru allt sektir þar sem upprunaleg fyrningardagsetning var fyrir tveimur árum en fyrning var framlengd um tvö ár, sbr. heimild í 2. mgr. 83. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Ýmsar ástæður liggja á bak við það að sektirnar fyrnast, t.d. finnast einstaklingar ekki, þeir eru fluttir af landinu eða þeim hefur verið brottvísað af landinu.

     3.      Hver er upphæð óinnheimtra fjársekta sem hafa vararefsingu á bak við sig 1. nóvember?
    Fjárhæð ógreiddra sekta 10. nóvember 2010 nemur 2.921.199.739 kr.

     4.      Er áætlað að fjölga úrræðum í fangelsiskerfinu vegna slíkra mála?
    Nauðsynlegt er að fjölga úrræðum í fangelsiskerfinu, bæði vegna vararefsinga og vegna afplánunar refsinga yfirleitt. Skortur á fangelsisrými fyrir vararefsingar er bagalegur og má leiða að því rök að það borgi sig fjárhagslega fyrir ríkissjóð að halda opnum plássum vegna sekta sem innheimtast þegar menn eru boðaðir. Hins vegar eru settir í forgang einstaklingar sem eru virkir í afbrotum og hlotið hafa dóm.
    Það er mjög brýnt að fjölga úrræðum í fangelsiskerfinu sem allra fyrst. Það verður þó ekki gert með skynsamlegum hætti í einu vetfangi. Til marks um það má nefna að skásta skyndiúrræðið til að fjölga plássum felst í klefavistun á lögreglustöðvum. Til að gefa einhverja hugmynd um hvað það er afleitur kostur má nefna að flestir ónýttir klefar eru nú í Hafnarfirði, sex talsins. Til að nýta þá þyrfti að setja upp eins manns sólarhringsvakt á stöðinni, sem nú er ekki fyrir hendi, en lögreglustöðvar eru nú mjög óvíða mannaðar með sólarhringsvakt. Það kallar á fjóra til fimm starfsmenn og þýðir því nær einn starfsmann á móti hverjum fanga sem þar yrði vistaður. Klefar af þessu tagi eru yfirleitt án útiaðstöðu og allrar sameiginlegrar aðstöðu. Fangar þurfa því að sitja í klefum sínum allan sólarhringinn, fara á salerni í fylgd, en þeim er síðan fylgt út undir vegg í útivist. Þetta úrræði kemur því aðeins til greina í mjög skamman tíma fyrir hvern fanga. Þetta var þó gert nýlega á meðan á útboðsferli stóð, sem lauk með leigu á Bitru. Áréttað skal að Fangelsismálastofnun hefur ekki fjárveitingar fyrir neinum viðbótarrýmum og það virðist í meira lagi hæpið að nýta hugsanlegar viðbótarfjárveitingar til málaflokksins í rekstur af þessu tagi.
    Það er unnt að afla viðbótarhúsnæðis fyrir Fangelsismálastofnun með útboði og hefja þar rekstur nýrrar einingar. Þess ber hins vegar að geta að ekki er raunhæft að bæta við fleiri opnum einingum í bili því að nú þegar er unnt að vista að Kvíabryggju og Bitru þá fanga sem taldir eru hæfir til afplánunar í opnu fangelsi. Það þarf að bæta við fleiri deildum með raunverulegri aðstöðu til innilokunar. Það mun því alltaf hafa í för með sér töluverðan kostnað að koma á laggirnar viðbótarplássi með því að nýta eldra húsnæði, auk þess sem líklegt er að rekstur verði dýr í slíkri einingu, sem ekki er hönnuð fyrir þessar þarfir.
    Ráðuneytið vinnur nú að undirbúningi útboðs á nýju fangelsi, sem gert er ráð fyrir að rúmi allt að 56 fanga í samvinnu við fjármálaráðuneytið, Ríkiskaup og Fangelsismálastofnun. Reiknað er með að taka það í notkun eftir u.þ.b. tvö ár.
    Raunhæfasta leiðin til að létta hratt þrýstingi af kerfinu felst í því að samþykkja sem fyrst breytingar á fullnustulögunum sem fela í sér möguleika á að taka upp rafrænt eftirlit með föngum og aukna nýtingu á samfélagsþjónustu. Dómsmálaráðuneytið vinnur að slíku frumvarpi í samráði við nefnd sem þáverandi dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, skipaði síðastliðið sumar til að fara yfir löggjöf um fullnustu refsinga og móta stefnu í fangelsismálum. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að skoða úrræði í fullnustukerfinu og framtíðarsýn afplánunar. Miðað er við að frumvarpið verði lagt fram innan skamms.