Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 125. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 617  —  125. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um gúmmíkurl úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum.

     1.      Telur ráðherra að til greina komi af heilsufarsástæðum að banna eða takmarka notkun gúmmíkurls úr bíldekkjum, sem inniheldur krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni, á leikvöllum og gervigrasvöllum hérlendis?
    Danska umhverfisstofnunin lét vinna skýrslu árið um áhrif gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum á heilsu og umhverfi. Skýrslan ber heitið Mapping, emissions and environmental and health assessment of chemical substancies in artificial turf. 1 Þar kemur fram að algengt sé að kurluð gúmmídekk séu notuð sem fyllingarefni á gervigrasvöllum. Dekk geta innihaldið ýmiss konar hættuleg efni, svo sem arsen, ýmsa þungmálma, PAH, PCB, þalöt og fenól og því hafa vaknað upp spurningar um möguleg heilsufarsleg og umhverfisleg áhrif. Í skýrslunni er farið yfir rannsóknir frá Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Sviss og Frakklandi, auk rannsóknar sem skýrsluhöfundar létu gera, á heilsu og umhverfisáhrifum gúmmíkurls úr dekkjum sem notuð eru á gervigrasvöllum. Niðurstöður skýrslunnar gefa til kynna að notkun gúmmíkurls úr notuðum dekkjum á gervigrasvöllum hafi ekki áhrif á heilsu þeirra sem stunda íþróttir á slíkum völlum. Þó sé einhver hætta á að ofnæmisviðbrögð gagnvart efnum í gúmmíinu geti myndast hjá einstaklingum sem er mjög hætt við ofnæmi. Einnig kom í ljós að hættuleg efni geta komist út í umhverfið í einhverju magni gegnum sigvatn frá völlunum við verstu mögulegu aðstæður. Hægt er að koma í veg fyrir slík áhrif með viðeigandi mengunarvörnum, svo sem frárennsliskerfi. Í þessu ljósi er mikilvægt að rekstraraðilar leiksvæða og gervigrasvalla sem nota gúmmíkurl úr notuðum bíldekkjum setji fram upplýsingar fyrir notendur þessara útivistarsvæða, fyrst og fremst um að gæta að hreinlæti en líka um að bursta eða skola af líkamanum leifar af gúmmíi sem situr fast við líkama og föt til að minnka líkur á ofnæmisviðbrögðum, forðast inntöku gúmmíkurls og að ef vart verði ofnæmisviðbragða (venjulega roði á húð) skuli hætta íþróttaiðkun eða leik á vellinum. Ekki er því að mati ráðherra brýn ástæða til að banna notkun gúmmíkurls af þessu tagi á leikvöllum eða gervigrasvöllum af heilsufarsástæðum, en ástæða er til þess að hvetja eigendur nýrra leiksvæða og gervigrasvalla til að huga að öðrum mögulegum kostum en að nota kurluð gúmmídekk á slíkum svæðum. Ráðherra mun beina því til Umhverfisstofnunar að koma ábendingum um slíkt á framfæri við rekstraraðila þessara staða og vekja athygli þeirra á þeirri rannsókn sem vitnað er til hér að framan.

     2.      Hvað mun taka langan tíma að skipta um efni á völlunum í ljósi fjölda þeirra valla þar sem slíkt efni er nú þegar?
    Ekki er hægt að svara því hve langan tíma tæki að skipta um efni á völlum þar sem notað er gúmmíkurl úr bíldekkjum. Nákvæmur fjöldi gervigrasvalla með gúmmíkurli úr dekkjum hér á landi liggur ekki fyrir. Um er að ræða stóra fótboltavelli innan- og utanhúss, sparkvelli við skóla og á leiksvæðum. KSÍ-sparkvellir við grunnskóla eru 111, knattspyrnuvellir í fullri stærð innan húss eru átta talsins og fjöldinn allur er af minni völlum innandyra. Gera má ráð fyrir umtalsverðum kostnaði verði gúmmíkurli úr dekkjum skipt út fyrir annars konar gúmmí en samkvæmt dönsku skýrslunni sem minnst er á hér að framan fer verð á slíku kurli hækkandi og munurinn getur orðið allt að fjórtánfaldur.

     3.      Hvaða tilmæli, reglur eða bönn gilda um þetta efni í Þýskalandi og annars staðar á Norðurlöndum?
    Ráðherra er ekki kunnugt um að notkun gúmmíkurls úr notuðum dekkjum á gervigrasvöllum sé bönnuð annars staðar á Norðurlöndunum eða í Evrópu. Í Svíþjóð voru gefin út tilmæli árið 2006 þar sem hvatt er til þess að gúmmíkurl úr notuðum dekkjum sé ekki notað á nýja gervigrasvelli og enn fremur er hvatt til þess að notað sé annars konar gúmmíkurl þegar þörf gerist til útskiptingar á gúmmíkurli úr dekkjum. Tilmæli þessi eru í samræmi við stefnu Svía um umhverfi án eiturefna („giftfri miljö“). Síðan tilmælin voru gefin út árið 2006 hefur gervigrasvöllum sem nota gúmmíkurl úr notuðum dekkjum fækkað umtalsvert eða úr 91% af heildarfjölda valla niður í um 40%.
Neðanmálsgrein: 1
1     www2.mst.dk/udgiv/publications/2008/978-87-7052-866-5/pdf/978-87-7052-867-2.pdf.