Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 254. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 626  —  254. mál.




Svar



dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um kærur vegna starfa lögreglu.

     1.      Hversu margar kærur hafa borist sl. 5 ár frá almennum borgurum vegna starfa lögreglu? Á hvaða rökum hafa kærurnar verið reistar? Hver hafa viðbrögð ráðuneytisins verið?
    Ríkissaksóknari fer með kærumál á hendur starfsmanni lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa hans sbr. 35. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996. Kvörtunum eða athugasemdum vegna framgöngu og starfshátta lögreglu, þegar ekki er um refsiverða háttsemi að ræða, á ekki að beina til ríkissaksóknara heldur viðkomandi lögreglustjóra eða ríkislögreglustjóra eftir atvikum.
    Eftirtaldar upplýsingar eru fengnar úr árskýrslum embættis ríkissaksóknara fyrir árin 2005–2008. Árskýrsla fyrir árið 2009 liggur ekki fyrir en tölur fengust hjá embætti ríkissaksóknara.
    Undanfarin 5 ár hefur fjöldi mála sem berast embætti ríkissaksóknara verið þessi:
2005 22 mál.
2006 17 mál.
2007 29 mál.
2008 26 mál.
2009 18 mál.
Samtals 112 mál.

    Árið 2005 bárust ríkissaksóknara 22 kærumál á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætluð brot vegna starfa þeirra á árinu 2005. Flest kærumálin, eða 13, tengdust handtökum kærenda þannig að kærðar voru ólögmætar handtökur og/eða harðræði/líkamsárás í tengslum við handtökur og vistun í fangaklefa. Í þremur málanna var jafnframt kært fyrir að gæta ekki lögmætra aðferða við leit. Tvær kærur bárust þar sem eingöngu var kært fyrir ólögmætar aðferðir við leit. Í tveimur málum var kæruefnið líkamsárásir/harðræði lögreglumanna í tengslum við önnur afskipti lögreglu af kæranda en handtöku. Ein kæra laut að beitingu lögreglumanns á úðavopni. Í einu málanna var kærð meint refsiverð háttsemi lögreglumanna vegna rangrar skýrslugerðar. Þá var lögreglumaður kærður vegna hugsanlegrar aðildar og vitneskju að þjófnaðarmáli. Þá var lögreglumaður kærður fyrir brot í opinberu starfi og brot á lögum um dýravernd vegna meðferðar á fíkniefnaleitarhundi og loks var lögreglumaður ákærður fyrir brot í starfi fyrir að hafa í heimildarleysi afhent tetra-talstöð til ljósmyndara í því skyni að veita honum aðgang að fjarskiptum lögreglunnar.
    Árið 2006 bárust ríkissaksóknara 17 kærumál á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætluð refsiverð brot vegna starfa lögreglunnar. Flest kærumálin, eða 10, tengdust handtökum kærenda þannig að kærðar voru ólögmætar handtökur og/eða harðræði/líkamsárás í tengslum við handtökur og vistun í fangaklefa. Eitt mál var vegna meints ofbeldis lögreglu án þess að það tengdist handtöku viðkomandi, í tveimur málum var kæruefnið meintur upplýsingaleki frá lögreglu til óviðkomandi aðila og eitt mál vegna brota á reglum um samskipti við upplýsingagjafa. Eitt mál varðaði þjófnað, eitt mál varðaði neitun á að taka við kæru og fara í heimildarleysi inn á heimili kæranda. Loks tók ríkissaksóknari til rannsóknar framkvæmd lögregluaðgerðar þegar maður sem lögreglan handtók fór í öndunar- og hjartastopp og lést.
    Árið 2007 bárust ríkissaksóknara 29 kærumál á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætluð refsiverð brot vegna starfa þeirra á árinu 2007. Stór hluti kærumálanna, eða 12, tengdust handtökum kærenda þannig að kærðar voru ólögmætar handtökur og/eða harðræði/líkamsárás í tengslum við handtökur og vistun í fangaklefa. Í fjórum málum var kært meint ofbeldi lögreglu án þess að það tengdist beint handtöku viðkomandi. Fimm kærur bárust er vörðuðu leit lögreglu, þar á meðal líkamsleit og húsleit. Tvö mál vörðuðu umferðarlagabrot í starfi. Eitt málið varðaði upplýsingaleka. Þá barst kæra manns á hendur lögreglu fyrir að hafa látið aflífa hund kæranda. Loks ákærði ríkissaksóknari einn lögreglumann fyrir brot í opinberu starfi fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína sem varðstjóri er hann nýtti sér mannafla lögreglu, lögreglubifreiðir og talstöðvakerfi lögreglu í eigin þágu og gaf fyrirmæli um akstur með forgangsmerkjum og lét slíkan akstur viðgangast á leið sinni frá heimili sínu til Keflavíkurflugvallar í einkaerindum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um þrjú mál.
    Árið 2008 bárust ríkissaksóknara 26 kærumál á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætluð brot vegna starfa þeirra á árinu 2008. Stór hluti málanna, eða tíu, tengdust handtökum kærenda þannig að kærðar voru ólögmætar handtökur og/eða harðræði/líkamsárás í tengslum við handtökur og vistun í fangaklefa. Í fimm málum var kært meint ofbeldi/harðræði lögreglu án þess að það tengdist beint handtöku viðkomandi. Sex kærur bárust er vörðuðu inngöngu lögreglu á heimili kærenda vegna gruns um brot af þeirra hálfu. Þá barst kæra frá manni sem taldi lögreglumann hafa gerst sekan um refsiverða háttsemi í tengslum við uppsetningu og notkun á öryggismyndavélum. Eitt mál varðaði kæru manns sem hafði glatað peningum sem hann kvaðst hafa haft á sér við handtöku. Eitt mál varðaði þagnarskyldubrot, eitt mál varðaði líkamsleit. Loks var einn lögreglumaður ákærður af ríkissaksóknara fyrir brot í opinberu starfi. Hann var ákærður fyrir líkamsárás í starfi sínu sem lögreglumaður.
    Árið 2009 bárust ríkissaksóknara 18 mál. Ekki liggja fyrir upplýsingar um skiptingu málanna.
    Ráðuneytið hefur ekki afskipti af málum sem eru kæranleg til ríkissaksóknara skv. 35. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996.

     2.      Hversu margar af kærunum hafa verið dregnar til baka? Hversu margar hafa leitt til sakfellingar, sýknu eða verið vísað frá dómi?
    Frá árinu 2005 hafa ríkissaksóknara borist 112 kærumál á hendur starfsmönnum lögreglu fyrir ætluð brot vegna starfa þeirra á árabilinu 2005–2009. Þar af voru 33 mál felld niður, fallið var frá saksókn í þremur málum, rannsókn var hætt í 51 máli, kæru var vísað frá í 13 málum, dómur/viðurlagaákvörðun gekk í þremur málum og níu mál voru í vinnslu um áramótin 2009–2010. Ekki liggur fyrir hve margar kærur voru dregnar til baka í þeim málum þar sem rannsókn var hætt.