Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 146. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 622  —  146. mál.




Svar



samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um tekjutap sveitarfélaga vegna uppsagna heilbrigðisstarfsfólks.

    Fyrirapurnin hljóðar svo:
     Hvert er áætlað tekjutap sveitarfélaga vegna lægri útsvarstekna sem fylgja uppsögnum heilbrigðisstarfsfólks sem starfar í dag á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni?

    Vísað er til upplýsinga í svari heilbrigðisráðherra 8. nóvember sl. við fyrirspurn þingmannsins frá 12. október um hversu margir gætu misst vinnu á heilbrigðsstofnunum á landsbyggðinni nái niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Í svarinu kemur fram að 393 starfsmenn í 261 stöðugildi gætu misst störf sín og er þá tekið tillit til aukinna fjárveitinga til heilsugæslunnar, m.a. vegna sjúkraflutninga og aukinnar heimaþjónustu.
    Miðað við meðaltalsútreikninga út frá þessari áætlun gæti lækkun útsvarstekna sveitarfélaga vegna færri heilbrigðisstarfsmanna á landsbyggðinni orðið á bilinu 150 til 200 millj. kr. Á móti því kæmu útsvarstekjur vegna þeirra sem fá önnur störf eða þeirra sem verða atvinnulausir um tíma en af þeim bótum er einnig reiknað útsvar. Gætu þær orðið á bilinu 82 til 112 millj. kr. ef reiknað er með því að allir verði atvinnulausir. Nettóáhrif yrðu þá um 80 millj. kr. lækkun miðað við þessar upphaflegu áætlanir. Þær áætlanir hafa hins vegar breyst nokkuð og því gætu áhrifin orðið jafnvel minni.
    Þá ber þess að geta að dæmi eru um að heilbrigðisstarfsfólk búi á höfuðborgarsvæðinu en hafi tekjur vegna vinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og kæmi hugsanlegur missir starfa þessa hóps ekki niður á tekjum sveitarfélaga.
    Af þessum sökum og vegna nýrra áætlana um samdrátt á þessu sviði er erfitt að meta með nákvæmum hætti heildaráhrif á útsvarstekjur hjá einstökum sveitarfélögum eða landsvæðum við ákvarðanir um fækkun starfsmanna hjá nokkrum starfsstéttum innan heilbrigðisgeirans.