Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 229. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 620  —  229. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar um launakjör heilbrigðisstétta.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða munur er á launakjörum helstu heilbrigðisstétta, þ.e. lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, á Íslandi og í Noregi?

    Samanburðarhæfar upplýsingar um launakjör ofangreinda heilbrigðisstétta eru ekki tiltækar í ráðuneytinu. Kannað var hvort opinberir aðilar á Íslandi ættu upplýsingar sem að gagni kæmu við vinnslu fyrirspurnarinnar en svo var ekki.
    Hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) fengust upplýsingar um laun sérfræðilækna og hjúkrunarfræðinga á ríkisreknum sjúkrahúsum á Íslandi og í Noregi árið 2008. Ekki er hægt að fullyrða að tölurnar séu fyllilega samanburðarhæfar þar sem hóparnir sem bornir eru saman eru um margt ólíkir milli landa og ekki er tekið tillit til vinnutíma eða vinnuskipulags þeirra. Því er rétt að hafa nokkurn fyrirvara á samanburði meðfylgjandi upplýsinga.

     –      Upplýsingar um íslenska sérfræðilækna vísa til þeirra sem starfa á sjúkrahúsum, að meðtöldum yfirlæknum en án læknanema.
     –      Upplýsingar um norska sérfræðilækna vísa til sérfræðilækna, aðstoðarlækna og heimilislækna sem starfa á ríkissjúkrahúsum.
     –      Upplýsingar um íslenska hjúkrunarfræðinga vísa til þeirra sem starfa á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum.
     –      Upplýsingar um norska hjúkrunarfræðinga vísa til þeirra sem starfa á ríkissjúkrahúsum, hafa lokið háskólaprófi en eru án sérhæfingar.
     –      Á Íslandi er miðað við árslaun 2008 en í Noregi er miðað við laun í október 2008.
    Meðfylgjandi tafla sýnir laun hópanna í Bandaríkjadölum.

Stétt Á Íslandi Í Noregi Munur
Sérfræðilæknar $ 131.895 $ 129.717 1,7%
Hjúkrunarfræðingar $ 62.873 $ 75.498 16,7%

    Launin voru einnig umreiknuð á jafnvirðisgildi (e. Purchasing Power Parity, PPP) og eru birt í næstu töflu. Jafnvirðisgildi er notað til að bera saman hlutfallslegt verðlag (laun) milli landa. Jafnvirðisgildi er umreikningstala fyrir mismunandi gjaldmiðla og notuð í stað gengis. Jafnvirðisgildi sýnir hve mikið þarf í gjaldmiðlum einstakra ríkja til að kaupa sama magn vöru og þjónustu í öðrum löndum.

Stétt Á Íslandi Í Noregi Munur
Sérfræðilæknar $PPP 92.747 $PPP 80.375 15,4%
Hjúkrunarfræðingar $PPP 44.211 $PPP 46.780 5,5%