Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 297. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 605 — 297. mál.
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um frávísanir útlendinga.
1. Hversu mörgum útlendingum hefur verið vísað frá landi við komu til Keflavíkurflugvallar frá árinu 2000, sundurliðað eftir árum?
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum var fjöldi útlendinga sem vísað var frá landinu við komu til Keflavíkurflugvallar eftirfarandi:
Árið 2000 62
Árið 2001 103
Árið 2002 64
Árið 2003 94
Árið 2004 65
Árið 2005 49
Árið 2006 18
Árið 2007 33
Árið 2008 10
Árið 2009 36
Í tíð eldri laga nr. 45/1965, um eftirlit með útlendingum, hafði lögreglustjóri heimild til að vísa útlendingum frá landi við komu til landsins í þeim tilvikum sem tilgreind voru í 1. mgr. 10. gr. laganna. Þar að auki hafði lögregustjóri heimild til að meina útlendingi landgöngu ef nauðsynlegt var talið af öðrum ástæðum en þeim sem þar voru raktar. Í ákvæði 4. mgr. 10. gr. laganna var tekið fram að ef útlendingur óskaði hælis mætti lögreglan eigi meina honum landgöngu enda teldist framburður hans sennilegur. Framkvæmdin var sú að ef hælisumsókn var ekki metin sennileg var henni synjað af lögreglu. Með gildistöku núgildandi útlendingalaga, nr. 96/2002, var frávísunarheimild laganna breytt á þann veg að ef útlendingur óskar hælis þá skal þá leggja málið fyrir Útlendingastofnun til meðferðar og ákvörðunar. Lögreglustjóri hefur því ekki lengur heimild til að taka ákvörðun um frávísun í þeim tilvikum er umsókn um hæli þykir ekki sennileg eins og í tíð eldri laga.
2. Hversu margir þeirra báðu um hæli hérlendis?
Árið 2000 sóttu fjórir um hæli af þeim einstaklingum sem var vísað frá.
Árið 2001 sótti 21 um hæli af þeim einstaklingum sem var vísað frá.
Árið 2002 sóttu tveir um hæli af þeim einstaklingum sem var vísað frá.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum var fjöldi beiðna um hæli, sem bornar voru fram í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á árunum 2000–2009, eftirfarandi:
Árið 2000 *
Árið 2001 42
Árið 2002 26
Árið 2003 34
Árið 2004 14
Árið 2005 21
Árið 2006 19
Árið 2007 5
Árið 2008 24
Árið 2009 18
* Við úrvinnslu gagna fundust ekki upplýsingar hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um fjölda hælisleitenda fyrir árið 2000 en samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var fjórum einstaklingum sem sóttu um hæli það ár frávísað. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2000 var hins vegar 25.
Á árinu 2001 sóttu 42 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar; 21 beiðni var synjað um afgreiðslu, 12 beiðnir fengu efnismeðferð og níu einstaklingar drógu beiðni sína til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2001 var 53.
Á árinu 2002 sóttu 26 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar; tveimur beiðnum var hafnað afgreiðslu og 10 einstaklingar drógu umsóknir sínar til baka. Útlendingastofnun tók 14 beiðnir til nánari skoðunar. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2002 var 117.
Á árinu 2003 sóttu 34 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en af þeim drógu 15 umsókn sína til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2003 var 80.
Á árinu 2004 sóttu 14 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en 5 þeirra drógu umsóknir sínar til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2004 var 76.
Á árinu 2005 sótti 21 einstaklingur um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en af þeim drógu tveir þeirra beiðni sína til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2005 var 87.
Á árinu 2006 sóttu 19 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2006 var 39.
Á árinu 2007 sóttu fimm einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2007 var 42.
Á árinu 2008 sóttu 24 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en tveir drógu beiðni sína til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2008 var 73.
Á árinu 2009 sóttu 18 einstaklingar um hæli í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en þrír drógu beiðni sína til baka. Heildarfjöldi hælisumsókna á Íslandi árið 2009 var 35.
3. Tíðkast að vísa útlendingum úr landi án þess að þeir fái tækifæri til að leggja inn hælisumsókn og án þess að mál þeirra sé tekið til efnislegrar skoðunar? Ef svo er, í hvaða tilfellum er það?
Útlendingur hefur ávallt möguleika á því að sækja um hæli við komu til landsins. Óski útlendingur eftir hæli hér á landi skal leggja málið fyrir Útlendingastofnun til meðferðar og ákvörðunar, sbr. 3. mgr. 18. gr. laga nr. 96/2002, um útlendinga.
Meðferð hælisumsókna hér á landi hefur tekið nokkrum breytingum á undanförnum árum sem skýrist fyrst og fremst af breytingum á lögum og reglum sem um þennan málaflokk gilda. Framkvæmdin er með þeim hætti að hlutverk lögreglu er að undirbúa mál fyrir Útlendingastofnun á upphafsstigum málsins en Útlendingastofnun fer með frekari meðferð málsins og tekur ákvörðun um í hvaða farvegi málið verði afgreitt (svo sem Dyflinnarmeðferð, flýtimeðferð, efnismeðferð). Lögregla tekur ekki slíkar ákvarðanir.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 605 — 297. mál.
Svar