Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 261. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 625  —  261. mál.




Svar



dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um starfsmannahald og aðkeypta þjónustu hjá ráðuneytinu.

     1.      Hvaða breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi í ráðuneytinu frá 1. janúar 2009 til 1. október 2010? Óskað er upplýsinga um stöðugildi, starfsheiti, kynjahlutfall, launakjör og heildarlaunagreiðslur.
    Innan ráðuneytisins voru nokkrar tilfærslur og starfsmannabreytingar á þessu tímabili og eru þær eftirtaldar: Ráðuneytisstjóri var fjarverandi vegna veikinda frá maí 2009 þar til hann lést í mars 2010. Var skrifstofustjóri settur ráðuneytisstjóri frá maí 2009 og til ársloka 2010. Starfsmaður ráðuneytisins í Brussel hætti störfum í ágúst 2010 og var enginn ráðinn í hans stað. Tveir lögfræðingar fóru í tímabundin leyfi, annar í mars 2009 og hinn í september 2009. Skrifstofustjóri fluttist til ráðuneytisins með verkefnum frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti í október 2010. Lögfræðingur sem var í tímabundnu leyfi kom aftur til starfa í júlí 2009. Skrifstofustjóri varð ráðherra í febrúar 2009 og lögfræðingur var settur skrifstofustjóri í hennar stað. Lögfræðingur var ráðinn tímabundið í janúar 2010 og lauk störfum í júlí 2010. Ritari ráðherra hætti í mars 2010, annar ritari færðist í hennar starf og eitt ritarastarf var lagt niður í kjölfarið. Tveir lögfræðingar voru ráðnir á tímabilinu, annar í febrúar 2009 og hinn í júní 2009. Skrifstofustjóri kom úr leyfi í júlí 2009. Þrír laganemar voru ráðnir tímabundið í maí 2010 og luku störfum í byrjun október 2010. Ráðherrabílstjóri sameiginlegur með öðru ráðuneyti var ráðinn í september 2010, en þá fluttist fyrri ráðherrabílstjóri til annars ríkisaðila.
    Ársverk miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2010 voru 29,8 talsins og skiptust þannig að karlar voru 8,4 talsins og konur 21,4. Ársverkum hefur fækkað um 4,8 milli ára, eða 14%, þar sem árið 2009 voru þau 34,6 talsins. Heildarlaunagjöld með launatengdum gjöldum á tímabilinu janúar 2009 til loka ágúst 2010 námu samtals 488,4 millj. kr. Laun ráðherra og aðstoðarmanns ráðherra eru undanskilin, enda greidd af öðrum fjárlagalið.

     2.      Hvernig hefur ráðuneytið útfært sparnaðartillögu ríkisstjórnarinnar í launagjöldum?
    Í samræmi við ríkisstjórnarsamþykkt frá 18. ágúst 2009 voru laun starfsmanna ráðuneytisins lækkuð um 3–10%. Lækkunin náði til starfsmanna með heildarlaun umfram 400 þús. kr. á mánuði og útfærð með því að fækka föstum greiddum yfirvinnustundum. Starfsfólki var, með bréfi til hvers og eins, tilkynnt um lækkunina með þriggja mánaða fyrirvara.

     3.      Hvaða sérfræðiþjónusta var keypt á tímabilinu 1. janúar 2009 til 1. október 2010 og í hvaða tilgangi, greint eftir nöfnum verksala og fjárhæðum?
    Hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins og tveimur safnliðum að auki er samtals aðkeypt sérfræðiþjónusta að fjárhæð 41,8 millj. kr. á tímabilinu. Þar vegur langþyngst lögfræðiþjónusta vegna samningar lagafrumvarpa auk þess sem lögfræðistofu var falið með samningi sérfræðivinna vegna undirbúnings tiltekins fjölda úrskurða. Kostnaður vegna þýðinga vegur einnig þungt svo og kostnaður vegna arkitekta- og verkfræðiráðgjafar vegna undirbúnings útboðs á fangelsi. Sjá nánar eftirfarandi sundurliðun:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     4.      Kannaði ráðuneytið hvort unnt væri að leysa þessi sérfræðiverkefni innan ríkiskerfisins áður en þjónustan var keypt og ef svo er, til hvaða ríkisaðila var leitað í hverju tilfelli fyrir sig?

    Já, ráðuneytið hefur fyrir vinnureglu að gaumgæfa þessi verkefni í hverju tilfelli fyrir sig og er þá lagt mat á vinnuálag, hæfni og fleiri þætti sem hafa áhrif á ákvarðanatökuna hverju sinni. Langflest verkefnin eru unnin af starfsmönnum ráðuneytisins, en engu síður eru margvísleg mál þar sem leitað þarf eftir sérstakri sérfræðiþekkingu, oftast á sérsviðum lögfræðinnar, og vísast í þeim efnum til svars við 3. tölul.